Stykkishólmspósturinn
24. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Þriðjudagur 29. janúar 2013
Ljósnet í Stykkishólm

Síminn tilkynnti í byrjun vikunnar að á árinu yrði þjónusta aukin á landsbyggðinni og á það við um flestalla þéttbýlisstaði Snæfellsness þ.m.t. Stykkishólm.  Þjónustan ber heitið Ljósnet og býður upp á aukna sjónvarpsþjónustu, kraftmeiri tengingar auk 80 sjónvarpsstöðva í boði, tímaflakk og háskerpusjónvarps.  Nú þegar er tímaflakkið komið inn hér í Stykkishólmi a.m.k. á nokkrum sjónvarpsstöðvum.

Meira...


Miðvikudagur 23. janúar 2013
Við erum bjartsýn!

Í óformlegri vefkönnun sem verið hefur á www.stykkisholmsposturinn.is frá áramótum og spurt var: Ertu bjartsýnn fyrir þetta ár eru niðustöðurnar þær að 57,14% svarenda segja já, 33,33% segja Svona nokkuð já Nei og alls ekki segja innan við 9% svarenda.

Meira...


Miðvikudagur 23. janúar 2013
Hressasta Instagrammyndin

Í nýafstaðinni Forvarnar- og Heilsuviku hér í Hólminum þar sem fjöldi fyrirtækja, stofnana og einstaklinga auk bæjarbúa tók þátt var m.a. efnt til keppni um hressustu Instagram myndina.  Stykkishólms-Pósturinn stóð að keppninni auk aðstandenda Heilsuvikunnar, Stykkishólmsbæ, Steinunni Helgadóttur og Aþenu Eydísi Kolbeinsdóttur.

Meira...


Föstudagur 18. janúar 2013
Af Sturlungum og fleira fólki

S.l. laugardag var bryddað upp á nýrri uppákomu í Landnámssetrinu í Borgarnesi.  Einar Kárason rithöfundur sem löngu hefur sýnt og sannað að hann er sagnamaður af hjarta og sál leiðir áheyrendur inn í töfraheima sögunnar á Söguloftinu.   

Meira...


Fimmtudagur 17. janúar 2013
Fjöldi íbúa í Stykkishólmi sá sami í árslok 2011 og 2012

Mannfjöldatölur Hagstofunnar voru að koma út. Í lok 4. ársfjórðungs 2012 bjuggu 321.890 manns á Íslandi, 161.440 karlar og 160.450 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.230 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 21.470 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 205.740 manns.  Þegar skoðaðar eru tölur fyrir Stykksihólm kemur í ljós að íbúar um ármót eru 1110 og hefur fjölgað lítillega frá áramótunum á undan.

Meira...


Miðvikudagur 16. janúar 2013
Ótrúlegur fjöldi fugla við norðanvert Snæfellsnes

Í síðustu viku fór fram árleg talning vetrarfugla við norðanvert Snæfellsnes en talningin er hluti af landstalningu sem Náttúrufræðistofnun Íslands heldur utan um. Talningarmenn voru starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Snæfellsnesi, ásamt öðrum áhugamönnum um fugla. 

Meira...


Miðvikudagur 16. janúar 2013
Happadagur í Urthvalafirði

Betur fór en á horfðist þegar skipstjórinn á Ronju SH-53, Símon Sturluson var við síldveiðar s.l. laugardag við annan mann á Urthvalafirði.  Þetta var síðasti síldartúrinn sem hafði byrjað á því að einungis komu fimm fiskar í fyrsta net.

Meira...


Miðvikudagur 16. janúar 2013
Úthlutun úr lista- og menningarsjóði Stykkishólmsbæjar

7. janúar s.l. var haldinn 37. fundur lista- og menningarsjóðs Stykkishólmsbæjar. Eftirfarandi úthlutanir voru samþykktar af stjórn, sem skipuð er Lárusi Á. Hannessyni, Gretari D.Pálssyni og Hólmfríði Friðjónsdóttur

Meira...


Síða 10 af 114: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114





24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei