
Báðir Lionsklúbbar Stykkishólms héldu lokafund sinn s.l. miðvikudag og við það tilefni afhenti Lionsklúbburinn sjúkrabílnum gjöf sem kemur í góðar þarfir. Það voru þeir Guðmundur Kristinsson gjaldkeri og Hermundur Pálsson formaður sem afhentu Einari Þór Strand sjúkraflutningamanni tækið.
Meira...
Tilkynning frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu s.l. þriðjudag eru rækjuveiðar í sunnanverðum Breiðafirði heimilaðar frá miðnætti 14.5.2013. Veiðarnar eru leyfðar vestan Krossanesvita fram til 1. júlí n.k.
Veiðarnar má ekki stunda með stærri skipum en 105 brl og skal varpa skipanna búin seiðaskilju eins og hún er skilgreind í reglugerðum frá ráðuneytinu.
Meira...
S.l. helgi komu hingað til Snæfellsness Norðmennirnir Eivind Brenna og Elisabeth Mellbye. Eivind og Elisabeth eru kennarar að mennt en hafa komið að stofnun og vinnu fyrsta svæðisgarðs Noregs, Valdres sem er myndað af sex bæjarfélögum í fjalllendi Noregs þar sem 18.000 íbúar búa. Þau funduðu með sveitarstjórnarfólki á Snæfellsnesi, skoðuðu svæðið og héldu opinn fund í Grundarfirði mánudaginn 6. maí. Þau komu hingað til lands á vegum svæðisgarðsverkefnis sveitarfélaganna á Snæfellsnesi. Eivind er stjórnarformaður Valdres svæðisgarðsins og samtaka norskra svæðisgarða. Norsku svæðisgarðarnir eru orðnir 5 talsins og amk 3 nýir í undirbúningi.
Meira...Á uppstigningadag verður boðið upp á málstofu á Hótel Hellissandi um verslun og útgerð við Breiðafjörð 1300-1600 kl. 19.30 Fyrr um daginn og daginn eftir verður boðið upp á vettvangsferðir með leiðsögufólki og skoðaðir staðir sem tengjast umræðuefni málstofunnar.
Meira...Kjörfundur fyrir alþingiskosningarnar opnaði kl.9 í morgun í Setrinu við tónlistarskólann. Á kjörskrá í Stykkishólmi eru 812 sem er tveimur færra en í síðustu kosningum 2009. Klukkan 14 höfðu 210 manns kosið sem gerir um 26% kjörsókn en það má geta þess til samanburðar að kjörsóknin 2009 var komin í rúm 34% kl.15.
Feneyjartvíæringurinn er ein af stærstu listsýningum heims og er haldin annaðhvert ár í Feneyjum. Það má segja að Feneyjartvíæringurinn skiptist í tvær sýningar, annarsvegar sýningar þátttökulandanna hvert í sínum skála og hinsvegar aðalsýningin sem sýningarstjóri tvíæringsins velur þátttakendur inn í. Íslenskir listamenn hafa undanfarin ár tekið þátt í sýningum sem settar hafa verið upp í Íslandsskálanum og hefur Ísland átt fulltrúa þar frá árinu 1968. Myndlistarkonan Katrín Sigurðardóttir verður fulltrúi Íslands í íslenska skálanum í ár. Hún er hinsvegar ekki eini íslenski listamaðurinn sem sýnir verk sín á Feneyjartvíæringnum í ár því Ragnari Kjartanssyni hlotnaðist sá heiður að vera boðið að taka þátt í aðalsýningunni ásamt um 150 listamönnum hvaðanæfa að úr heiminum. Ragnar er ekki ókunnur á tvíæringnum því hann sýndi í íslenska skálanum fyrir fjórum árum.
Meira...Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram á skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2 alla virka daga til kjördags frá kl. 10 - 15
Þeir sem eru fjarri lögheimili sínu fara á utankjörfundaratkvæðagreiðslustað þar sem þeir eru staddir og kjósa og taka með sér atkvæðið og bera ábyrgð á því að það komist til kjörstjórnar í sínu sveitarfélagi. Hugsanlega er hægt að póstleggja atkvæðið í A pósti og stíla á Sýslumanninn í Stykkishólmi, kjörstjórn Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmur eða biðja einhvern fyrir atkvæðið sem er á leið vestur og sá hinn sami verður að afhenda það á kjörfundi á kjördag eða á skrifstofu sýslumanns fram að kjördegi.
Meira...
Um þessar mundir eru liðin 70 ár frá því að formlega var stofnað til Kórs Stykkishólmskirkju. Þess má rekja aftur til 1943 þegar Sigurður Birkis fyrsti söngmálastjóri þjóðkirkjunnar ferðaðist um landið og stofnaði formlega kirkjukóra á ýmsum þéttbýlisstöðum. Fyrirrennari kórsins söngfélagið var hinsvegar stofnað upp úr 1860 og var á hrakhólum með æfingahúsnæði í nokkur ár, eða þegar félagið fékk inni í hinni nýbyggðu Stykkishólmskirkju við Aðalgötuna skömmu eftir vígslu hennar 1879. Sr. Eiríkur Kúld veitti leyfi til æfinga í kirkjunni með þeim skilyrðum að kórinn tæki að sér kirkjusönginn og að ekki væri sungið í kirkjunni drykkjuvísur eða þesskonar gleðivísur.
Meira...