


Mikil spenna ríkti við Skipavíkurhöfn í gær þegar sjósetja átti Víkingskútuna sem Skipavík hefur haft í smíðum i hátt á þriðja ár og margar vinnustundir liggja í. Skútan er einstök og sú eina sinnar tegundar. Fjöldi fólks fylgdist með í Skipavíkurhöfn seinnipartinn í gær og fram á kvöld og einnig við Stykkishólmshöfn þegar Víkingaskútan kom siglandi í fylgd nokkura báta inn í höfnina í fyrsta sinn.
Í myndbandinu má sjá þegar skútan er sjósett og þegar hún kemur siglandi í Stykkishólmshöfn.