Stykkishólmspósturinn
6. september 2010

Hér er safnað saman á eina síðu annarsvegar fréttir og hinsvegar aðsendu efni tengt sveitarstjórnar-kosningunum 2010.

Stefnuskrár framboðanna í Stykkishólmi 2010

Smelltu til að skoða!Smelltu til að skoða!

 

Fréttir 

Fimmtudagur 3. júní 2010
Að loknum kosningum
Nú þegar það liggur fyrir að sjálfstæðismenn og óháðir hafa misst meirihluta sinn í bæjarstjórn Stykkishólms vil ég óska L-listafólkinu til hamingju með sigurinn og velfarnaðar í vandasömu hlutverki. Meira...

Fimmtudagur 3. júní 2010
L-listinn náði meirihlutanum
Það var nokkuð ljóst fyrir sveitarsstjórnarkosningarnar að þær yrðu spennandi hér í Stykkishólmi og úrslitin gætu ráðist á fáum atkvæðum.  Munurinn var ekki mikill á milli D.-lista og L-lista síðast eða einungis 42 atkvæði og fyrir kosningarnar nú treysti varla nokkur maður sér til að spá hvernig þetta myndi falla.  Meira...

Sunnudagur 30. maí 2010
Sjáfstæðismenn tapa fylgi á Snæfellsnesi
Nú er lokið talningu í þremur stærstu bæjarfélögunum á Snæfellsnesi og samkvæmt þeim hélt meiri hluti sjálfstæðismanna í Snæfellsbæ þar sem hann hlaut 61,6% atkvæða gegn 41,9% atkvæða J-lista. Sjálfstæðismenn og óháðir misstu hinsvegar meirhlutann í bæjarstjórn bæði í Grundarfirði og Stykkishólmi.  Í Grundarfirði vann L-listi með 55,6% atkvæða gegn 44,4% atkvæða D-lista og má geta þess að Sigurborg Hannesdóttir systir Lárusar Ástmars efsta manns á L-lista í Stykkishólmi leiðir L-listann í Grundarfirði.

Sunnudagur 30. maí 2010
Ný bæjarstjórn og nýr bæjarstjóri
Eftir niðurstöður kosninganna í Stykkishólmi er það ljóst að Lárus Ástmar Hannesson verður forseti nýrrar bæjarstjórnar og auk hans eru frá L-lista, Berglind Axelsdóttir, Davíð Sveinsson og Egill Egilsson. Fyrir D-lista eru Gretar D. Pálsson, Íris H. Sigurbjörnsdóttir og Guðlaug J. Ágústsdóttir.  Nýr bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar verður Gyða Steinsdóttir.

Sunnudagur 30. maí 2010
L-listinn með meirihluta í bæjarstjórn
Lokatölur í kosningunum eru komnar fyrir Stykkishólm, L-listinn 353 atkvæði(50,4%) og 4 menn í bæjarstjórn, D-listinn 347 atkvæði (49,6%) og 3 menn í bæjarstjórn. Auðir seðlar 24, ógildir 6. Greidd atkvæði 729.  Munurinn varð því einungis 6 atkvæði en hann þýðir að D-listi sjálfstæðismanna og óháðra er nú að fara í minnihluta í bæjarstjórn eftir að hafa verið í meirihluta bæjarstjórna Stykkishólms síðastliðin 36 ár.

Sunnudagur 30. maí 2010
Enn er talið
Klukkan 24 var ekki enn lokið talningu utankjörfundar atkvæða, munurinn einungis 4 atkvæði þegar talningu kjörfundar atkvæða var lokið, það getur því allt gerst enn.

Laugardagur 29. maí 2010
Sviptingar í bæjarstjórn?
Það urðu heldur betur sviptingar í lokin. Nú eru öll kjörfundaratkvæðin 642 talin og hlaut D-listinn 306 atkvæði (47,7%) og L-listinn 310 atkvæði (48,3%). Auðir seðlar voru 24, ógildir 2.  Eins og staðan er nú er því L-listinn kominn með meirihluta en enn á eftir að telja utankjörfundar atkvæðin.  Þ

Laugardagur 29. maí 2010
Fyrstu tölur
Fyrstu tölur eru komnar frá kjörstjórn í Stykkishólmi.  Samkvæmt þeim fékk D-listi 183 atkvæði, L-listi 150 atkvæði.  Þannig að meirihlutinn heldur miðað við þessar tölur þó heldur tæpar nú en undir lok síðustu kosninga þegar munaði 42 atkvæðum á þessum tveimur listum. Næstu tölur og jafnframt lokatölur af kjörnum atkvæðum á kjörstað ættu að koma eftir um hálftíma, þ.e. kl.23:30.

Laugardagur 29. maí 2010
Kjörfundi lokið
Kjörfundi lauk nú kl.22 í grunnskólanum og ljóst að kjörsókn var ekki alveg jafn góð og í síðustu kosningum þegar kjörsóknin var 92,6%.  Það var ekki alveg búið að stemma saman tölur um kjösóknina laust eftir kl.22 þegar athugað var með kjörsóknina en þó virðist hún vera um 88% í dag. Reikna má með fyrstu tölum milli kl.23 og 23:30.

Laugardagur 29. maí 2010
Framboðsfundur 26.maí - Framsöguræða Helgu Guðmundsdóttur 5.sæti L-lista
Reynsla mín af störfum í foreldrafélögum , nefndum ungmennafélaga,   og sem foreldri hefur sýnt mér hve mikilvægt það er að ungmenni iðki tómstundir í sínum frítíma    og fái þannig þá útrás sem ungt fólk þarf á að halda   svo sem til listsköpunar, líkamlegrar hreyfingar og félagslegrar færni. Meira...

Laugardagur 29. maí 2010
Framboðsfundur 26. maí Framsöguræða og lokaorð Hjörleifs Kristins Hjörleifssonar 5.sæti D-lista

Fundarstjóri ágætu fundargestir.Undirstaða öflugs félags-og íþróttastarfs er dugmikið starf félagasamtaka með dyggum stuðningi sveitarfélagsins en tæp 20% af tekjum Stykkishólmsbæjar fara til æskulýðs og íþróttamála. Undir forystu D-lista hefur verið unnið mikið verk í uppbyggingu á íþróttamannvirkjum á síðustu 20 árum t.d íþróttahús, sundlaug, íþróttavöllur þökulagður og tartan lagt á stökk- og kastsvæði. Meira...

Laugardagur 29. maí 2010
Framboðsfundur 26. maí Framsöguræða og lokaorð Guðlaugar Ágústsdóttur 3.sæti D-lista

29. n.k. maí göngum við til sveitastjórnakosninga, síðustu ár hafa verið okkur landsmönnum  býsna stormasöm bæði á landsvísu og nú síðast frá náttúrunnar hendi  og  allt þetta hefur sett mark sitt á þjófélagið. Meira...

Föstudagur 28. maí 2010
Framboðsfundur 26.maí - Framsöguræða og lokaorð Írisar H. Sigurbjörnsdóttur 2.sæti D-lista

Fundarstjóri, ágætu fundargestir.

Stykkishólmur er þekktur verslunarbær sem byggir á gömlum og góðum grunni þegar horft er til atvinnulífs. Í gegnum tíðina hefur skipting atvinnuvega breyst þar sem ákveðnar greinar hafa dregist saman en aðrar hafa sótt í sig veðrið í takt við breyttan tíðaranda og breyttar áherslur.

Meira...

Föstudagur 28. maí 2010
Framboðsfundur 26.maí - Framsöguræða Egils Egilssonar 4.sæti á L-lista

Ágætu fundarstjórar og aðrir tiheyrendur.

Um næstu áramót munu sveitafélöginn taka við málefnum fatlaðra frá ríkinu. Við þau tímamót skapast tækifæri á að bæta þjónustu við fatlaða.

Meira...

Föstudagur 28. maí 2010
Framboðsfundur 26.maí - Framsaga og lokaorð Berglindar Axelsdóttur 2.sæti L-lista

Stykkishólmur stendur á afar fallegu bæjarstæði. Við höfum einnig borið gæfu til þess að einstaklingar tóku sig til og byrjuðu að gera upp mörg af þeim gömlu húsum sem komin voru í niðurníðslu. Sá bolti vatt upp á sig og nú er fjöldinn allur af húsum fallega uppgerð svo sómi er að. Meira...

Síða 1 af 3: | næsta-> 1 - 2 - 3

Aðsent efni

Miðvikudagur 21. apríl 2010
Afkoma Stykkishólmsbæjar 2009

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar og undirstofnana árið 2009 hefur verið lagður fram. Ánægjulegt er að sjá að rekstur (EBIDTA = niðurstaða rekstrar fyrir afskriftir og fjármagnsliði) er samkvæmt fjárhagsáætlun þar sem gert var ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu. Tekjur eru 3,46% hærri en áætlun gerði ráð fyrir og gjöld eru 0,76% lægri. Meira...

Fimmtudagur 4. mars 2010
250 orð um bæjarmál

,,Úbs!“

Muamar Caddafí er í miklu stuði þessa dagana. Hann er nú að æsa til heilags stríðs gegn Swiss. Hvers vegna?

Meira...

Föstudagur 19. febrúar 2010
Fjöldi ábendinga barst vegna framboðs sjálfstæðismanna og óháðra
Kjörnefnd um framboð sjálfstæðismanna og óháðra í Stykkishólmi óskaði á dögunum eftir ábendingum vegna undirbúnings framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Meira...

Föstudagur 29. janúar 2010
Framboð sjálfstæðismanna og óháðra
Í vor verður gengið til kosninga, þar sem ný bæjarstjórn verður valin. Í fyrsta sinn frá því samstarf sjálfstæðismanna og óháðra fyrir sveitarstjórnarkosningar í Stykkishólmi hófst 1974 er nú auglýst opinberlega eftir tilnefningum á framboðslista þeirra. Meira...

Föstudagur 8. janúar 2010
Sveitarstjórnarkosningar 2010

Óska þér gleðilegs árs og farsældar lesandi góður.

Sveitarstjórnarkosningar verða í vor, eða þann 29. maí.

Sjálfstæðisfélagið Skjöldur hefur boðað til fundar til að ákveða hvaða fyrirkomulag verði á vali á D-lista og skipulagi kosninga.

Meira...

Föstudagur 4. desember 2009
Íbúalýðræði - hafa sveitarstjórnarmenn áhuga?

Ég var á fundi úti í Grundarfirði um daginn, eða fyrirlestri öllu heldur. Var hann um samskiptaleiðir í sveitarstjórnarmálum milli ,,valdhafanna og þegnanna“. Meira...

Fimmtudagur 5. nóvember 2009
Sameinað Snæfellsnes
Í septembermánuði samþykkti bæjarstjórn Grundarfjarðar samhljóða að óska eftir viðræðum við önnur sveitarfélög á Snæfellsnesi um sameiningu sveitarfélaganna.  Á sameiginlegum fundi sveitarstjórnarmanna af svæðinu þann 29. okt fengu bæjarfulltrúar í Grundarfirði áskorun um að skýra sjónarmið sín fyrir íbúum Snæfellsness og er þessi pistill liður í því. Meira...




Breyttur opnunartími haustið 2009 opið virka daga frá 8-17 en laugardaga frá 9-16
Hefurðu skoðað Vatnshellinn í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli?

Nei, ætla fljótlega
Nei, ekki enn



6. september:
- Átak. Þrek og þol - Nýtt námskeið fyrir konur!

- Vatnsleikfimi. Nýtt námskeið hefst!

- Átak. Fit-Pilates - Nýtt námskeið hefst!


7. september:
- Átak. Lífsstíll - nýtt námskeið hefst !

- Átak. Bland í poka líkamsræktarnámskeið hefst.

- Átak. Spinning námskeið hefst.

- Átak. Karlapúl - Nýtt námskeið hefst !


8. september:
- Heyrnatækjaþjónusta í Stykkishólmi

- Út að ganga með Hebbunum


9. september:
- Augnlæknir til viðtals á heilsugæslustöðinni