Laugardagur 6. febrúar 2010
Nesbrauð 5 ára
Nesbrauð, bakarí okkar Hólmara fagnar 5 ára afmæli í dag og býður Hólmurum og nærsveitungum upp á kaffi og tertu í tilefni af því. Þegar kíkt var við í morgun voru þegar margir búnir að kíkja við enda bakarísferð eitt af morgunverkunum á laugardögum.
Laugardagur 6. febrúar 2010
Félag leikskólakennara 60 ára – Dagur leikskólans
Dagur leikskólans er í dag en Félag leikskólakennara var stofnað 6.febrúar 1950 og fagnar því sextíu ára afmæli í dag. Félagið var stofnað af 22 leikskólakennurum sem þá höfðu útskrifast sem slíkir hér á landi, en þeir fyrstu útskrifuðust frá Uppeldisskóla Sumargjafar í febrúar 1948. Leikskólakennarar hér í Stykkishólmi tóku forskot á sæluna og héldu upp á daginn í gær með foreldrakaffi í leikskólanum.
Meira...
Föstudagur 5. febrúar 2010
Liðsauki til Snæfells
Eftir að ljóst var að Pálmi Freyr léki ekki meira með Snæfelli í vetur var farið í að athuga með að fá nýjan leikmann til liðsins. Hópurinn er ekki það stór að hann má illa við að missa menn út, hvað þá einn af máttarstólpunum. Snæfell hefur nú samið við nýjan leikmann og mun sá koma frá Lettlandi, alhliða spilari um 2 metrar á hæð.
Meira...
Föstudagur 5. febrúar 2010
Snæfell í 2.sætið
Úrslitin í körfunni fóru á besta veg fyrir Snæfell í 15. umferð í Iceland Expressdeild karla sem lauk í kvöld. Snæfell gerði sitt með því að sigra Keflavík í gær með 20 stigum og komast þannig í 3.sætið. Í kvöld sáu svo Fjölnismenn til þess að Snæfell fór uppfyrir Njarðvík líka og í 2.sæti deildarinnar því Fjölnir sigraði Njarðvík örugglega í Njarðvík
70-77 þar sem Ingvaldur Magni var í aðalhlutverki.
Meira...
Föstudagur 5. febrúar 2010
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggur fram frumvarp um strandveiðar
Á næstu dögum mun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, mæla fyrir tveimur frumvörpum á Alþingi, en með því fyrra eru lagðar til breytingar á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og taka þær til strandveiða. Samhliða leggur ráðherra til breytingar á lögum nr. 33/2000 um veiðieftirlitsgjald ...
Meira...
Föstudagur 5. febrúar 2010
Söngvaseiður 10. apríl 2010
Dagsetning fyrir Söngvaseið 2010 hefur verið ákveðin 10.apríl. Miðað við fengna reynslu er ástæða til að fólk geti farið að láta sig hlakka til og taka daginn frá. Opnað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 10. febrúar.
Meira...
Föstudagur 5. febrúar 2010
FSN - Fatasöfnun til styrktar hjálparstarfi á Haítí
Sólardagar verða haldnir í Fjölbrautaskóla Snæfellinga þann 11. - 12. febrúar nk.
Þar verður brotið upp hefðbundið skólastarf með því að skipuleggja fjölbreytta og skemmtilega dagskrá ...
Meira...
Föstudagur 5. febrúar 2010
Fasteignaskattur
Álagningarprósenta fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði í Stykkishólmi er 0,43% af fasteignamati og hefur verið óbreytt frá árinu 2005. Sorphirðugjaldið hækkar úr
31.000 kr. í 33.200 kr. á milli áranna 2009 og 2010 eða um sem nemur hækkun á byggingavísitölu, ...
meira
Síða 1 af 144: |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114 -
115 -
116 -
117 -
118 -
119 -
120 -
121 -
122 -
123 -
124 -
125 -
126 -
127 -
128 -
129 -
130 -
131 -
132 -
133 -
134 -
135 -
136 -
137 -
138 -
139 -
140 -
141 -
142 -
143 -
144