Stykkishólmspósturinn
24. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Fimmtudagur 25. september 2008
Nýr skrifstofustjóri hjá RARIK
Haukur Garðarsson hefur verið ráðinn sem skrifstofustjóri RARIK á Vesturlandi með aðsetur í Stykkishólmi.  Um nýja stöðu er þar að ræða og umsækjendurnir um hana voru tólf.  Meira...


Fimmtudagur 25. september 2008
Náttúrustofur þinga á Snæfellsnesi

Náttúrustofur bjóða til ráðstefnu föstudaginn 26. september í Grundarfirði, þar sem fluttir verða fyrirlestrar um áhugaverð efni.

Samtök náttúrustofa (SNS) eru samstarfsvettvangur náttúrustofanna sjö, sem dreifðar eru um landið. Samtökin halda árlega

Meira...


Fimmtudagur 25. september 2008
Við erum lögð af stað!
Síðastliðinn mánudag var skólasetning Grunnmenntaskólans á Snæfellsnesi, sem er á vegum Símenntunarmiðstöðvarinnar, í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Meira...


Fimmtudagur 25. september 2008
Öll sveitarfélög geta keypt nemakort

Öll sveitarfélög landsins geta nú keypt nemakort í strætó ætluð nemendum sem stunda viðurkennt nám á höfuðborgarsvæðinu.

Meira...


Fimmtudagur 25. september 2008
Myndbönd á Stykkishólms-Póstinum

Í síðustu viku var bryddað upp á þeirri nýbreytni að setja myndband af sjósetningu Víkingaskútu Skipavíkur á vef Stykkishólms-Póstsins.  Gríðarlegar vinsældir myndbandsins gefa til kynna að hér sé efni sem auka mætti við og mun stefnan verða sú.  Af þeim sökum hefur verið bætt við hnappi á vefinn sem heitir Myndbönd og þar verður safnað saman myndböndum sem tengjast Hólminum á einn eða annan hátt, sem liggja á vefþjónum blaðsins en einnig verður vísað á efni úti í heimi eins og nú þegar Kellogg's auglýsing sem tekin var upp hér í vor var fundin á Youtube.  Þeir sem skilja ítölsku geta einnig lesið athugasemdir um hana.


Föstudagur 19. september 2008
Fjölgar í hópnum hjá Snæfelli

Það fjölgaði loks í hópnum hjá Snæfelli í dag, því Nikola Dzeverdanovic og Tome Dilijev mættu á sína fyrstu æfingu í kvöld og Nate Brown er væntanlegur á sína fyrstu æfingu á morgun.  Hlynur Bærings og Sigurður Þorvalds koma svo væntanlega á æfingu á mánudaginn eftir ferð með landsliðinu til Austurríkis þar sem það lék síðasta leikinn í fyrri umferðinni Meira...


Föstudagur 19. september 2008
Mánuður í styrktartónleika
Minnum á að nú er réttur mánuður í söfnunartónleika Karlakórs Reykjavíkur þann 18.október í Stykkishólmskirkju.  Ágóði tónleikanna mun renna í orgelsjóð kirkjunnar og síðar um kvöldið verður matur og skemmtun á Hótel Stykkishólmi.  Stefnt er að því að Hólmarar nær og fjær skelli sér í Stykkishólm á tónleikana og leggi þannig sitt af mörkum í söfnunina og geri sér svo glaðan dag í leiðinni, smá ,,ættarmóts" fílingur í þessu.   Meira...


Fimmtudagur 18. september 2008
Ljósmyndar fyrir National Geographic

Daníel Bergmann náttúruljósmyndari er sjálfsagt með víðförlari íbúum Stykkishólms enda þarf hann starfs síns vegna að ferðast mikið bæði innan lands sem utan.  Lungan úr sumrinu eyðir hann á hálendinu eða á ferðalögum vítt á breitt um landið með mismunandi hópa ljósmyndara eða áhugafólks um náttúruljósmyndun.  Meira...


Síða 61 af 144: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116 - 117 - 118 - 119 - 120 - 121 - 122 - 123 - 124 - 125 - 126 - 127 - 128 - 129 - 130 - 131 - 132 - 133 - 134 - 135 - 136 - 137 - 138 - 139 - 140 - 141 - 142 - 143 - 144





24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei