Fimmtudagur 18. september 2008
Ráðherra í heimsókn
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra kom hér í stutta heimsókn á þriðjudaginn á leið sinni til Ólafsvíkur þar sem hann ætlaði að taka fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili við dvalarheimilið þar.
En fyrst kom hann sem sagt í Stykkishólm og kynnti sér starfsemi sjúkrahússins og ræddi við forráðamenn bæjarins.
Meira...
Miðvikudagur 17. september 2008
Smá gola
Ike kom við í Hólminum í gærkvöldi og i nótt og þó hann hafi verið svolítið hvassur þá náði hann ekki skaphæðum nafna síns Turner þegar hann var sem verstur. Báðir reyndust þeir þó vera í blautari kantinum og eru Hólmarar á því að þeir hefðu nú frekar viljað fá Tinu í heimsókn.
Meira...
Þriðjudagur 16. september 2008
Víkingaskúta Skipavíkur sjósett
Mikil spenna ríkti við Skipavíkurhöfn í gær þegar sjósetja átti Víkingskútuna sem Skipavík hefur haft í smíðum i hátt á þriðja ár og margar vinnustundir liggja í. Skútan er einstök og sú eina sinnar tegundar. Fjöldi fólks fylgdist með í Skipavíkurhöfn seinnipartinn í gær og fram á kvöld og einnig við Stykkishólmshöfn þegar Víkingaskútan kom siglandi í fylgd nokkura báta inn í höfnina í fyrsta sinn.
Í myndbandinu má sjá þegar skútan er sjósett og þegar hún kemur siglandi í Stykkishólmshöfn.
Meira...
Mánudagur 15. september 2008
Fleiri sundlaugargestir í sumar en í fyrra
Þá eru tölur yfir fjölda gesta í sundlauginni í sumar og þær sem fyrr athyglisverðar.
Það sést vel á tölunum í júlí og ágúst nú og í fyrra hve helgarnar spila stórt hlutverk varðandi fjölda gesta.
Meira...
Mánudagur 15. september 2008
Fréttir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Í ár var ákveðið að brydda upp á nýjungum við að bjóða nýnema velkomna í skólann og hvíldi mikil leynd yfir ,,busadeginum“ alveg fram á síðustu mínútur. Það eina sem nemendur fengu að vita var að þeir þyrftu að koma í útivistarfatnaði og klædd eftir veðri.
Meira...
Mánudagur 15. september 2008
Erlendum gestum fjölgar ár frá ári
Háskólasetur Snæfellsness (HS) hefur nú verið starfrækt í tæplega tvö og hálft ár. Frá upphafi hafa komur erlendra fræðimanna verið tíðar, einkum á sumrin.
Meira...
Fimmtudagur 11. september 2008
Rafmangstruflanir á Snæfellsnesi
Rafmagnstruflanir hafa verið á Snæfellsnesi í dag. Rafmagn fór af Grundarfirði og nærsveitum um kl. 14:10 þegar 66 kV flutningslína til Grundarfjarðar leysti út.
Meira...
Fimmtudagur 11. september 2008
Víkingaskútan komin niður á gólf
Víkingaskúta Skipavíkur var hífð niður af palli sínum í Skipavík á laugardaginn var.
Hífingin gekk vel þótt að mörgu hafi verið að hyggja áður en hún hófst.
Þar sem skútan var of þung fyrir gálgakranann innanhúss var fenginn sérstakur krani til verksins.
Meira...
Síða 62 af 144:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 - 62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114 -
115 -
116 -
117 -
118 -
119 -
120 -
121 -
122 -
123 -
124 -
125 -
126 -
127 -
128 -
129 -
130 -
131 -
132 -
133 -
134 -
135 -
136 -
137 -
138 -
139 -
140 -
141 -
142 -
143 -
144