Stykkishólmspósturinn
20. júní 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Föstudagur 29. ágúst 2008
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Eins og kunnugt er stendur til að sameina fimm heilbrigðisstofnanir á Vesturlandi og raunar búið að ákveða að það verði gert. Það eru Heilsugæslurnar í Borgarnesi, Búðardal, Grundarfirði, Snæfellsbæ og St.Franciskusspítali. Meira...


Föstudagur 29. ágúst 2008
Jordanco byrjaður með æfingar

Meistaraflokkar Snæfells í körfunni eru komnir á fullt við æfingar en hóparnir þó ekki alveg fullmannaðir enn og engin erlendu leikmannanna kominn enn hvorki hjá stelpunum eða strákunum.  Nýi þjálfari meistarflokks karla Jordanco Davitkov kom hér fyrir rúmri viku og setti æfingar strax í gang.  Meira...


Miðvikudagur 27. ágúst 2008
Flateyjarbók hin nýja

Símaskrá Flateyjar hefur verið gefin út undanfarin ár af Fjáröflunarnefnd Flateyjarkirkju og í ár 2008, er hún gefin út í sjötta sinn.   Símaskráin hefur með árunum sífellt orðið efnismeiri og er nú 48 blaðsíður með um 450 nöfnum, 700 símanúmerum, 300 vefföngum og margskonar fróðleik um Flatey.  Meðal nýjunga er kort af Flatey þar sem öll húsin á eynni er merkt inná. Meira...


Þriðjudagur 26. ágúst 2008
Sauðfjárbændur funda um lágt verð
Nú líður að slátrun sauðfjár hefjist og sláturleyfishafar hafa gefið út verðskrár sínar fyrir sláturafurðir.  Að mati sauðfjárbænda eru verðhækkanir í þeim ekki nægilegar miðað við  þá hækkun sem orðið hefur á aðföngum til sauðfjárbænda.  Meira...


Föstudagur 22. ágúst 2008
Vatnslaust í Hólminum
Vatn fór af öllum bænum um hádegisbil en mun væntanlega verða komið aftur á um kl.13:30 í stærstum hluta bæjarins.  Það er Neshverfið sem þarf að bíða aðeins lengur, þ.e. svæðið í grennd við Skipavík.  Meira...


Föstudagur 22. ágúst 2008
Danskir dagar

Danskir dagar rötuðu heldur betur í fréttir fjölmiðla utan af landi um helgina og þær fréttir einkenndust af því að þær fjölluðu um allt aðra en Hólmara og það sem þeir voru að gera skemmtilegt þessa daga. Meira...


Föstudagur 22. ágúst 2008
Góðri grásleppuvertíð lokið
Grásleppuvertíðinni hér við Breiðafjörðinn lauk formlega mánudaginn 18.ágúst og ekki hægt að segja annað en að hún hafi verið góð.  Afli var góður og verð fyrir hrognin fínt þannig að vertíðin slagar í Monzuvertíðina góðu. Meira...


Fimmtudagur 21. ágúst 2008
8 umsóknir um lóð
Það er enginn bilbugur á Hómurum í húsbyggingum þrátt fyrir tal um kreppu og niðursveiflu á fasteignamarkaðnum.  Átta umsóknir bárust t.d. í lóð í Hjallatanganum sem auglýst var til umsóknar nú fyrir stuttu.  Þá voru lagðar fram þrjár umsóknir um byggingaleyfi frá einstaklingum á síðasta fundi skipulags- og bygginganefndar 12.ágúst. Meira...


Síða 64 af 144: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116 - 117 - 118 - 119 - 120 - 121 - 122 - 123 - 124 - 125 - 126 - 127 - 128 - 129 - 130 - 131 - 132 - 133 - 134 - 135 - 136 - 137 - 138 - 139 - 140 - 141 - 142 - 143 - 144





21. júní:
- Sólstöðuganga á Hreggnasa í Þjóðgarðinum kl.21


22. júní:
- Lífsbjörg undir Jökli sólstöðuganga

- Opnun í Leir 7 Hönnun í tré kl. 14


24. júní:
- Orgelstykki Friðrik Vignir Stefánsson


25. júní:
- 16.unglingalandsmót UMFÍ Kynningarfundur í íþróttahúsinu kl. 18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei