Fimmtudagur 8. maí 2008
Ferjan Baldur – engar ferðir föstudaginn 9. maí.
Ljósm.Haukur L.Hauksson.Af óviðráðanlegum orsökum tefst koma Ferjunnar Baldurs úr slipp um 1 sólarhring þar sem rangir varahlutir voru afgreiddir erlendis frá.
Því verða engar ferðir yfir Breiðafjörð föstudaginn 9. maí. Farin verður ein ferð í Flatey frá Stykkishólmi þennan dag kl. 17:30.
Meira...
Fimmtudagur 8. maí 2008
Vör frumkvöðull Vesturlands 2007
Sjávarrannsóknarsetrið Vör í Ólafsvík var af Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, valið frumkvöðull Vesturlands fyrir árið 2007. Vör hlaut verðlaunin fyrir öflugt rannsóknarstarf á lífríki Breiðarfjarðar.
Meira...
Fimmtudagur 8. maí 2008
Vegaframkvæmdir á Vatnaleið
Nú eru í gangi lagfæringar á slitlagi vegarins yfir Vatnaleiðina. Ekki er um stórar framkvæmdir að ræða, einungis verið að setja nýtt slitlag á nokkra kafla hér og þar á leiðinni. Það er því ekki um tafir á umferð að ræða en réttara að aka aðeins hægar á þeim köflum því yfirborðið er laust.
Miðvikudagur 7. maí 2008
Konungleg heimsókn í Stykkishólm

Í logninu sem nú er í Stykkishólmi og við fuglasöng komu danski krónprinsinn Friðrik og krónprinsessan Mary ásamt forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni og frú Dorrit Mousaieff á tólfta tímanum í opinbera heimsókn hingað í Stykkishólm. Hófst heimsóknin á viðkomu í Grunnskóla Stykkishólms þar sem flutt var dagskrá af nemendum og kennurum tónlistarskóla Stykkishólms og grunnskólans. Að því loknu vari haldið í Vatnasafn Roni Horn og er myndin tekin við það tækifæri.
Mánudagur 5. maí 2008
Vantar fólk tll að leika í auglýsingu í Stykkishólmi
Í næstu viku verður tekin hér auglýsing fyrir Kellogs Kornflakes og kom Stykkishólmur með mjög stuttum fyrirvara inn í þetta verkefni sem tökustaður. Fyrirhugað var að taka auglýsinguna á Seyðisfirði og allt orðið klárt þar nema náttúruöflin sem komu í veg fyrir tökur þar sökum snjóa. Það þurfti því að finna nýjan stað og ljósmyndari gerður út af örkinni að taka myndir af stöðum sem gætu hentað og það fór svo sem oft áður að Hólmurinn heillaði leikstjórann en hann er ítalskur.
Meira...
Laugardagur 3. maí 2008
Baldur í slipp
Ferjan Baldur mun ekki fara neinar ferðir yfir Breiðafjörðinn tímabilið 4.-8.maí vegna þess að ferjan mun verða í slipp í árlegu viðhaldi á þeim tíma. Þetta er tveimur vikum fyrr en upphaflega stóð til og er vegna óviðráðanlegra orsaka. Ferðir verða þó í Flatey á þessu tímabili. Nánari upplýsingar er að fá hjá
Sæferðum.
Föstudagur 2. maí 2008
Unnið við Höfðagötu
Framkvæmdir við austurenda Höfðagötu eru nú í fullum gangi en sá hluti hefur enn ekki verið lagður bundnu slitlagi. Nú er unnið við jarðvegsskipti og endurnýjun lagna í og gatan þannig gerð klár fyrir yrfiborðsfrágang síðar á árinu. Það eru BB&Synir sem sjá um framkvæmdirnar og er áætlað að þeim ljúki nú 15.maí.
Meira...
Fimmtudagur 1. maí 2008
Siglingar um Breiðafjörð og ferðaþjónustan
Sturla Böðvarsson forseti Alþingis skrifar
Ég hef haldið því fram áður að siglingar Sæferða með ferðamenn um
Breiðafjörð síðustu tuttugu árin sé eitt merkilegasta framtak í
ferðamálum okkar Íslendinga. Uppbygging og markaðssetning siglinganna
um Breiðafjörð jafnast á við Bláa Lónið og jarðböðin við Mývatn sem
draga til sín þúsundir ferðamanna ár hvert.
Meira...
Síða 70 af 144:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 - 70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114 -
115 -
116 -
117 -
118 -
119 -
120 -
121 -
122 -
123 -
124 -
125 -
126 -
127 -
128 -
129 -
130 -
131 -
132 -
133 -
134 -
135 -
136 -
137 -
138 -
139 -
140 -
141 -
142 -
143 -
144