Stykkishólmspósturinn
23. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Sunnudagur 13. janúar 2008
Snæfell sigraði Keflavík
Snæfell sigraði Keflavík í kvöld í 8.liða úrslitum Lýsingarbikarsins 86-84 eftir æsispennandi lokamínútur og Keflavík var í baráttunni allt fram á síðustu sek. Snæfell er þar með komið í fjórðungsúrslitin ásamt Skallagrími sem lagði ÍR í kvöld 83-80, Njarðvík sem sigraði KR 106-90 og Fjölni sem lagði Þór Þorlákshöfn í gær 87-52.


Fimmtudagur 10. janúar 2008
Bruggmeistari í heimsókn

Eins og fram hefur komið í Stykkishólms-Póstinum er undirbúningur kominn á fullt skrið hjá Miði brugghúsi á Hamraendum.  S.l. þriðjudag þegar blaðamaður leit við í höfuðstöðvum fyrirtækisins var þar góður gestur í heimsókn að kynna sér aðstæðurnar.  Meira...


Fimmtudagur 10. janúar 2008
Íslandsmótið í Pítró 2007
Íslandsmótið í Pítró 2007 var haldið að Skildi föstudagskvöldið 28. des sl..  Þátttaka var með því besta sem verið hefur og spiluðu 18 pör.  Spilamenn komu víða að m.a úr höfuðborginni til að sækja þennan menningarviðburð í Helgafellssveit. Meira...


Fimmtudagur 10. janúar 2008
Reykvíkingar sólgnir í Stykkishólms-Póstinn?
Blaðið sem kom út í dag er að þessu sinni prentað hjá Steinprenti í Ólafsvík.  Þaðan átti það að koma með póstbíl s.l. nótt hingað í Stykkishólm.  Einhver huldumaður hefur ásælst blaðið því það fór gott lengra - eða alla leið til Reykjavíkur!  Af þeim sökum nær það ekki í dreifingu í dag en verður borið út af Íslandspósti í fyrramálið. 


Miðvikudagur 9. janúar 2008
Síldin laðar að fleiri fugla
Árleg talning vetrarfugla hefur staðið yfir undanfarna daga vítt og breitt um landið í umsjón Náttúrufræðistofnunar Íslands.  Starfsmenn Háskólaseturs Snæfellsness og Náttúrustofu Vesturlands töldu þrjú svæði við sunnanverðan Breiðafjörð og það kom berlega í ljós að sú mikla síldargengd sem hefur verið í sunnanverðum Breiðafirði hefur laðað til sín fleiri fugla en hefur verið á þessum svæðum undanfarin ár.  Sjá má nánar á vef Náttúrustofu Vesturlands


Sunnudagur 6. janúar 2008
Kveikt í brennunni í kvöld
Kveikt verður í áramótabálkestinum við Vatnsásinn kl.20:30 í kvöld. Björgunarsveitin Berserkir verður einnig með flugeldasýningu í boði Harðar Sigurðssonar (Hödda), Kaupþings banka hf., og Stykkishólmsbæjar.


Þriðjudagur 1. janúar 2008
GLEÐILEGT ÁR
STYKKISHÓLMS-PÓSTURINN ÓSKAR HÓLMURUM OG LESENDUM SÍNUM NÆR OG FJÆR GLEÐILEGS ÁRS OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI, MEÐ KÆRUM ÞÖKKUM FYRIR SAMSTARFIÐ Á LIÐNU ÁRI.


Mánudagur 31. desember 2007
Brennunni frestað
Vegna slæmrar veðurspár í kvöld og nótt hefur verið ákveðið að fresta brennunni við Vatnsásinn fram á þrettándann. Veðurstofan spáir hvössu og að hann haldi sér í suðaustan- og suðvestanáttinni sem er einnig mjög óhagstæð fyrir brennuna og gerði það að verkum að vindur stæði af henni og yfir bæinn. Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður vaxandi suðaustanátt í kvöld, 18-23 og talsverð rigning eða slydda um miðnætti. Í nótt snýst hann í suðvestanátt með snjókomu og lægir, en sunnan 13-18 fyrir hádegi og él, en heldur hægari seint á morgun. Hiti kringum frostmark.
Meira...


Síða 81 af 144: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116 - 117 - 118 - 119 - 120 - 121 - 122 - 123 - 124 - 125 - 126 - 127 - 128 - 129 - 130 - 131 - 132 - 133 - 134 - 135 - 136 - 137 - 138 - 139 - 140 - 141 - 142 - 143 - 144





24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar&#58; Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei