Stykkishólmspósturinn
24. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Mánudagur 31. desember 2007
Svipmyndir frá árinu
Við áramót er hefðin sú að líta yfir farinn veg.  Til glöggvunar á atburðum ársins hér í Stykkishólmi, hefur verið sett saman myndaalbúm á mjög óvísindalegan hátt upp úr safni Stykkishólms-Póstsins frá árinu sem er að líða.  Aðeins lítið brot af myndunum hefur ratað í prentaða útgáfu blaðsins og þá aðallega vegna þess að koma þarf á framfæri rituðu máli í svo miklum mæli að myndir detta út úr blaðinu á síðustu stigum í vinnsluferli þess.  Alls ekki er tekið efni úr öllum myndatökum sem farið hafa fram.. en þótti þó við hæfi að opna gátt inn í safnið.  
Hér er myndalbúmið. 
Vinsamlegast virðið höfundarrétt Stykkishólms-Póstsins á myndunum.



Mánudagur 24. desember 2007
Jólakveðja



Laugardagur 22. desember 2007
Fækkun í Stykkishólmi 2007
Samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar sem birtar voru í gær 21.desember, voru íbúar í Stykkishólmi 1.desember s.l. 1.103 og hefur því fækkað um 46 frá síðasta ári þegar íbúar í Stykkishólmi voru 1.149. Sé hinsvegar litið tíu ár aftur í tímann, til ársins 1997, þá voru íbúar Stykkishólms 1.263 sem þýðir fækkun á tíu árum um 12,66%. Meira...


Föstudagur 21. desember 2007
Mjöður með bruggmeistara og bjórnafn

Vinna er í fullum gangi hjá Miði Brugghúsi ehf við undirbúning fyrir uppsetningu bruggverksmiðjunnar á Hamraendum. Sum atriði hafa þurft tíma til að leysa og fá í gegn en nú eru flest grunnþættirnir að vera orðnir klárir. Meira...


Föstudagur 21. desember 2007
Ákvörðun nálgast í orgelmálum
Valnefndin fyrir kaup á nýju orgeli í Stykkishólmskirkju ætlar að ná því að viðhalda spennunni varðandi orgelkaupin fram yfir áramótin. Eins og áður hefur verið greint frá voru tveir orgelsmiðir valdir úr þeim fimm sem voru með í fyrsta útboðinu. Meira...


Föstudagur 21. desember 2007
Fjölbrautaskóli Snæfellinga útskrifar í fimmta sinn.
Föstudaginn 21. desember útskrifaði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 11 nemendur  með stúdentspróf, þar af luku 6 nemendur stúdentsprófi á  þremur og hálfu ári. Meira...


Föstudagur 21. desember 2007
Leikskólabörn flytja helgileik í nýja leikskólanum
Það er alltaf spenningur þegar helgileikurinn er færður upp fyrir jólin í leikskólanum.  Spennan var ekki síðri nú þegar sýningin fór fram á nýju sviði ef svo má segja því, hann var sýndur í nýja leikskólanum s.l. fimmtudag í fyrsta skipti. Meira...


Föstudagur 21. desember 2007
Stykkishólms-Pósturinn kominn í dreifingu
Þökk sé góðu fólki þá er Stykkishólms-Pósturinn nú kominn í dreifingu í Stykkishólmi.  Það voru Hjörtur og félagar í prentsmiðjunni Think sem brugðust skjótt við þegar leitað var til þeirra og prentuðu í snatri það sem á vantaði á upplagið.   Þá var eftir að koma prentuninni heim í Stykkishólm og þá hófst leit að Hólmurum sem voru í höfuðuborginni og það fréttist af Kidda og Möllu sem lögðu á sig aukasnúning og náðu í prentunina þannig að blaðið var komið í Stykkishólm í gærkvöldi og í dreifingu nú í morgun.  Stykkishólms-Pósturinn þakkar kærlega þessu góða fólki góð viðbrögð og velvilja í garð blaðsins, hafið þökk fyrir.    Meira...


Síða 82 af 144: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116 - 117 - 118 - 119 - 120 - 121 - 122 - 123 - 124 - 125 - 126 - 127 - 128 - 129 - 130 - 131 - 132 - 133 - 134 - 135 - 136 - 137 - 138 - 139 - 140 - 141 - 142 - 143 - 144





24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei