Fimmtudagur 6. desember 2007
Halli Toll fimmtugur
Haraldur Thorlacius, allt muligmand, Sundabakka 1a, er fimmtugur í dag. Stykkishólms-Pósturinn sendir honum sem og öðrum afmælisbörnum dagsins í Stykkishólmi árnaðaróskir.
Þriðjudagur 4. desember 2007
Jólin nálgast
Það verður æ jólalegra í Stykkishólmi eftir því sem nær dregur jólum. Í lok nóvember voru starfsmenn bæjarins mættir með hefðbundið jólaskraut á ljósastaura bæjarins. Og í gær settu þeir svo upp nýja stjörnu á Þinghúshöfðann en löng hefð er fyrir stjörnu þar þó hún hafi ekki verið sett upp hin síðari ár eftir að sú gamla gaf sig.
Meira...
Sunnudagur 2. desember 2007
Bátur sökk
Fanney RE-31, rúmlega 36 brl. eikarbátur sökk í höfninni við Skipavík aðfararnótt laugardagsins. Báturinn hefur sokkið milli kl.2 og 4 um nóttina því hann var á floti um 2 leytið en horfinn kl.4. Báturinn sem áður hét Bára var smíðaður í Stykkishólmi 1967 og var þá sennilega síðasti báturinn sem smíðaður var í slippnum við Smiðjustíginn.
Meira...
Föstudagur 30. nóvember 2007
Blessuð síldin
Hólmarar fengu smá nasasjón af síldveiðum þegar síldin fannst inn á Breiðasundinu. Það var ansi tilkomumikil sjón að sjá öll þessi skip við veiðar þarna inn á sundinu á milli eyjanna, dýpið var að vísu þokkalegt, yfirleitt um 20-40 faðmar þannig að grynningar voru ekki að trufla skipin þegar inn á sundið var komið.
Meira...
Föstudagur 30. nóvember 2007
Fimmtugir fagna
Bjössi Benna (Björn Benediktsson)Sundabakka 1, málari, blakari, hnitari og sitthvað fleira er fimmtugur í dag. Kristín Rut Helgadóttir Ásklifi 5 fagnar einnig fimmta tugnum í dag. Þau og önnur afmælisbörn dagsins í Hólminum, fá hamingjuóskir frá Stykkishólms-Póstinum.
Fimmtudagur 29. nóvember 2007
Snæfell gegn Skallagrími og Þór
Búið er að draga í næstu umferð í Lýsingarbikarnum í körfunni og mun karlalið Snæfells mæta liði Þórs Ak. á Akureyri helgina 7.-9.desember. Það var einnig dregið hjá stelpunum og Snæfellsstelpurnar voru heppnari þó um útileik sé að ræða þurfa einungis að fara í Borgarnes því þær mæta Skallagrími og sá leikur fer einnig fram 7.-9..des.
Meira...
Fimmtudagur 29. nóvember 2007
Jólastemmingin komin í Norska húsið
Norska húsið opnar í dag, sína árlegu jólaopnun sem orðin er partur af dagskrá hússins. Húsið verður opið daglega fram til jóla kl. 14.00-18.00. Í fyrra var einnig prufað að hafa opið á fimmtudagskvöldum og var almenn ánægja með það, þannig að nú verður opið á fimmtudagskvöldum í desember kl. 20.00-22.00.
Meira...
Fimmtudagur 29. nóvember 2007
Hring hótel Stykkishólmur
Það er ekki hægt að segja annað en að allt sé á tjá og tundri í Hótel Stykkishólmi núna en endurbætur eru nú komnar á fullt um allt hús.
Meira...
Síða 84 af 144:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 - 84 -
85 -
86 -
87 -
88 -
89 -
90 -
91 -
92 -
93 -
94 -
95 -
96 -
97 -
98 -
99 -
100 -
101 -
102 -
103 -
104 -
105 -
106 -
107 -
108 -
109 -
110 -
111 -
112 -
113 -
114 -
115 -
116 -
117 -
118 -
119 -
120 -
121 -
122 -
123 -
124 -
125 -
126 -
127 -
128 -
129 -
130 -
131 -
132 -
133 -
134 -
135 -
136 -
137 -
138 -
139 -
140 -
141 -
142 -
143 -
144