Stykkishólmspósturinn
20. júní 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Fimmtudagur 6. september 2007
Hótel Stykkishólmur til sölu

Þær fara víða sögurnar í bænum og ein er sú að búið sé að selja Hótel Stykkishólm.  Pétur Geirsson eigandi hótelsins var því inntur eftir því hvort einhver fótur væri fyrir sögunni.  Hann neitaði því, ekki væri búið að selja hótelið en vissulega væru ákveðnar viðræður í gangi um sölu þess en lengra væri málið ekki komið.



Miðvikudagur 5. september 2007
Biggi sjötugur
Gísli Birgir Jónsson trésmiður Skólastíg 18a er sjötugur í dag og fær árnaðaróskir frá Stykkishólms-Póstinum.


Föstudagur 31. ágúst 2007
Smá ,,Dash" af Flugfélagi Íslands

Það er ekki á hverjum degi sem stærri farþegaflugvélar sjást á flugi yfir Stykkishólmi hvað þá að þær lendi hér á flugvellinum.  Síðastliðinn laugardag heyrðist í flugvél sem hljómaði eins og þar færi stærri vél en fjögurra sæta Cessna.  Það sást til fólks þar sem það forðaði sér á hlaupum af golfvellinum minnugt þess þegar flugvél lenti þar fyrir ári eða svo.  Meira...


Miðvikudagur 29. ágúst 2007
Höfnin

Það er sem fyrr margt áhugavert í fundargerðum hinna ýmsu nefnda bæjarins nú í ágúst þó eitt erindi veki e.t.v meiri athygli en annað því það var tekið fyrir á þremur stöðum.  Það var umsókn Péturs Ágústssonar og Sæþórs Þorbergssonar um lóð við höfnina á grjótgarðinum við Árnasteina en það er litli garðurinn sem stendur inn í höfnina til móts við Súgandisey.  Meira...


Miðvikudagur 29. ágúst 2007
Hörkutólin taka á því

Þeir eru sterkir, karlmannlegir og engar kerlingar.  Þeir hugsa, allt að því íhuga.   Þeir tjá sig gjarnan í bundnu máli, þeir borða harðfisk og slátur í morgunmat.  Þeir klæðast fötum frá Dressman og skóm frá Heimahorninu. Meira...


Miðvikudagur 29. ágúst 2007
Lokun
Vegna ræsagerðar verður Snæfellsnesvegur 54 lokaður frá kl 13.00 til kl 17.00 í dag, austan við gatnamót Stykkishólmsvegar. Meira...


Föstudagur 24. ágúst 2007
Eldur kviknaði í bát í Skipavík

Það fór betur en á horfðist í fyrstu, í morgun, þegar eldur gaus upp við vinnu í bátnum Guðmundi Jenssyni SH frá Ólafsvík, þar sem hann lá bundinn við bryggjuna í Skipavík.  Starfsmenn Skipavíkur voru að vinna við suðuvinnu aftur á bátnum þegar neisti hefur líklega læst sig í einungrun á stálbitum í bátnum.  Einangrunin er einskonar úritanhvoða sem hefur verið sprautað á stálið sem einangrun þegar báturinn var smíðaður á sínum tíma. Meira...


Föstudagur 24. ágúst 2007
Velheppnaðir Danskir dagar

Það er ekki hægt að segja annað en að flest hafi gengið upp á Dönsku dögunum þetta árið og annað árið í röð var frábært veður alla dagana.  Góða veðrið kom e.t.v. ekki svo á óvart eftir þá veðurblíðu sem er búin að vera í allt sumar en það er samt alltaf sá þáttur sem hefur mest áhrif ef það er ekki gott.  Meira...


Síða 92 af 144: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116 - 117 - 118 - 119 - 120 - 121 - 122 - 123 - 124 - 125 - 126 - 127 - 128 - 129 - 130 - 131 - 132 - 133 - 134 - 135 - 136 - 137 - 138 - 139 - 140 - 141 - 142 - 143 - 144





21. júní:
- Sólstöðuganga á Hreggnasa í Þjóðgarðinum kl.21


22. júní:
- Lífsbjörg undir Jökli sólstöðuganga

- Opnun í Leir 7 Hönnun í tré kl. 14


24. júní:
- Orgelstykki Friðrik Vignir Stefánsson


25. júní:
- 16.unglingalandsmót UMFÍ Kynningarfundur í íþróttahúsinu kl. 18


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei