Stykkishólmspósturinn
21. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Föstudagur 29. júní 2007
Snjógæs verpur við Breiðafjörð

Um miðjan júní barst Háskólasetri Snæfellsness og Náttúrustofu Vesturlands ábending um mögulegt varp snjógæsar á eyju í Breiðafirði. Var strax ákveðið að Jón Einar Jónsson (HS) kannaði málið, enda rannsakaði hann snjógæsir í Louisiana, Bandaríkjunum, á árunum 2000-2005. Meira...


Fimmtudagur 28. júní 2007
Gunnhildur íþróttamaður ársins

Gunnhildur Gunnarsdóttir var kjörinn íþróttamaður ársins hjá Snæfelli fyrir árið 2006. Gunnhildur fékk afhenta síðbúna viðurkenningu í gær á frjálsíþróttamóti HSH á Stykkishólmsvelli.  Gunnhildur hefur  alla tíð skarað fram úr  á meðal jafnaldra sinna í körfuknattleik og einnig í frjálsum íþróttum.  Meira...


Fimmtudagur 28. júní 2007
Jónsmessuganga á Snæfellsjökul

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull stóð fyrir jónsmessunæturgöngu á Snæfellsjökul um helgina. Lagt var af stað frá Jökulhálsi í um 600 m hæð kl. 21 um kvöldið og var toppinum náð á rúmum 3 klukkutímum. Meira...


Miðvikudagur 27. júní 2007
Vefmyndavélin komin upp aftur

Nú er búið að setja upp gömlu vefmyndavélina á ný.  Hún er nánast á sama stað og áður þ.e. á húsnæði Vatnasafnsins en nú reyndar utandyra.    Meira...


Miðvikudagur 27. júní 2007
Hótel Breiðafjörður seldur

Það reyndist rétt tilgetið hjá Stykkishólms-Póstinum í síðustu viku að eigendur Farfuglaheimilisins hafi keypt Hótel Breiðafjörð.  Farfuglaheimilið Sjónarhóll ehf er því orðinn nýr eigandi að Hótel Breiðafirði  Meira...


Mánudagur 25. júní 2007
Hólmari hleypur til sigurs
Það er ekki hlaupið að því að hlaupa maraþon, í fyrsta skiptið og hvað þá að sigra það.  Það lék þó Hólmarinn brottflutti Sólrún (Sóla) Inga Ólafsdóttir (Óla Geirs) þegar hún skellt sér í Mývatnsmarþonið 23.júní síðastliðin. Meira...


Föstudagur 22. júní 2007
Hámenntaðir Hólmarar

Nýstúdentar frá MA, frá vinstri: Ásta Hermannsdóttir (málabraut) Guðmundur Ólafur Gunnarsson (náttúrufr.braut) Anna Harðardóttir (náttúrufr.braut).
Í Stykkishólms-Póstinum í vor var greint frá útskrift Hólmara úr Fjölbrautarskóla Snæfellsness og Háskóla Akureyrar. 
S.l. helgi útskrifuðust 3 stúdentar frá Stykkishólmi frá Menntaskólanum á Akureyri og það með glæsibrag.  Einnig luku 2 Hólmarar námi í Háskóla Íslands. Meira...


Föstudagur 22. júní 2007
Ellert Kristinsson 60. ára í dag

Athafnamaðurinn og gleðigjafinn Ellert er 60. ára í dag og óskar Stykkishólms-Pósturinn honum til hamingju með daginn.


Síða 98 af 144: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116 - 117 - 118 - 119 - 120 - 121 - 122 - 123 - 124 - 125 - 126 - 127 - 128 - 129 - 130 - 131 - 132 - 133 - 134 - 135 - 136 - 137 - 138 - 139 - 140 - 141 - 142 - 143 - 144