Stykkishólmspósturinn
20. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 16. maí 2007
Styrkir úr pokasjóði
Pokasjóður útdeildi styrkjum síðustu helgi til umhverfis-, menningar-, íþrótta- og mannúðarmála og var ríflega 100 milljónum úthlutað í þetta skiptið.  Meðal styrkþega voru Stykkishólmskirkja sem hlaut 500.000 kr. í nýtt pípuorgel í Stykkishólmskirkju.  Meira...


Laugardagur 12. maí 2007
Kosningar ganga vel
Kjörsókn hefur verið með ágætum í Stykkishólmi í dag og var nokkur biðröð á kjörstað þegar litið var við þar í dag. Klukkan hálffimm var kjörsóknin orðin um 35%.


Fimmtudagur 10. maí 2007
Sönggleði í Stykkishólmskirkju
Kandíski háskólakórinn, University of Alberta Concert choir, undir stjórn Dr Debra Cairns er á leið um landið. Kórinn heldur ferna tónleika á Íslandi til styrktar langveikum börnum á Íslandi, í Stykkishólmskirkju í kvöld 10.maí kl.20:00.  Meira...


Fimmtudagur 10. maí 2007
Aftur hefðbundin dagskrá á sjómannadaginn

Það vakti óneitanlega athygli í fyrra þegar sjómannadagsráð ákvað að ekki væri ástæða til að halda hefðbundna skemmtidagskrá á sjómannadaginn.  Sjómannadagsráðið í ár hefur hinsvegar ákveðið reyna að koma hefðbundinni dagskrá á að nýju.   Meira...


Miðvikudagur 9. maí 2007
Vinstri græn útvörpuðu

Nú styttist í kosningarnar á laugardaginn og fjörið eykst að sama skapi.  Ótal umræðuþættir í útvarpi og sjónvarpi með fulltrúum allra framboðanna sem hafa karpað hver ofan í annan þannig að lítið hefur komið út úr þeim þáttum  fyrir almennan kjósanda.  Meira...


Laugardagur 5. maí 2007
Að verða klárt

Þau eru mörg handtökin sem þarf að vinna þegar um 220 manna veislu er að ræða, svo ekki sé talað um ef hún er haldin í tjaldi á helstu umferðargötu bæjarins. Allt er þó að verða klárt nú og þegar Stykkishólms-Pósturinn leit við um kl.14 var að mestu búið að dekka öll borð og ljóst að þó tjaldið sé stórt þá verður nokkuð þétt setið. Meira...


Föstudagur 4. maí 2007
Hrun hörpudiskstofnsins
Það hefur verið mikið spáð og spekúlerað í hvað valdi hruni hörpudiskstofnsins í Breiðafirði.  Þá gjarnan nefndar tvær ástæður þ.e. hækkaður sjávarhiti og hinsvegar sýking.  Meira...


Föstudagur 4. maí 2007
Allt að gerast

Það var mikið líf í Stykkishólmi í dag enda undirbúningur fyrir veislu aldarinnar í tilefni af formlegri opnun Vatnasafnsins, á lokametrunum. Bæjarstarfsmenn að snyrta hér og þar og búið að loka gatnamótum í miðbænum þar sem menn voru á fullu við að reisa gríðarmikið tjald sem mun hýsa þessa rúmlega 200 manna veislu. Tjaldið liggur í L eftir Austurgötunni og yfir gatnamótin og upp Aðalgötu, nánast utan um Narfeyrarstofu sem mun sjá um veisluna. Meira...


Síða 101 af 144: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86 - 87 - 88 - 89 - 90 - 91 - 92 - 93 - 94 - 95 - 96 - 97 - 98 - 99 - 100 - 101 - 102 - 103 - 104 - 105 - 106 - 107 - 108 - 109 - 110 - 111 - 112 - 113 - 114 - 115 - 116 - 117 - 118 - 119 - 120 - 121 - 122 - 123 - 124 - 125 - 126 - 127 - 128 - 129 - 130 - 131 - 132 - 133 - 134 - 135 - 136 - 137 - 138 - 139 - 140 - 141 - 142 - 143 - 144





20. maí:
- Annar í Hvítasunnu

- Opið í Nesbrauð 9-16

- Fermingarmessa í Helgafellskirkju kl. 14

- Heitt á könnunni hjá Huldu í Safnaðarheimilinu kl. 15-17


21. maí:
- Útisundlaug lokuð v. viðgerða


24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei