Stykkishólmspósturinn
25. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Forsíða > Aðsent efni > Sjálfsmat í Grunnskólanum í Stykkishólmi
16. apríl 2009
Sjálfsmat í Grunnskólanum í Stykkishólmi

Í lögum um grunnskóla segir að hver grunnskóli skuli meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs. Regluramminn um aðferðafræðina hefur mörgum þótt heldur stífur og þungur í vöfum og því hafa margir grunnskólar valið að leggja áherslu á útvalda þætti sem þóttu gera mest gagn fyrir innra starf hvers skóla, þó svo að með því móti hafi þeir ekki fengið fullnægjandi einkunn í úttekt ráðuneytisins.  Þannig hefur því verið háttað í Grunnskólanum í Stykkishólmi undanfarin ár. Í vetur var þó ákveðið að ljúka vinnu við sjálfsmat skólans og var teymishópur kennara stofnaður með það að markmiði að vinna og fylgja eftir matsáætlun fyrir skólann. Matsáætlun fyrir sjálfsmat frá hausti 2008 til vors 2011 var lögð fyrir og samþykkt hjá bæjarstjórn og menntamálaráðuneyti á haustönn.

        Við höfum tekið í notkun rafræna spurningalista sem við höfum lagað að okkar umhverfi hér. Hugmynda-  og aðferðafræðin sem við vinnum eftir heitir Skólamat og er eftir Valdimar Helgason og Sif Vígþórsdóttur. Það er sérsniðið fyrir íslenska skóla og hefur verið útfært á rafrænan hátt. Kerfið hefur fengið þá umsögn að það væri það besta sem í boði væri til að ná yfir alla þá þætti sem rannsóknir hafa sýnt að séu mikilvæg atriði varðandi hvað einkennir góða skóla. Við erum afskaplega ánægð með þetta kerfi og höfum þegar lagt fyrir og unnið úr spurningalistum til alls starfsfólks við skólann. Fyrsti spurningalistaflokkurinn heitir „Líðan og samskipti“. Sá flokkur er endurtekin árlega til samanburðar. Aðrir flokkar eru lagðir fyrir á 3ja ára fresti. Þeir flokkar heita „Almennt um skólann“, „Nám og kennsla“, „Starfið í skólanum“ og „Stjórnun, stefnumörkun og skipulag“. Vonumst við til þess að sú mikla vinna sem lögð er í vinnu við sjálfsmat skili sér í betri skóla og ánægðari nemendum, foreldrum og starfsfólki. Nánari upplýsingar um Skólamat er að finna á skolamat.is.

        Vinnu við að aðlaga spurningalista fyrir nemendur og foreldra er lokið og munu foreldralistarnir verða sendir út á netföng foreldra innan skamms. Vil ég hér með óska eftir samstarfi foreldra og benda á mikilvægi þess að svara spurningalistunum því aðeins með ykkar svörum fáum við tækifæri til að bregðast við og gera betur þar sem við á. Einnig hefur það jákvæð áhrif á skólastarfið að finna ánægju foreldra þar sem þeir sjá tilefni til þess. Nemendur munu svara sínum spurningalistum á skólatíma. Niðurstöður úr þessum spurningalistum munu verða birtar á heimasíðu skólans.

Þeir sem hafa áhuga á því að kynna sér þessi mál nánar eru hvattir til að hafa samband við Elínu, deildarstjóra sérkennslu.

 

                                                                 Bestu kveðjur frá Grunnskólanum í Stykkishólmi

                                                                         
                                                                                       Elín Kristinsdóttir