Efling Stykkishólms hélt stjórnarfund mánudaginn 19.mars og var þar ákveðið að auglýsa eftir framkvæmdastjóra fyrir félagið. Í fyrrasumar var starfandi framkvæmdastjóri í 6 mánuði og gaf það mjög góða raun. Félagar Eflingar Stykkishólm eru um 60 talsins og fleiri eru líka velkomnir. Ákveðið var að boða til aðalfundar mánudaginn 16. apríl n.k.
Það er von stjórnar að bæjarbúar verði duglegir að mæta þá og láta málefni bæjarins okkar til sín taka. Það sem rætt var um á síðasta stjórnarfundi var meðal annars: Undirbúningur fyrirkomulag og framkvæmd Danskra Daga núna í haust 2012.Bætt samstarf við atvinnumálanefnd, og hvernig megi skapa betra aðgengi inn á heimasíðu Eflingar út frá heimasíðu Stykkishólmsbæjar. Upplýst var um það hvernig Unaðsdagarnir í Stykkishólmi hefðu gengið fyrir sig undanfarið og fjallað um gerð og vinnu við göngustíga og upplýsingar um gönguleiðir.
Ákveðin var sameiginleg pöntun á möppum fyrir gististaði og fleiri til að setja í samræmdar, markvissar og greinargóðar upplýsingar um Stykkishólm og hvað sé hægt að dunda sér við hér. Styrkur kom hingað í Stykkishólm til að lengja ferðaþjónustutímann og rætt var um hvernig megi notfæra sér EDEN verðlaunin til markaðssetningar fyrir bæinn. Fjallað var um Ferðavakann, nýtt gæðakerfi í ferðaþjónustu, og að í pípunum séu skipulagðar hópferðir hjólreiðafólks út frá Stykkishólmi. Samþykkt var einnig að hafa samband við Listaháskóla Íslands til að vinna að ákveðnu verkefni hér í bæ.
Eins og hér má sjá er ýmislegt að gerast og vill stjórn endilega hvetja sem flesta til að koma með hugmyndir að hverju einu sem til heilla mætti horfa fyrir bæinn okkar.
Svanborg Siggeirsdóttir formaður