Í júní og júlí verður rekin sumarþjónusta fyrir fötluð börn og ungmenni í Ásbyrgi. Starfsemin verður frá kl. 8-16 virka daga. Þau sem hafa aldur til fara í unglingavinnuna en hin verða við leik og störf í Ásbyrgi. Lögð verður áhersla á hreyfingu, sund og gleði.
Að lokinni sumarþjónustunni í Ásbyrgi verður þar rekin dagþjónusta og vinnutengd verkefni. Nú þegar við erum komin með varanlegt húsnæði vantar okkur ýmislegt. Þannig að ef þið eigið eitthvað sem hefur lokið sínu hlutverki hjá ykkur og við hugsanlega gætum nýtt, þá þiggjum við allt slíkt með þökkum t.d. notuð húsgögn eða eldhúsáhöld.
Í þessari starfsstöð ætlum við að leggja áherslu á endurnýtingu og tökum því á móti eftirfarandi hlutum þar:
- Notuðum bómullarbolum
- Rúmfötum, dúkum, gardínum
- Kertaafgangar, tóm sprittkerti
- Sultukrukkur, crayola litir
- Umslög með frímerkjum á
- Gleraugu
Með kveðju og þökk,
Hanna Jónsdóttir