11. júlí 2012
Hugmyndabankinn – losun 3 júlí.
Hugmyndabankinn var losaður 3 júlí. Úr kassanum komu 23 miðar með eftirfarandi hugmyndum / tillögum.
- Gera hreinsunarátak á Reitarveginum.
- 16 sept dagur íslenskrar náttúru. Halda upp á daginn með gönguferð / fyrirlestri.
- Íbúaþing með ungu fólki þar sem fulltrúar frá bænum hittu ungt fólk og tækju stöðuna á því hvað það væri að gera og hvaða tækifæri eru til staðar í sveitarfélaginu fyrir þau.
- Snyrta kirkjugarðinn.
- Bæta við sorptunnum til að hægt sé að flokka rusl í kirkjugarðinum.
- Það er einmana skúr á Reitarvegi sem einu sinni var hjall sem þarfnast aðhlynningar.
- Nauðsynlegt er að taka til og hreinsa í kringum minnismerkið ( skútuna) á höfninni.
- Hafa opið námskeið fyrir Hólmara um það hvernig og hvenær sé best að planta trjám í görðum.
- Auka flokkun á sorpi hjá fyrirtækjum í Hólminum.
- Taka til í Maðkavík.
- Vera með átak í bæjarfélaginu til þess að fá fleiri Hólmara til að fara í sundlaugina.
- Laga göngustíginn á milli Árnatúns og Lágholts.
- Átak sem myndi miða að því að fá sumarhúsaeigendur til að dveljast lengur í húsum sínum í Hólminum og fá þannig meira líf í þau.
- Taka Reitarveginn í gegn í eitt skipti fyrir öll.
- Þakklæti fyrir að vera komin í Hólmgarð með 17 júní.
- Séð verði til þess að menn þvoi sér áður en þeir fara út í laug.
- Maðkavík. Endurbyggja gömlu steinbryggjuna í norðanverði víkinni og setja þar upp upplýsingastand um kríuvarpið í Gullhólma.
- Skora á bæjaryfirvöld að sýna kirkjugarðinum virðingu og láta hann líta vel út.
- Til að auka lífsgæði bæjarbúa þyrfti nauðsynlega að skoða hvort ekki væri hægt að vera með nýjan fisk til sölu. Þó ekki væri nema hálfan dag tvisvar í viku. Sorglegt að þurfa að fara úr sjávarplássi til Reykjavíkur til að kaupa ferskan fisk.
- Það væri gaman ef kirkjugarðurinn væri listigarður sem gaman væri að koma í.
- Skora á bæjaryfirvöld að hlutast til um aðgerðir við hús sem eru illa farin og mikið lýti á bænum. T.d. eru tvö þannig við Skólastíg og eflaust víðar.
- Mér finnst vaðlaugin ofnotuð af fullornu fólki. Var hún ekki upphaflega hugsuð fyrir börn ?
- Heiti : Samþætting á þjónustu. Markhópur : Byrja á enskum unglingum. Verklýsing: Opna og samþætta frístundaaðstöðu ( sund sérstaklega og sjúkrahús, björgunarsveit
- taka á móti og endurhæfa breska unglinga. Árangur: læra sund x heilbrigði. Atvinnuskapandi. KT 8940422.
Þessum miðum var skilað til starfsmanna ráðhúsins.
Hanna Jónsdóttir.