Strætó á Vestur- og Norðurlandi
Strætó bs. hefur akstur milli Reykjavíkur og Akureyri þann 1. september og frá og með 2. september stækkar þjónustusvæðið enn meira þegar áætlunarakstur hefst til Stykkishólms, Búðardals, Hólmavíkur og Reykhóla. Einnig verður boðið upp á ferðir til Grundarfjarðar, Ólafsvíkur, Hellissands, Rifs, Reykholts, Hvammstanga og Skagastrandar en þær ferðir verður að panta sérstaklega amk. tveimur tímum fyrir brottför
Fargjald miðast við fjölda gjaldsvæða sem farið er yfir og þarf að nota jafn marga farmiða og fjöldi gjaldsvæða segir til um. Sem dæmi má nefna að tíu gjaldsvæði eru á milli Reykjavíkur og Staðarskála. Ef greitt er með farmiðum þarf því að nota tíu farmiða og kostar ferðin þá 3.000 kr. fyrir fullorðna, 1.150 kr. fyrir ungmenni, 450 kr. fyrir börn og 1.050 kr. fyrir öryrkja og aldraða. Staðgreiðsluverð sömu ferðar er 3.500 kr.
Boðið er upp á þráðlaust net í öllum vögnum sem aka vestur og norður nema þeim sem eru hluti af pöntunarþjónustu Strætó. Þá hefur Strætó tekið í notkun svokallað rauntímakort þar sem nýjasta tækni gerir viðskiptavinum kleift að sjá staðsetningu vagnanna hverju sinni. GPS-búnaður sér til þess að hægt er að fara á strætó.is og innan skamms einnig í snjallsíma og fylgjast með ferðum vagnanna.
Hægt er að skoða bækling um þjónustuna hér: www.straeto.is/media/leidakerfi-haust-2012/Vestur-og-nordurland_baeklingur.pdf