Stykkishólmspósturinn
25. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Hér birtist það efni sem sent er Stykkishólms-Póstinum til birtingar.  Sumt af því birtist að hluta eða að öllu leyti í prentuðu útgáfunni annað eingöngu hér á vefsetri blaðsins.

Miðvikudagur 10. október 2012
Fréttatilkynning frá Samfylkingunni í Norðvesturkjördæmi

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi efnir til flokksvals um sæti á framboðslista flokksins vegna komandi alþingiskosninga. 

Meira...

Miðvikudagur 10. október 2012
Lúðrasveitin í möppumó

Lúðrasveitina vantar nú nauðsynlega möppur og búninga sem eru líklega inni í skápum eða í skúffum heima hjá “gömlum” félögum. Við biðjum félaga sem hafa hætt að kíkja í hirslur og vita hvort þar leynist ekki eitthvað af lúðrasveitardóti.  Vinsamlegast skilið því í tónlistarskólann sem fyrst.

Meira...

Miðvikudagur 10. október 2012
NorðURLJÓSIN 18. – 21. Október 2012

Eins og fólk hefur eflaust tekið eftir þá verður Menningarhátíðin Norðurljósin haldin í annað sinn í Stykkishólmi dagana 18. til 21. október nk. Fjölbreytt dagskrá verður sem hefst formlega með tónleikum í Stykkishólmskirkju á fimmtudagskvöldinu.

Meira...

Miðvikudagur 10. október 2012
Urðarmáni, minningar úr Breiðafirði

Um mánaðamótin október-nóvember 2012 kemur út hjá Uppheimum bókin Urðarmáni eftir Ólaf Ásgeir Steinþórsson. Þar rifjar höfundur upp æsku sína og ungdómsár við Breiðafjör

Meira...

Miðvikudagur 10. október 2012
(Æðisleg) ljóð í Vatnasafninu

Þann 13. október ætla ljóðskáldin a rawlings og Eiríkur Örn Norðdahl að sameina (æðislega) krafta sína og flytja (æðisleg) ljóð í Vatnasafninu á Stykkishólmi. Viðburðurinn (æðislegi) hefst klukkan 19.15 og stendur ekki lengur en í tvær klukkustundir og ekki skemur en eina og hálfa. Skáldin munu skiptast á að lesa upp og gera svo eitthvað (æðislegt) saman undir lokin.

Meira...

Miðvikudagur 3. október 2012
Síðustu sumartónleikarnir

Það styttist í annan endann á sumrinu og framundan eru síðustu tónleikar í sumartónleikaröð Stykkishólmskirkju.  Tónleikarnir verða sunnudaginn 14. október kl. 17.  Tónleikarnir eru portretttónleikar tónskáldsins Hallvarðs Ásgeirssonar og verður þar margt forvitnilegt á efnisskránni eftir Hallvarð sem kemur með kammersveit sína sem leikur svokallaða andrýmistónlist (ambience) og nýtir í flutninginn hljóðfæri og tækni af ýmsu tagi.  Sjálfur leikur hann á gítar en Hallgrímur Jónas Jensson leikur á selló og dórófón og Alexandra Kjeld leikur á kontrabassa og fiðlu. 

Meira...

Miðvikudagur 3. október 2012
Þróunarfélag Snæfellinga opnar heimasíðu

Fyrir skömmu barst með bæjarblöðunum Jökli og Stykkishólmspóstinum  dreifibréf frá Þróunarfélagi Snæfellinga. Dreifibréfið kom einnig í Skessuhorninu. Í dreifibréfinu var kynnt Framtíðarsýn og stefnumótun Snæfellinga sem unnin var á vettvangi Þróunarfélagsins í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Atvinnuráðgjöf Vesturlands og ráðgjafafyrirtækið Netspor- rekstur og ráðgjöf.

Meira...

Miðvikudagur 3. október 2012
Flensan

Kæru Hólmarar og nærsveitungar.

Eins og fram hefur komið í fréttum og blaðagreinum undanfarið þá er að koma sá tími að flensubólusetningar fari að vera á dagskrá. Í bóluefninu í ár eru fjórir veirustofnar og veita þeir vörn gegn þeim flensuafbrigðum sem hafa geisað um heiminn síðustu ár.

Meira...

Miðvikudagur 3. október 2012
Ágæta stuðningsfólk Snæfells...

Mánudagur 1. október 2012
Það skiptir máli hverjir stjórna.

Í stórviðrum reynir á burðarþol mannvirkja og getu manna. 

Á því kjörtímabili sem senn er á enda hefur hrikt í stoðum samfélags okkar. 

Þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir tók við stjórnartaumum vorið 2009 beið hennar gríðarstórt verkefni:  Að bjarga Íslendingum frá örbirgð,  endurreisa hrunið fjármálakerfi og hefja nýja samfélagslega uppbyggingu.  

Hver hefði trúað því haustið 2008 að nú, fjórum árum síðar, væri hagvöxtur á Íslandi orðinn einn sá mesti sem þekkist í OECD löndum, verðbólgan komin niður fyrir 5%  og jöfnuður meiri en á góðæristímanum fyrir hrun? 

Meira...

Síða 12 af 42: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42





25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei