Stykkishólmspósturinn
25. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Hér birtist það efni sem sent er Stykkishólms-Póstinum til birtingar.  Sumt af því birtist að hluta eða að öllu leyti í prentuðu útgáfunni annað eingöngu hér á vefsetri blaðsins.

Miðvikudagur 15. febrúar 2012
Leiklistarnámskeið hjá leikfélaginu Grímni

Vikuna 20. til 25. febrúar mun leikfélagið Grímnir bjóða upp á leiklistarnámskeið fyrir börn og fullorðna fáist næg þátttaka. Kennarinn á námskeiðinu er Hrafndís Bára Einarsdóttir. 

Meira...

Miðvikudagur 8. febrúar 2012
Hugmyndakassi fyrir alla

Eins og glöggir lesendur Stykkishólmspóstsins vita þá hafa Hebbarnir dundað sér við að hafa gaman af lífinu á ýmsan hátt.  Til að fá hugmyndir og  fjölbreytni í starfið þá höfum við hugmyndabanka. Í kassann koma allskyns tillögur að verkefnum.  Þá hefur oft komið til umræðu að svona kassi þyrfti að vera í bæjarfélaginu sem þjónaði þeim tilgangi að koma með hugmyndir og tillögur sem aukið geti lífsgæði okkar sem hér búum og eins þeirra sem hér fara um.  Þetta hefur verið rætt og rætt.  Nú er komið að því að framkvæma.  Kassinn er kominn og búinn að vera janúarmánuð í íþróttahúsinu.  Ætlunin er að prófa þetta í nokkra mánuði og sjá hverju þetta skilar okkur.  Á kassann er letrað stórum og skýrum stöfum.

Þessi hugmyndabanki hefur það hlutverk að taka við hugmyndum um bætt lífsgæði okkar Hólmara, sem og þeirra sem hingað sækja.

Óskað er eftir athugasemdum um hvað betur mætti fara auk nýrra hugmynda um allt milli himins og jarðar.

Kassinn verður tæmdur einu sinni í mánuði og hugmyndunum komið til starfsmanna ráðhússins.

Með kveðju og von um góð viðbrögð,

Hebbarnir.

Meira...

Miðvikudagur 8. febrúar 2012
Vörur frá Kenía í Stykkishólmi

Flóttamaðurinn Paul Ramses og fjölskylda eru væntanleg til Stykkishólms dagana 10-12. febrúar að selja allskyns fallega muni frá Kenía. 

Meira...

Miðvikudagur 8. febrúar 2012
OA deild stofnuð í Stykkishólmi

,,OA (Overeaters Anonymous) er félagsskapur karla og kvenna sem samhæfa reynslu sína, styrk og vonir svo að þau megi leysa sameiginlegt vandamál sitt og séu fær um að hjálpa öðrum til að losna frá matarfíkn.“ 

Meira...

Miðvikudagur 8. febrúar 2012
Fyrsti fundur ársins hjá Kvenfélaginu Hringnum

Kvenfélagið Hringurinn hélt sinn fyrsta fund í janúar s.l. og var það jafnframt aðalfundur og stjórnarskipti og samkvæmt lögum félagsins var kosið í  varastjórn.

Meira...

Miðvikudagur 1. febrúar 2012
Þróunarfélag Snæfellinga ehf. Kynning á hlutverki og stefnu félagsins.

Sturla Böðvarsson skrifar

Þróunarfélag Snæfellinga ehf.

Kynning á hlutverki og stefnu félagsins. 

Meira...

Fimmtudagur 19. janúar 2012
Viltu vera memm
Sælt veri fólkið. Ég vildi nota tækifærið í upphafi ársins til að segja frá stöðu mála hjá leikfélaginu Grímni hér í Stykkishólmi. Fyrst ber að nefna að ný stjórn er búin að taka við keflinu af þeim Guðmundi Braga, Ingu og Dóru sem hafa staðið vaktina undanfarin ár (og rúmlega það). Núverandi stjórn er skipu ungu og orkumiklu fólki og til að gera starfið skilvirkara þá höfum við skilgreint hlutverk hvers og eins stjórnarmeðlims. Stjórninni er stýrt af Bjarka Hjörleifssyni formanni, Hafrúnu Bylgju Guðmundsdóttur varaformanni, Unu Kristínu Pétursdóttur gjaldkera, Benedikt Óskarssyni Markaðsstjóra, Hrafnhildi Hlín Karlsdóttur umsjónamanni búninga, hárs og förðunar, Víglundi Jóhannssyni Tækjastjóra og Svövu Gunnarsdóttur viðburðarstjóra.  Meira...

Fimmtudagur 19. janúar 2012
Góður árangur

Lilja Rafney Magnúsdóttir 6. þingmaður Norðvesturkjördæmi (VG) horfir fram á veginn.

 

 

 

 

Meira...

Miðvikudagur 18. janúar 2012
Norska Húsið og Héraðsráð Snæfellinga

Um leið og ég óska Snæfellingum öllum velfarnaðar á nýju ári vil ég fara aðeins yfir tíðindi úr Héraðsráðinu.

 

 

 

Meira...

Miðvikudagur 18. janúar 2012
Þríþraut - eitthvað fyrir mig, þig og líka alla hina

Þríþrautardeild Umf.Snæfells (3SNÆ) er komin af stað eftir jólafrí og hófust æfingar af fullum krafti í síðustu viku.  3SNÆ auglýsti starfsemi sína með dreifimiða um áramótin og hafa þegar bæst fjórir nýir félagar í deildina. Með þessu greinarkorni  fylgjum við eftir dreifimiðanum og segjum aðeins meira frá starfsemi deildarinnar og af hverju þríþraut hentar öllum; konum og körlum á öllum aldri. 

 

Meira...

Síða 18 af 42: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42





25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19


Fylgist þú með söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva?

Já, í laumi
Nei