Leikskólinn í Stykkishólmi tók þátt í heilsuvikunni. Þá lögðum við enn meiri áherslu á hreyfingu og fóru m.a. þrír elstu árgangar leikskólans í íþróttahúsið þar sem Steina og Aþena tóku á móti þeim og ýmsar vettvangsferðir voru farnar, en umhverfi leikskólans býður upp á margar krefjandi leiðir. Við fórum í skipulagða hreyfileiki sem hún Sigga, íþróttakennari sá um. Þessir leikir voru úti þegar veður leyfði annars inni í sal. Stefnt var að því að fara með yngri börnin í fleiri gönguferðir og fleiri hreyfileiki fyrir þau.
Meira...Söfn hafa verið þó nokkuð í umræðunni undanfarið og er það vel því umfjöllunin hefur dregið fram mikilvæg atriði varðandi rekstur safna og viðhorf til þeirra sem stofnanna. Árið hófst á því að ný safnalög tóku gildi (lög nr. 141) en breytingar þeirra eru helst þær að talað er um viðurkennd söfn og reynt að skilgreina betur faglegan ramma safna.
Meira...Það dregur aldeilis til tíðinda um næstu helgi í magnþrungnum og spennandi undanúrslitaleikjum í Poweradebikar karla og kvenna. Það eru semsagt stórleikir um helgina hjá meistaraflokkum karla og kvenna í körfuboltanum og eitthvað sem engin getur látið fram hjá sér fara. Það var sannkallaður happadráttur að fá þó allavega heimaleiki þegar dregið var í 4 liða úrslit Poweradebikarsins hjá KKÍ.
Meira...
Mig langaði að þakka þeim sem stóðu að heilsuvikunni í sl. viku kærlega fyrir frábært framtak. Allt iðaði af lífi í bænum, allskyns uppákomur, tilboð og fleira sem var að flestu leyti vel sótt.
Meira...
Vonandi verður fljótlega gefinn út kvóti í makríl fyrir árið 2013 af Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvegaráðherra. Þá er ekki úr vegi að minna á að það er almennur vilji til þess að jafnræði verði gætt við úthlutun veiðiheimilda, ekki fáir útvaldir fái ríkulegan arð af þessari syndandi auðlind í lögsögu Íslands.
Meira...Fyrirlestur á vegum SAFT Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga fimmtudaginn 24. janúar, klukkan 20:00. Allir velkomnir Sérstaklega foreldrar/forráðamenn nemenda á grunn- og framhaldsskólaaldri Internetið: Jákvæð og örugg notkun barna og unglinga
Meira...Á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í Borgarnesi í dag var samþykktur framboðslisti flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Á listanum eru jafn margar konur og karlar.
Meira...Upp úr kassanum komu 2 miðar með eftirfarandi hugmyndum / tillögum.
Meira...
Ágætu bæjarbúar!
Nú hefur árið 2012 kvatt og nýtt ár hafið og langar mig að líta yfir farinn veg.
Í ársbyrjun var mikill spenningur vegna uppsetningar nýja orgelsins í Stykkishólmskirkju en orgelið var vígt við hátíðlega athöfn 22. janúar sl. Með samtakamætti bæjarbúa og öflugu söfnunarstarfi orgelsöfnunarnefndar rættist langþráður draumur um nýtt orgel í Stykkishólmskirkju. Með tilkomu orgelsins hefur kirkjan sannað enn frekar hlutverk sitt til tónlistarflutnings auk síns hefðbundna hlutverks.
Meira...Júlíanna, hátíð sögu og bóka verður haldin helgina 1. – 3. mars í Stykkishólmi.
Meira...