Föstudagur 3. september 2010
Fyrstu æfingamótin Jón Ólafur með 37 stig
Báðir meistaraflokkar Snæfells í körfunni taka þátt í tveimur æfingamótum í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ. Bæði liðin léku í gær og maður mótsins í fyrra hjá körlunum Jón Ólafur fór á kostum í fyrsta leik og sallaði niður 37 stigum.Bæði liðin mæta mikið breytt, hafa hvort um sig misst nokkra af sínum máttarstólpum og ekki búið að fylla öll þau skörð enn auk þess sem leikmenn eru enn að glíma við meiðsli.
Meira...
Föstudagur 3. september 2010
Gothia Cup 17. – 24. júlí
Vikuna 17. til 24. júlí sl. fóru strákarnir í 4. flokki karla af Snæfellsnesi á Gothia Cup í Gautaborg, sem er alþjóðlegt fótboltamót. Ferðin gekk vel og allt var til fyrirmyndar hjá Svíunum.
Meira...
Miðvikudagur 28. júlí 2010
Snæfellingar gegn FH
Víkingur Ólafsvík hefur verið að gera það gott í 2.deildinni í sumar þar sem þeir tróna nú efstir. En Víkingar hafa ekki síður verið að gera stóra hluti í bikarnum þar eru þeir komnir alla leið í undanúrslitin þar sem mótherjinn verður stórlið FH og sá leikur verður í kvöld á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði kl.19:15.
Meira...
Föstudagur 14. maí 2010
4 Snæfellsstelpur á NM
Þó Snæfell sé búið að halda uppskeruhátíð og lokahóf fyrir vetrarstarfið, halda yngri flokkarnir áfram að æfa út maí.
Sumir Snæfellingar eru einnig enn að keppa t.d. eru þær Björg Guðrún Einarsdóttir,
Hildur Björg Kjartansdóttir, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir og Sara Mjöll Magnúsdóttir að keppa ...
Meira...
Þriðjudagur 11. maí 2010
Enn bætast við meistaratitlar í Hólminn!
Víkingur Ólafsvík varð Lengjubikarmeistari B-deildar á laugardaginn þegar þeir unnu Völsung í Boganum á Akureyri. Tveir Hólmarar eru í liðinu þeir Andri Freyr Hafsteinsson og Alfreð Már Hjaltalín, Alfreð lék í 85 mín af leiknum. Til hamingju strákar!
Fimmtudagur 6. maí 2010
Hlynur semur við Sundsvall „en fighter och kämpe utan dess like“
Það fylgir góðu liði og góðum árangri að önnur lið fái áhuga á leikmönnum þess. Það kemur því ekki á óvart að Hlynur E. Bæringsson fyrirliði Snæfells og nýkjörinn leikmaður ársins og besti varnarmaðurinn í úrvalsdeildinni, hafi nú samið við erlent félagslið.
Meira...
Sunnudagur 2. maí 2010
Hlynur leikmaður ársins og Ingi Þór besti þjálfarinn
Leikmenn, þjálfari og stuðningshópur Snæfells halda áfram að sanka að sér verðlaunum. Á lokahófi körfuknattleiksamanna í kvöld sankaði Hlynur Bæringsson fyrirliði Snæfells að sér verðlaunum en hann var kjörinn leikmaður ársins í Iceland Expressdeild karla á nýafstöðnu tímabili, Hlynur var jafnframt valinn besti varnarmaðurinn í deildinni sem og besti leikmaður úrslitakeppninnar og þá var hann og Sigurður Þorvaldsson einnig í liði ársins.
Meira...
Föstudagur 30. apríl 2010
Snæfell er aðalklúbburinn
Stuðningsmenn voru duglegir að henda saman textum og vísum til að syngja á pöllunum á leikjum Snæfells í úrslitakeppninni. Ekki minnkar andagiftin þegar titilinn er í höfn. Ægir Jóhannsson henti saman texta í morgun við hið velkunnuga lag Jameson. Þannig að nú getur fólk haldið áfram að syngja og mætt svo tilbúið á pallana í haust.
Meira...
Föstudagur 30. apríl 2010
Snæfell semur við leikmenn
Það braust út gríðarleg gleði þegar lokaflautið gall í Keflavíkinni í gær, á meðal leikmanna og ekki síður stuðningsfólks. Í Stykkishólmi var mikil gleði og fór fólk að streyma upp í Hótel Stykkishólm þegar líða tók á kvöldið og þar var Íslandsmeistaranna beðið með óþreyju. Ferð þeirra tók aðeins lengri tíma en áætlað var því Borgnesingar tóku fagnandi á móti þeim með flugeldum hamingjuóskum.
Meira...
Föstudagur 30. apríl 2010
Snæfell Íslandsmeistarar og Bikarmeistarar
Snæfell sýndi þeim örfáu sem enn voru í vafa um hvaða lið væri besta körfuboltalið landsins að Snæfell ber þann titil með réttu enda bæði bikarmeistari og nú Íslandsmeistara þetta tímabilið. Og það er ekki hægt að hnykkja betur á því en með 69-105 stórsigri í hreinum úrslitaleik um titilinn og það á útivelli.
Meira...
Fimmtudagur 29. apríl 2010
Næst efsta eða ...
Úti að Aka karlarnir eru enn í körfunni. Smellið á myndina til að fá hana stærri.
Fimmtudagur 29. apríl 2010
ÁFRAM SNÆFELL!!!
Í kvöld fæst þá loks á hreint hver vinnur Íslandsmeistartitilinn í körfunni þetta tímabilið. Bikarmeistarar Snæfells eiga góðan möguleika á að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli og víst er að félagið hefur aldrei haft á jafngóðu liði að skipa og nú. Pressan er nú komin yfir á Keflavík, nú segja spámennirnir að þeir klári þetta, komnir á heimavöllinn en það sögðu spekingarnir líka um KR fyrir 5.leikinn í þeirri rimmu. Það er enginn vafi á því að viljinn og löngunin í Íslandsmeistaratitilinn er enn til staðar hjá Snæfellsliðinu og ekki síður hjá stuðningshópunum. Bændurnir í Fjárhúsinu hafa seigluna til að klára þetta. En þetta verður erfitt í kvöld og hart barist og því skorað á alla stuðningsmenn sem geta að fjölmenna til Keflavíkur og hvetja Snæfell til sigurs. ÁFRAM SNÆFELL,- alltaf og alla leið!
Mánudagur 26. apríl 2010
Kemur í Keflavík
Keflavík vann sanngjarnan sigur á Snæfelli í kvöld 73-82 eftir að hafa leitt megnið af leiknum. Menn höfðu ákveðnar áhyggjur af því að það yrði of stór pakki að ætla sér að vinna titilinn hér heima í fyrsta sinn og ekki er ólíklegt að það hafi truflað einbeitinguna fyrir leiknum sjálfum sem þurfti að vinna fyrst. Snæfell átti þó frábæra byrjun en þegar bakslagið kom þá náði liðið ekki að vinna sig upp úr því aftur. En Snæfell hafði þó allan tímann möguleikann á að snú leiknum sér í hag enda munurinn aldrei mikill en því miður þá var þetta ekki dagurinn. En ljósi punkturinn er þó að Snæfell á fullt inni fyrir næsta leik framlagið nú var aðeins 69!! og lægra getur það varla orðið hjá jafn sterku liði. En það er ekki vafi að liðið hristir þetta af sér og kemur tilbúið í leikinn á fimmtudaginn.
Myndbandsbrot frá leiknum í gær!
Mánudagur 26. apríl 2010
4 tímar í leik!
Nú er spennan orðin það rafmögnuð í Stykkishólmi fyrir leik kvöldsins að ljósin loga á ljósastaurunum þó hábjart sé. Unnið var að því eftir hádegið að gera Fjárhúsið klárt og þar var búið að bæta við pöllum og stólar farnir að streyma úr grunnskólanum yfir í íþróttahúsið.
Meira...
Mánudagur 26. apríl 2010
Átta tímar í leik !
Það er jafnan að ýmsu að huga á leikdegi þegar Snæfell leikur heimaleiki sína í körfunni. Nú í morgunsárið voru ýmsir komnir af stað við að sinna föstum liðum eins og að uppfæra skiltið góða og huga að fánum ofl.
Meira...
Síða 1 af 38: |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38