Föstudagur 14. apríl 2006
Úrslitaleikirnir hjá stelpunum í 10.flokki framundan
Snæfell lenti í 3 sæti í síðasta mótinu í 10.flokknum og mætir því liði Hauka sem þá urðu í öðru sætinu. Í því móti töpuðu Snæfellsstelpurnar fyrir Haukum en munu vonandi snúa þeim úrslitum við nú og fara alla leið í úrslitaleikinn. Ef það tekst þá spila þær úrslitaleikinn á sunnudeginum við annað hvort Keflavík eða Grindavík allt eftir því hvernig leikirnir fara á laugardeginum hjá þessum liðum. Leikurinn gegn Haukum á laugardeginum hefst kl.9:15 og komist Snæfell alla leið í úrslitaleikinn á sunnudeginum þá hefst sá leikur kl.12:00. Allir sem geta mæta að sjálfsögðu á pallana og hvetja stelpurnar.