
Vikuna 17. til 24. júlí sl. fóru strákarnir í 4. flokki karla af Snæfellsnesi á Gothia Cup í Gautaborg, sem er alþjóðlegt fótboltamót. Ferðin gekk vel og allt var til fyrirmyndar hjá Svíunum. Mótið var vel skipulagt enda veitir ekki af að halda vel utan um allt þegar margar þjóðir hittast. Spilað var út um alla Gautaborg og fyrir vikið þurfti að vera með leiðarkerfi strætisvagna og sporvagna á hreinu en þarna voru samgöngur mjög góðar. Farið var með tvö lið, yngri (13 ára) og eldri (14 ára). Fyrsti dagurinn var tekinn í Lyseberg skemmtigarði og þar skemmtu þeir sér mjög vel strákarnir. Setningarathöfnin var alveg stórfengleg og þar voru 52000 þús. manns samankomin að fylgjast með þegar liðin og dómarar þrömmuðu inn á Ullevi leikvanginn. Frá Íslandi voru 16 félög með 32 lið og voru við fimmta stærsta þjóðin á mótinu miða við keppendafjölda.
Okkur gekk þokkalega á mótinu þó svo að ekki voru margir sigrarnir, þá var leikgleðin höfð í fyrirrúmi þrátt fyrir þreytu og svengd eftir leiki. Síðustu dagana var farið í eitt gott moll þar sem strákarnir skemmtu sér konunglega, frjálsir og flottir og var tekið sérstaklega eftir því að þeir hafa eitthvað erft af verslunargenum mæðra sinna því þeir stóðu sig mjög vel í búðunum og komu fyrir vikið karlfararstjóragenginu á óvart. Þessir drengir voru hinir prúðustu og öllum foreldrum og sínum íþróttafélögum til sóma, gengu vel um og alltaf kátir og glaðir.
Eins og gefur að skilja þá er ekki hægt að fara í svona ferð nema með góðan stuðning á bak við sig og viljum við færa eftirtöldum aðilum kærar þakkir fyrir stuðninginn:
| Ragnar & Ásgeir Grundarfirði | Verslunin Þóra Ólafsvík | |
| Guðmundur Runólfsson hf. Grundarfirði | Sólarsport Ólafsvík | |
| Soffanías Cecilsson Grundarfirði | Valafell Ólafsvík | |
| Ungmennafélag Grundarfjarðar | Útgerðarfélagið Dvergur Ólafsvík | |
| Fótboltaráð Grundarfjarðar | Útgerðarfélagið Haukur Ólafsvík | |
| Þjónustustofan ehf. Grundarfirði | Ungmennafélagið Víkingur Ólafsvík | |
| Ildi hf. Grundarfirði | Snæfellsbær | |
| Hrannarbúðin sf. Grundarfirði | Vélsmiðja Árna Jóns Rifi | |
| Snæþvottur ehf Grundarfirði | Anna Höskuldsdóttir Rifi | |
| Kaffi 59 Grundarfirði | Útnes Rifi | |
| Abba Grundarfirði | KG Fiskverkun Rifi | |
| Hróartindur Grundarfirði | Breiðavík Rifi | |
| VK lagnir Grundarfirði | Nesver Rifi | |
| Ökuskóli PGP Grundarfirði | Sjávariðjan Rifi | |
| GG lagnir Grundarfirði | Sandbrún Rifi | |
| Hótel Framnes Grundarfirði | Ungmennafélagið Reynir Hellissandi | |
| Fiskiðjan Bylgjan Ólafsvík | Esjar SH Hellissandi | |
| Hemsendir Ólafsvík | Hraðfrystihúsið Hellissandi | |
| Sparisjóður Ólafsvíkur | Drífa Skúladóttir Hellissandi | |
| Apótek Ólafsvíkur | Þóra Ólsen Hellissandi | |
| Útgerðarfélagið Guðmundur ehf. Ólafsvík | Reynir Axelsson Hellissandi | |
| Ólína Björk Kristinsdóttir Ólafsvík | Málflutningsstofa Snæfellsnes Stykkishólmi | |
| Deloitte hf. Ólafsvík | Þórsnes Stykkishólmi | |
| Netagerð Aðalsteins Ólafsvík | Stykki hf. Stykkishólmi | |
| Þrif og þjónusta Ólafsvík | Hótel Stykkishólmur | |
| Hobbitinn Ólafsvík | Ungmennafélagið Snæfell | |
| HG geisli Ólafsvík | Brim hf. Reykjavík | |
| Sverrisútgerðin Ólafsvík | Fiskverkunin Björg Hafnarfirði | |
| Steinprent Ólafsvík | HSH | |
| Bárður SH Ólafsvík | Landsbankinn | |
| Tölvuverk bókhaldsþjónustan Ólafsvík | Verkalýðsfélag Snæfellsness | |
| EG múr Ólafsvík | Fiskmarkaður Íslands |
Að lokum viljum við þakka öllum íbúum á Snæfellsnesi fyrir það hversu vel þau tóku á móti strákunum í sínum fjáröflunum. Foreldrar, afar og ömmur fá bestu þakkir fyrir stuðning að þessari ferð. Einnig fær Ejub þjálfari bestu þakkir og góðar ráðleggingar hvar best er að versla og einnig hún Elín Hróðný sem því miður komst ekki með en stóð sig eins og hetja í fjáröflunum þannig að við hin kæmust út.
Bestu kveðjur frá fótboltastrákunum, þjálfara og fararstjórum.