Miðvikudagur 31. ágúst 2011
Snæfellsnesrallý, fjórða árið í röð, um helgina.
Á laugardagsmorgun verður ekið um Jökulháls og Eysteinsdal og síðasta leið fyrir hádegishlé verður Breið, í hádeginu verður viðgerðarhlé á planinu við Stakkholt. Fyrsta leið eftir hádegi verður innanbæjarleið í Ólafsvík sem fengið hefur nafnið Orkubrautin, leiðin liggur síðan austur eftir Snæfellsnesi þar sem ekið verður um nýja sérleið um Eyrarfjall, Berserkjahraun verður ekið tvisvar og síðan verður leiðin um Eyrarfjall ekin aftur áður en ekið er til Ólafsvíkur þar sem verðlaunaafhending verður í Átthagastofunni.
Innanbæjarleið - Orkubrautin
Fyrsta sérleið eftir hádegi á laugardag er innanbæjarleið sem hefur fengið nafnið Orkubrautin þar sem að Orkan hefur gefið aukaverðlaun fyrir þann sem ekur leiðina á skemmstum tíma. Því má búast við miklum tilþrifum.
Leiðin liggur um hafnarsvæði Ólafsvíkur og má sjá leiðina merkta inn á loftmyndina hér við hlið.
Mikilvægt er að áhorfendur haldi sér í hæfilegri fjarlægð til að verða ekki fyrir grjótkasti.
Á milli þess sem undanfari ekur leiðina og þangað til eftirfari fer um þá er leiðin lokuð öllum öðrum en rallybílum.
Samkvæmt tímaáætlun verður fyrsti bíll ræstur inn á leiðina kl. 13.53
Upplýsingamiðstöð og stjórnstöð rallsins verður í
Átthagastofunni á meðan á rallinu stendur.
Nánari upplýsingar fást hjá keppnisstjóra í síma 8481930 - Sigurður Rúnarsson