Mánudagur 5. september 2011
Íslenska landsliðið í körfubolta heldur til Kína á morgun og leikur þar
tvo æfingaleiki við kínverska landsliðið í boði kínverska
körfuknattleikssambandsins. Leikirnir eru liður í undirbúningi Kínverja
fyrir Asíuleikanna. Hlynur Bæringsson er sem fyrr í hópnum en þar er
einnig annar héðan úr bæ og leikmaður Snæfells sem kemur inn sem nýliði í
landsliðið en það er Jón Ólafur Jónsson.
Ekki hægt að segja annað
en að Jón Ólafur sé þar verðskuldað eftir tvö frábær tímabil með Snæfelli í röð.
Nánar um ferð landsliðsins og hópinn á vef KKÍ