Stykkishólmspósturinn
26. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 3. apríl 2013
Stelpurnar hefja leik í kvöld

Snæfellsstelpurnar mæta KR hér heima í kvöld kl.19:15 í fyrsta leiknum í rimmu liðanna í undanúrslitunum.  Liðin mættust í síðustu umferðinni og þá hafði Snæfell betur.  Vonandi tekst þeim að fylgja þeim sigri eftir í kvöld því það er afar mikilvægt byrja vel og að taka öll stig sem eru í boði á heimavellinum.  Þrjá sigra þarf til að komast áfram í úrslitin. Stuðningshópurinn ætti að vera orðinn vel heitur eftir tvo spennuleiki hjá strákunum en nú er komið að því að styðja vel við stelpurnar og veita þeim öflugan stuðning og meðbyr inn í úrslitakeppnina.  ÁFRAM SNÆFELL !!


Miðvikudagur 3. apríl 2013
Hildur íþróttamaður HSH

Í fyrsta leik Snæfells og Stjörnunnar s.l. þriðjudagskvöld í undanúrslitum Dominosdeildarinnar hér í Stykkishólmi voru íþróttamenn og vinnuþjarkar HSH fyrir árið 2012 tilnefndir.  Hildur Sigurðardóttir var valin Íþróttamaður HSH 2012 auk þess að hljóta titilinn Körfuboltamaður HSH 2012.  Aðrar útnefningar voru:  Siguroddur Pétursson, Snæfelling. Hestíþróttamaður HSH 2012, Bergur Einar Dagbjartsson, UMFG. Blakmaður HSH 2012, Rúnar Örn Jónsson, Mostra. Kylfingur HSH 2012, Viktor Örn Jóhannsson, UMFG. Knattspyrnumaður HSH 2012.  Vinnuþjarkar HSH 2012. Stjórn knattspyrnudeildar Víkings Ólafsvík. 

Meira...


Mánudagur 1. apríl 2013
Stemmingshittingur hjá stuðningshópi Snæfells

Framundan eru ansi spennandi og líflegir dagar fyrir körfuboltaáhugafólk, bæði lið Snæfells komin áfram í undanúrslitin á Íslandsmótinu í fyrsta sinn.  Það kemur því til með að reyna mikið á stuðningshópinn ekki síst hér á heimaleikjunum.  Nú er markmiðið að ná upp gríðarlegri stemmingu á þeim heimaleikjum sem framundan eru og gera Fjárhúsið að algjörlega óvinnandi vígi fyrir mótherja Snæfells.

Meira...


Fimmtudagur 28. mars 2013
Nú mætum við til leiks

Nú er runnin upp sannkölluð ögurstund í viðureign Snæfells og Njarðvíkur í úrslitakeppninni.  Liðin hafa unnið sitthvora viðureignina og leikurinn í kvöld kl.19:15 því hreinn úrslitaleikur um að komast áfram í undanúrslitin.  Það má segja að hvorki Snæfellsliðið né stuðningshópur Snæfells hafi mætti fyllilega til leiks en nú er það engin spurning allir verða að mæta til leiks og taka á því saman ef Snæfell á að komast áfram.

Meira...


Miðvikudagur 27. mars 2013
Ingi Þór og Snæfell endurnýja samning

Stjórn körfuknattleiksdeildar Snæfells og Ingi Þór Steinþórsson þjálfari hafa endurnýjað samstarfssamning  sinn  sem mun  gilda til ársins 2016.

Í fréttatilkynningu frá Snæfelli segir: „Með undirskrift þessari er öllum ljóst hvað við ætlum okkur í framtíðinni og um leið kurteisi við alla þá sem hafa áhuga á að vera með okkur í liði á komandi árum.“   

Meira...


Föstudagur 22. mars 2013
Fréttatilkynning frá kkd Snæfells

Nú er Dominosdeildarkeppninni senn að ljúka. Strákarnir búnir og stelpurnar klára miðvikudaginn 27. mars. Í dag erum við Snæfellingar mjög sátt við stöðu okkar liða og ætlum okkur áfram góðan árangur í úrslitakeppninni sem hefst á morgun, föstudaginn hjá strákunum og síðar hjá stelpunum. Eins og við vitum að þá þurfa öll litlu púslin að vera í lagi til að stóra myndin verði viðunandi og helst örlítið meir. 

Meira...


Fimmtudagur 21. mars 2013
8 liða úrslitin byrja í kvöld

Átta liða úrslitin hefjast í kvöld hjá körlunum með tveimur leikjum og miðað við stöðu liðanna þá ætti þetta að liggja nokkuð ljóst.  En lokastaðan segir ekki allt, sum liðin, ekki síst fyrir stórlið KR enduðu miklu neðar en leikmannhópurinn hefur getu til, þannig að KR mun mæta til að reyna að bjarga tímabilinu.  Snæfellsliðið á góðan möguleika til titils en það ræðst algjörlega af því hve vilji leikmanna er mikill til þess, liðið er nógu sterkt til að fara alla leið.   Þetta er spurning um hausinn, á leikmönnum, mæti þeir með hann rétt stilltan þá verður Snæfellsliðið ekki auðunnið.

Meira...


Fimmtudagur 21. mars 2013
Úrslitakeppnin í körfubolta

Úrslitakeppnin er að fara í gang hjá körlunum, Snæfell mætir Njarðvík í 8 liða úrslitunum og fer fyrsti leikurinn fram hér heima annað kvöld, föstudag. Þessi lið mættust í lokaumferðinni í deildinni s.l. sunnudag.

Meira...


Síða 1 af 85: | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85



26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19


12. júní:
- Síðasti dagur til að innrita í Tónlistarskóla Stykkishólms