Þriðjudagur 12. október 2010
Tap hjá Sundsvall
Hlynur Bæringsson og Sundsvall Dragons töpuðu í dag fyrir Solna í öðrum leik sínum í sænsku deildinni
98-96. Sigurkarfa Solna var skoruð á síðustu sekúndunni eftir að Hlynur hafði jafnað hinu megin. Hlynur stóð sig mjög vel að venju var með 22 stig og 18 fráköst og hæstur leikmanna beggja liða í framlagi með 35. Hlynur var einnig framlagshæstur í fyrsta leiknum var þá með 33.
Þriðjudagur 12. október 2010
Hlynur í eldlínunni með Sundsvall
Nú er að byrja leikur Sundsvall Dragons og Solna í sænsku deildinni í körfunni. Hlynur átti sem kunnugt er stórleik í fyrsta leiknum og nú er að sjá hvað hann gerir í leiknum gegn Solna sem sjá má á netinu á þessum hlekk
hér. Sundsvall er í rauðu og Hlynur nr.12. Einnig má sem fyrr fylgjast með tölfræðinni á vef sænska
körfuknattleikssambandsins hægra megin.
Föstudagur 8. október 2010
Sigur hjá Íslandsmeisturunum
Íslandsmeistarar Snæfells hófu Íslandsmótið með vinnusigri á Fjölni í kvöld 97-102. Eftir að Snæfell hafði byrjað betur og náð 14 stiga forystu í upphafi 2.leikhluta náði Fjölnir yfirhöndinni og hafði 57-53 forustu í hálfleik. Fjölnir náði svo góðum spretti í lok 3.leikhluta og hélt þeim spretti inn í miðjan 4.leiklhutann þegar meistararnir sýndu úr hverju þeir eru gerðir og jöfnuðu leikinn og sigldu svo sigrinum heim á seiglunni.
Meira...
Föstudagur 8. október 2010
Hlynur góður í fyrsta leik
Hlynur Bærings lék sinn fyrsta leik með Sundsvall Dragons í sænsku deildinni í dag og ekki hægt að segja annað en hann hafi farið vel af stað. Sundsvall sigraði lið Örebro 89-60 og var Hlynur besti maður Sundsvall og stigahæsti maður vallarins með 20 stig og einnig sá frákastahæsti með 15 fráköst. Jakob Sigurðarson lék einnig vel með Sundsvall skoraði 15 stig.
Föstudagur 8. október 2010
Strákarnir byrja í kvöld
Snæfellspiltar leika sinn fyrsta leik í kvöld í IE deild karla þegar þeir mæta Fjölni kl.19:15. Hægt er sem fyrr að fylgjast með leiknum á tölfræðivef KKÍ en einnig má væntanlega sjá hann í netsendingu á
heimasíðu Fjölnis og þá er tengillinn neðst hægra megin. Hlynur Bærings hóf einnig leik í kl.17 með Sundsvall sem mætir Öster í kvöld, hægt er að fylgjast með þeim leik
hér sjá má tengilinn hægra megin á síðunni.
Mánudagur 4. október 2010
Snæfelli spáð 3. og 6.sæti
Kynningarfundur Körfuknattleikssambandsins fyrir komandi Íslandsmót í körfuboltanum var í dag á þeim fundi er hefð fyrir því að birta spá þjálfara, forráðamanna og fyrirliða liðanna í efstu deild karla og kvenna í körfunni spáðu fyrir lokastöðu Íslandsmótsins á komandi tímabili. Íslands- og bikarmeisturum Snæfells er spáð 3.sætinu hjá körlunum en Snæfellsstelpunum 5.sætinu.
Meira...
Sunnudagur 3. október 2010
Enn einn titill í hús
Snæfell sigraði Grindavík í kvöld
102-93 í leiknum um titilinn meistari meistaranna. Með sigrinum er síðasti titillinn sem félagið átti eftir að vinna kominn í hús og um leið fjórði titillinn í röð sem Snæfell vinnur. Leikurinn var jafn lengst af en á lokakaflanum var það fyrirliðinn Pálmi Freyr sem fór fyrir sínum mönnum og átti stærsta þáttinn í því að Snæfell sigldi framúr og landaði góðum sigri.
Laugardagur 2. október 2010
Meistarar mætast í Hólminum
Smellið til að stækkaÞað er spennandi dagur framundan í
Íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi á morgun. sunnudag 3.september en þá verður sannkölluð
körfuboltaveisla þegar meistarar meistaranna mætast bæði í meistaraflokki karla
og kvenna.
Meira...
Síða 14 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 - 14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85