Mánudagur 4. október 2010
Snæfelli spáð 3. og 6.sæti
Kynningarfundur Körfuknattleikssambandsins fyrir komandi Íslandsmót í körfuboltanum var í dag á þeim fundi er hefð fyrir því að birta spá þjálfara, forráðamanna og fyrirliða liðanna í efstu deild karla og kvenna í körfunni spáðu fyrir lokastöðu Íslandsmótsins á komandi tímabili. Íslands- og bikarmeisturum Snæfells er spáð 3.sætinu hjá körlunum en Snæfellsstelpunum 5.sætinu.
Meira...
Sunnudagur 3. október 2010
Enn einn titill í hús
Snæfell sigraði Grindavík í kvöld
102-93 í leiknum um titilinn meistari meistaranna. Með sigrinum er síðasti titillinn sem félagið átti eftir að vinna kominn í hús og um leið fjórði titillinn í röð sem Snæfell vinnur. Leikurinn var jafn lengst af en á lokakaflanum var það fyrirliðinn Pálmi Freyr sem fór fyrir sínum mönnum og átti stærsta þáttinn í því að Snæfell sigldi framúr og landaði góðum sigri.
Laugardagur 2. október 2010
Meistarar mætast í Hólminum
Smellið til að stækkaÞað er spennandi dagur framundan í
Íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi á morgun. sunnudag 3.september en þá verður sannkölluð
körfuboltaveisla þegar meistarar meistaranna mætast bæði í meistaraflokki karla
og kvenna.
Meira...
Fimmtudagur 23. september 2010
Sigurganga Víkings-Ólafsvík
Víkingur hóf tímabilið í desember 2009 með því að spila Futsal (innanhússbolti) og komst í 4 liða úrslit en tapaði þar fyrir Keflavík. Spilað var í B deildarbikar þar sem liðið vann alla 7 leikina og varð B deildarmeistari.
Meira...
Þriðjudagur 21. september 2010
Karfan
Snæfell lék fyrstu alvöruleiki tímabilsins í meistaraflokkunum í síðustu viku þegar leikið var í Lengjubikarnum. Stelpurnar áttu erfiðan útileik gegn Keflavík og biðu lægri hlut 74-59 eftir jafnan leik fram í fjórða leikhlutann. Það verður mjög spennandi að fylgjast með stelpunum í vetur, með tilkomu Ingu Muciniece sem er heilir 196 cm gjörbreytist leikstíll liðsins og fleiri möguleikar opnast í varnar- og þó sérstaklega í sóknarleiknum.
Meira...
Föstudagur 10. september 2010
Hlynur är här!!
Hlynur Bæringsson og fjölskylda héldu til Svíþjóðar í gærmorgun og það er nokkuð ljóst að Svíarnir er spenntir fyrir þessum mesta jaxli sem íslenskur körfubolti hefur alið af sér. „Hlynur er hér“ er fyrirsögnin á heimasíðu Sundsvall Dragons í morgun og hann var ekki fyrr lentur en smellt var af honum mynd með tvíburana og fyrsta viðtalið tekið sem birtist í morgun á vef Dagbladet í Sundsvall.
Meira...
Mánudagur 6. september 2010
Fjórða sætið hjá strákunum
Fyrstu æfingamótin sem meistaraflokkar Snæfells taka þátt í fyrir tímabilið eru nú yfirstaðin. Stelpurnar höfnuðu í 2.sæti í Ljósanæturmótinu eftir 23-44 tap gegn KR í úrslitaleiknum. Strákarnir enduðu hinsvegar í 4.sæti á Reykjanes Cup eftir naumt tap 102-104 gegn Keflavík.
Meira...
Laugardagur 4. september 2010
Stelpurnar í 2.sæti
Snæfellsstelpurnar enduðu í 2.sætinu á hraðmótinu í Reykjanesbæ eftir að hafa unnið Hamar 52-45 í undanúrslitum en tapað svo úrslitaleiknum gegn KR 23-44. Strákarnir töpuðu hinsvegar fyrir Fjölni í gær 95-112. Þeir mæta því Keflavík sem vann Njarðvik í gær með 16 stigum, á morgun í leik um 3.sætið.
Síða 15 af 86:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 - 15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86