Föstudagur 14. maí 2010
4 Snæfellsstelpur á NM
Þó Snæfell sé búið að halda uppskeruhátíð og lokahóf fyrir vetrarstarfið, halda yngri flokkarnir áfram að æfa út maí.
Sumir Snæfellingar eru einnig enn að keppa t.d. eru þær Björg Guðrún Einarsdóttir,
Hildur Björg Kjartansdóttir, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir og Sara Mjöll Magnúsdóttir að keppa ...
Meira...
Þriðjudagur 11. maí 2010
Enn bætast við meistaratitlar í Hólminn!
Víkingur Ólafsvík varð Lengjubikarmeistari B-deildar á laugardaginn þegar þeir unnu Völsung í Boganum á Akureyri. Tveir Hólmarar eru í liðinu þeir Andri Freyr Hafsteinsson og Alfreð Már Hjaltalín, Alfreð lék í 85 mín af leiknum. Til hamingju strákar!
Fimmtudagur 6. maí 2010
Hlynur semur við Sundsvall „en fighter och kämpe utan dess like“
Það fylgir góðu liði og góðum árangri að önnur lið fái áhuga á leikmönnum þess. Það kemur því ekki á óvart að Hlynur E. Bæringsson fyrirliði Snæfells og nýkjörinn leikmaður ársins og besti varnarmaðurinn í úrvalsdeildinni, hafi nú samið við erlent félagslið.
Meira...
Sunnudagur 2. maí 2010
Hlynur leikmaður ársins og Ingi Þór besti þjálfarinn
Leikmenn, þjálfari og stuðningshópur Snæfells halda áfram að sanka að sér verðlaunum. Á lokahófi körfuknattleiksamanna í kvöld sankaði Hlynur Bæringsson fyrirliði Snæfells að sér verðlaunum en hann var kjörinn leikmaður ársins í Iceland Expressdeild karla á nýafstöðnu tímabili, Hlynur var jafnframt valinn besti varnarmaðurinn í deildinni sem og besti leikmaður úrslitakeppninnar og þá var hann og Sigurður Þorvaldsson einnig í liði ársins.
Meira...
Föstudagur 30. apríl 2010
Snæfell er aðalklúbburinn
Stuðningsmenn voru duglegir að henda saman textum og vísum til að syngja á pöllunum á leikjum Snæfells í úrslitakeppninni. Ekki minnkar andagiftin þegar titilinn er í höfn. Ægir Jóhannsson henti saman texta í morgun við hið velkunnuga lag Jameson. Þannig að nú getur fólk haldið áfram að syngja og mætt svo tilbúið á pallana í haust.
Meira...
Föstudagur 30. apríl 2010
Snæfell semur við leikmenn
Það braust út gríðarleg gleði þegar lokaflautið gall í Keflavíkinni í gær, á meðal leikmanna og ekki síður stuðningsfólks. Í Stykkishólmi var mikil gleði og fór fólk að streyma upp í Hótel Stykkishólm þegar líða tók á kvöldið og þar var Íslandsmeistaranna beðið með óþreyju. Ferð þeirra tók aðeins lengri tíma en áætlað var því Borgnesingar tóku fagnandi á móti þeim með flugeldum hamingjuóskum.
Meira...
Föstudagur 30. apríl 2010
Snæfell Íslandsmeistarar og Bikarmeistarar
Snæfell sýndi þeim örfáu sem enn voru í vafa um hvaða lið væri besta körfuboltalið landsins að Snæfell ber þann titil með réttu enda bæði bikarmeistari og nú Íslandsmeistara þetta tímabilið. Og það er ekki hægt að hnykkja betur á því en með 69-105 stórsigri í hreinum úrslitaleik um titilinn og það á útivelli.
Meira...
Fimmtudagur 29. apríl 2010
Næst efsta eða ...
Úti að Aka karlarnir eru enn í körfunni. Smellið á myndina til að fá hana stærri.
Síða 16 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 - 16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85