Fimmtudagur 29. apríl 2010
ÁFRAM SNÆFELL!!!
Í kvöld fæst þá loks á hreint hver vinnur Íslandsmeistartitilinn í körfunni þetta tímabilið. Bikarmeistarar Snæfells eiga góðan möguleika á að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli og víst er að félagið hefur aldrei haft á jafngóðu liði að skipa og nú. Pressan er nú komin yfir á Keflavík, nú segja spámennirnir að þeir klári þetta, komnir á heimavöllinn en það sögðu spekingarnir líka um KR fyrir 5.leikinn í þeirri rimmu. Það er enginn vafi á því að viljinn og löngunin í Íslandsmeistaratitilinn er enn til staðar hjá Snæfellsliðinu og ekki síður hjá stuðningshópunum. Bændurnir í Fjárhúsinu hafa seigluna til að klára þetta. En þetta verður erfitt í kvöld og hart barist og því skorað á alla stuðningsmenn sem geta að fjölmenna til Keflavíkur og hvetja Snæfell til sigurs. ÁFRAM SNÆFELL,- alltaf og alla leið!
Mánudagur 26. apríl 2010
Kemur í Keflavík
Keflavík vann sanngjarnan sigur á Snæfelli í kvöld 73-82 eftir að hafa leitt megnið af leiknum. Menn höfðu ákveðnar áhyggjur af því að það yrði of stór pakki að ætla sér að vinna titilinn hér heima í fyrsta sinn og ekki er ólíklegt að það hafi truflað einbeitinguna fyrir leiknum sjálfum sem þurfti að vinna fyrst. Snæfell átti þó frábæra byrjun en þegar bakslagið kom þá náði liðið ekki að vinna sig upp úr því aftur. En Snæfell hafði þó allan tímann möguleikann á að snú leiknum sér í hag enda munurinn aldrei mikill en því miður þá var þetta ekki dagurinn. En ljósi punkturinn er þó að Snæfell á fullt inni fyrir næsta leik framlagið nú var aðeins 69!! og lægra getur það varla orðið hjá jafn sterku liði. En það er ekki vafi að liðið hristir þetta af sér og kemur tilbúið í leikinn á fimmtudaginn.
Myndbandsbrot frá leiknum í gær!
Mánudagur 26. apríl 2010
4 tímar í leik!
Nú er spennan orðin það rafmögnuð í Stykkishólmi fyrir leik kvöldsins að ljósin loga á ljósastaurunum þó hábjart sé. Unnið var að því eftir hádegið að gera Fjárhúsið klárt og þar var búið að bæta við pöllum og stólar farnir að streyma úr grunnskólanum yfir í íþróttahúsið.
Meira...
Mánudagur 26. apríl 2010
Átta tímar í leik !
Það er jafnan að ýmsu að huga á leikdegi þegar Snæfell leikur heimaleiki sína í körfunni. Nú í morgunsárið voru ýmsir komnir af stað við að sinna föstum liðum eins og að uppfæra skiltið góða og huga að fánum ofl.
Meira...
Mánudagur 26. apríl 2010
Það er Snæfell sem allt snýst um - stuðningslag
Spennan magnast í Hólminum og eflaust víðar eftir því sem nær dregur viðureigninni við Keflavík í kvöld. Kraftur Snæfellsliðsins á körfuboltavellinum hefur oft verið hagmæltum andagift og jafnvel orðið til lagasmíða. Fyrir nokkrum dögum varð til stuðningslag fyrir Snæfell sem eflaust verður sungið í kvöld. Textinn og lagið kemur hér á eftir:
Meira...
Laugardagur 24. apríl 2010
Viðrar vel til ferðalaga - Áfram Snæfell með bros á vör
Snæfell heldur til Reykjanesbæjar í dag þar sem liðið mætir liði Keflavíkur kl.16 í þriðja leik liðanna í úrslitunum. Dramatíkin eykst með hverjum leiknum, pressan er öll á liði Keflavíkur nú, þeir voru burstaðir hér í Fjárhúsinu af sterku liði Snæfells og vita að tapi þeir í dag þá er Snæfell komið í lykilstöðu með heimaleikinn næst. Snæfell er því í góðri stöðu í dag og kemur fullt sjálfstrausts til leiks og ekki spurning að leiki það sinn leik þá vinna þeir leikinn. En það hefst ekki nema með baráttu og góðum stuðningi hins dygga stuðningshóps Snæfells. Snæfellsliðið á skilið góðan stuðning nú og á þann jákvæða hátt sem stuðningshópurinn er þekktur fyrir og vonandi öðrum til eftirbreytni. Fjölmennum í Keflavíkina og styðjum Snæfell til sigurs - með bros á vör. ÁFRAM SNÆFELL !!!
Föstudagur 23. apríl 2010
Opið bréf til körfuboltamanna
Sælir körfuboltamenn
Undirritaður er einn af fjölmörgum sem hafa mikla ánægju af að fylgjast með körfuboltanum og ekki síst mínu liði Snæfelli. Alltaf er gaman að fylgjast með góðum liðum kljást á vellinum eins og nú í úrslitum.
Sjá aðsent efni
Fimmtudagur 22. apríl 2010
Frábær sigur hjá Snæfelli
Snæfell vann afar öruggan sigur á Snæfelli í kvöld 91-69 og jafnaði þar með 1-1 í rimmunni við Keflavík. Snæfell kvittað með þessum stórsigri heldur betur fyrir 19 stiga tapið í fyrsta leiknum og vann 22 stiga sigur nú. Jeb Ivey lék mjög vel eftir um 40 stunda ferðalag, fór lokakaflan með lítilli 4 sæta flugvél og lenti hér kl.18:20. Það var ekki að sjá að langt ferðalagi sæti í honum því hann átti góðan leik ekki síst í vörninni þar sem hann hélt lykilmanni Keflavíkur Herði Vilhjálms algjörlega niðri.
Meira...
Síða 17 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 - 17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85