Laugardagur 24. apríl 2010
Viðrar vel til ferðalaga - Áfram Snæfell með bros á vör
Snæfell heldur til Reykjanesbæjar í dag þar sem liðið mætir liði Keflavíkur kl.16 í þriðja leik liðanna í úrslitunum. Dramatíkin eykst með hverjum leiknum, pressan er öll á liði Keflavíkur nú, þeir voru burstaðir hér í Fjárhúsinu af sterku liði Snæfells og vita að tapi þeir í dag þá er Snæfell komið í lykilstöðu með heimaleikinn næst. Snæfell er því í góðri stöðu í dag og kemur fullt sjálfstrausts til leiks og ekki spurning að leiki það sinn leik þá vinna þeir leikinn. En það hefst ekki nema með baráttu og góðum stuðningi hins dygga stuðningshóps Snæfells. Snæfellsliðið á skilið góðan stuðning nú og á þann jákvæða hátt sem stuðningshópurinn er þekktur fyrir og vonandi öðrum til eftirbreytni. Fjölmennum í Keflavíkina og styðjum Snæfell til sigurs - með bros á vör. ÁFRAM SNÆFELL !!!
Föstudagur 23. apríl 2010
Opið bréf til körfuboltamanna
Sælir körfuboltamenn
Undirritaður er einn af fjölmörgum sem hafa mikla ánægju af að fylgjast með körfuboltanum og ekki síst mínu liði Snæfelli. Alltaf er gaman að fylgjast með góðum liðum kljást á vellinum eins og nú í úrslitum.
Sjá aðsent efni
Fimmtudagur 22. apríl 2010
Frábær sigur hjá Snæfelli
Snæfell vann afar öruggan sigur á Snæfelli í kvöld 91-69 og jafnaði þar með 1-1 í rimmunni við Keflavík. Snæfell kvittað með þessum stórsigri heldur betur fyrir 19 stiga tapið í fyrsta leiknum og vann 22 stiga sigur nú. Jeb Ivey lék mjög vel eftir um 40 stunda ferðalag, fór lokakaflan með lítilli 4 sæta flugvél og lenti hér kl.18:20. Það var ekki að sjá að langt ferðalagi sæti í honum því hann átti góðan leik ekki síst í vörninni þar sem hann hélt lykilmanni Keflavíkur Herði Vilhjálms algjörlega niðri.
Meira...
Fimmtudagur 22. apríl 2010
Snæfell - Keflavík í kvöld
Snæfell mætir Keflavík hér heima í kvöld í öðrum leik liðanna í rimmunni um Íslandsmeistaratitilinn. Keflavík vann þann fyrsta örugglega enda má segja að hvorki Snæfellsliðið né stuðningsfólkið hafi mætt til leiks. Rimman gegn KR tók á og það tekur tíma að hrista hana út úr hausnum og fókusera á Keflavík. Það kemur í kvöld og þá mætir Snæfellsliðið einnig með nýjan liðsmann, Jeb Ivey sem flestir þekkja, hann mun koma í stað Sean Burton sem því miður er úr leik sökum meiðsla.
Meira...
Mánudagur 19. apríl 2010
Spennan magnast á ný
Eftir ákveðið spennufall sem varð eftir að Snæfell sló út Íslandsmeistara KR er nú spennan að magnast á ný enda komið að lokaáfanganum að Íslandsmeistaratitlinum. Snæfell mætir Keflavík í Toyotahöllinni í kvöld í fyrsta leik liðanna í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Snæfellsliðið kemur úr mun erfiðari rimmu en Keflavíkurliðið og ýmis meiðsli farin að hrjá mannskapinn. En vonandi hafa leikmenn náð úr sér mesta lurknum fyrir leik kvöldsins og ekki síður að þeir nái upp rétta spennustiginu og hafi fókusinn sem fyrr stilltan á lokamarkmiðið. Nú reynir ekki síður á andlegt en líkamlegt úthald leikmanna sem og stuðningshópsins. Það gildir því að fjölmenna þá leiki Snæfells sem eftir eru og styðja þá alltaf og alla leið. ÁFRAM SNÆFELL !!!
Fimmtudagur 15. apríl 2010
Frábær sigur hjá Snæfelli 83-93
Snæfell gerði það aftur og með stæl, sigraði KR í þriðja skiptið í röð í DHL-höllinni í rimmu félaganna í undanúrslitum og sendi þar með núverandi Íslandsmeistara í sumarfrí. Snæfellspiltar komu mjög einbeittir til leiks og Ingi var duglegur að rótera mönnum inn og út þannig að þegar komið var í 4.leikhlutann var Snæfell komið með 20 stiga forustu. Þá vöknuðu KR ingar um stund en náðu ekki að jafna og Snæfell náði góðum kafla í lokin og sigldi sigrinum heim
83-93. Þar með er Snæfell komið í úrslitaleikina um Íslandsmeistaratitilinn þar sem Keflavík verða mótherjarnir.
Fimmtudagur 15. apríl 2010
Úrslitin ráðast í kvöld
Snæfell og KR mætast í kvöld í hreinum úrslitaleik um að komast í úrslitaleikina um Íslandsmeistaratitilinn. Pressan er öll á KR liðinu í kvöld, þeim hefur gengið mjög illa með Snæfellsliðið í DHL-höllinni og Snæfell unnið báða leiki liðanna þar í undanúrslitunum.
Meira...
Mánudagur 12. apríl 2010
Það er kominn tími á að vinna KR í Hólminum
Fjórði leikurinn í rimmu Snæfells og KR verður hér heima í kvöld og nái Snæfell sigri er liðið komið í úrslitin en tímabilið búið hjá KR. Það er því gríðarlega mikið í húfi fyrir bæði lið í kvöld, sannakallaður úrslitaleikur og ekki verra að fá hann hér á heimavelli. Í síðasta leik liðanna hér heima fór spennustig leikmanna og stuðningsmanna á yfirsnúning í upphafi leiks þannig að þegar leikurinn hófst þá datt allt í dúnalog og dauðaþögn í stuðningshópnum og Snæfell var ekki með fyrstu mínúturnar. Nú eru allir reynslunni ríkari og verða klárir þegar leikurinn hefst enda kominn tími á að vinna KR í Hólminum eins og langhlauparinn Ingi Þór orðaði það.
Meira...
Síða 18 af 86:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 - 18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86