Stykkishólmspósturinn
19. júní 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Laugardagur 27. febrúar 2010
Snæskallinn vann drengjaflokkinn
Skallagrímur og Snæfell eru með sameiginlegan drengjaflokk í Íslandsmótinu og í bikarkeppninni í vetur. Strákarnir komust alla leið í úrslitaleikinn í bikarnum sem leikinn var dag ásamt öðrum bikarúrslitaleikjum í yngri flokkum. Snæskallinn mætti sameiginlegu liði Hamars og Þórs Þorlákshöfn í úrslitaleiknum og hafði sigur 80-78 eftir jafnan og spennandi leik. Egill Egilsson átti leik lífs síns skoraði 41 stig, tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Næstir honum komu Kristján Pétur með 17 stig og Trausti 7. Sjá tölfræðina hér.


Fimmtudagur 25. febrúar 2010
Fjórar frá Snæfelli í landsliðum

Þjálfarar U16 og U18 ára landsliðanna hafa nú valið 12 manna hópa sína fyrir Norðurlandamótið í körfu sem haldið verður í Svíþjóð í maí.  Fjórar stelpur úr Snæfelli voru valdar í þessi lið og allar eru þær að leika með meistaraflokki Snæfells.  Það eru þær Hildur Björg Kjartansdóttir sem er í U16 ára liðinu og þær Björg Guðrún Einarsdóttir, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir og  Sara Mjöll Magnúsdóttir sem voru valdar í U18 ára liðið.



Mánudagur 22. febrúar 2010
Hann var í lagi þessi!! - Snæfell bikarmeistari

Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Snæfell varð bikarmeistari á laugardaginn þegar liðið lagði Grindavík 92-81.  Snæfellsliðið lék vel og sigurinn var sanngjarn eins og allir sáu annaðhvort í höllinni eða í sjónvarpinu.  Myndasyrpa, video og meiri texti kemur síðar látum eina mynd duga í bili sem hægt er að smella á til að fá stærri.


Föstudagur 19. febrúar 2010
Úrslitaleikurinn á morgun - Hlynur tæpur

Nú styttist í einn af hápunktum körfuboltatímabilsins, sjálfan bikarúrslitaleikinn í Laugardalshöllinni á morgun kl.16. Þó Íslandsmeistaratitilinn sé stór þá er úrslitaleikurinn í bikarkeppninni alltaf stóri leikurinn á tímabilinu, enda bara einn leikur þar sem allt er lagt undir. Að sögn Inga er allur hópurinn klár þó sumir séu smálaskaðir. Meira...


Fimmtudagur 11. febrúar 2010
Snæfellingar, æfing í kvöld !

Snæfell mætir Fjölni í kvöld í Grafarvoginum í Iceland Express deildinni og gefst þá kjörið tækifæri fyrir stuðningsfólk liðsins að taka létta æfingu á pöllunum fyrir úrslitaleikinn í bikarnum þann 20.febrúar.  Leikur Snæfells og Fjölnis hér heima var stórskemmtilegur og spennandi og ekki vafi á að svo gæti orðið í kvöld líka.  Meira...


Fimmtudagur 11. febrúar 2010
Sigur gegn Val

Snæfell vann Val í gærkvöldi 69-58 í mikilvægum leik í botnbaráttu Iceland Espress deildar kvenna.  Aðeins tvö stig skildu liðin að fyrir leikinn, Valur var á botninum með 4 stig og Snæfell þar fyrir ofan með 6.  Með sigrinum náði Snæfell því að slíta sig frá botninum en það er eitt lið sem fellur.  Á laugardaginn leikur Snæfell svo síðasta heimaleik sinn í deildarkeppninni á tímabilinu þegar liðið mætir Njarðvík.  Meira...


Mánudagur 8. febrúar 2010
Snæfell í úrslitaleikinn

Snæfell sigraði Keflavík öðru sinni á fjórum dögum í gær þegar liðin mættust í undanúrslitum bikarkeppninar í Keflavík.  Sigur Snæfells var enn öruggari í gær en á fimmtudaginn 64-90 og með honum tryggði Snæfell sig í úrslitaleikinn í Laugardalshöllinni þann 20.febrúar.  Meira...


Sunnudagur 7. febrúar 2010
Guðni og Thuesen í stuði
Mikil meiðsli hafa verið að hrjá lið Guðna Valentínussonar Bakken Bears í Danmörku og það hefur gefið Guðna tækifæri á auknum leiktíma.  Hann hefur nýtt tækifærið vel og gengt stærra hlutverki en áður í liði Bakken Bears undanfarið og var í byrjunarliðinu í gær þegar Bakken sigraði BK Amager 112-117. Meira...


Síða 20 af 86: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86



19. júní:
- Ferðafélag Snæfellsness Fjarðarhornsgata kl. 20 frá Mjósundabrú.


22. júní:
- Lífsbjörg undir Jökli sólstöðuganga


24. júní:
- Orgelstykki Friðrik Vignir Stefánsson


27. júní:
- Orgelstykki&#58; Sveinn Arnar Sæmundsson


29. júní:
- Orgelstykki&#58; Örn Magnússon &amp; Marta Guðrún Halldórsdóttir