Föstudagur 16. október 2009
Öruggur sigur hjá Snæfelli
Snæfell vann í gærkvöldi tiltölulega auðveldan 90-58 sigur á Hamri í fyrsta leik sínum í Iceland Expressdeildinni á þessu tímabili.
Hamar sigraði 1.deildina á síðasta ári nokkuð örugglega en þeir virtust ekki vera tilbúnir í slaginn í efstu deild í kvöld og gáfust hreinlega upp í seinni hálfleik.
Meira...
Miðvikudagur 14. október 2009
Flottur sigur hjá stelpunum
Snæfell byrjaði vel í Iceland Expressdeild kvenna í kvöld þegar liðið sigraði Val 59-63 í spennuleik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Leikurinn fór fram á Hlíðarenda og með sigrinum er Snæfell búið að vinna eitt af þeim liðum sem spáð var ofar í deildinni í árlegri
spá forráðamanna, fyrirliða og þjálfara liðanna í upphafi móts. Kirsten Green var stigahæst með 16 stig, Gunnhildur 14 og Berglind 13. Sjá nánari tölfræði
hér.
Þriðjudagur 6. október 2009
Öruggur sigur í drengjaflokki
Drengjaflokkur Snæfells varð fyrstur flokka Snæfells til að hefja keppni á íslandsmótinu en hann gersigraði lið Vals í kvöld
100-38 en liðin eru í A-riðli. Snæfell er reyndar í samstarfi við Skallagrím í drengjaflokki og leikur flokkurinn því heimaleiki sína til skiptis í Stykkishólmi og Borgarnesi. Þetta er greinilega feiknasterkt lið hjá Snæskallanum eða Snægrími eins og gárungarnir kölluðu liðið í kvöld og það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu hjá drengjaflokknum í vetur.
Tölfræðin
Föstudagur 2. október 2009
Guðni með Bakken í sigri
Bakken Bears, lið Guðna Valentínusarsonar sigraði í gærkvöldi lið Åbyhøj 76-84 á útivelli í dönsku deildinni sem er nýhafin. Bakken Bears urðu meistarar í fyrra og Guðni gerði sem kunnugt er samning við þá sl.vor en hann lék með B-liði þeirra í fyrra. Guðni spilaði tæpar 9 mínútur en náði ekki að skora. Sjá tölfræðina
hér.
Meira...
Fimmtudagur 1. október 2009
Tap gegn Grindavík
Snæfell varð enn að bíta í það súra að tapa fyrir Grindavík í fjögurra liða úrslitum Poweradebikarsins en þessi lið mættust líka í fyrra og þá sigraði Grindavík einnig. Í leiknum í gær leiddi Grindavík nánast allan tímann og náðu mest 19 stiga forskoti en Snæfell gafst aldrei upp og náði muninum niður í 6 stig minnst en lokatölur urðu
95-89.
Meira...
Miðvikudagur 30. september 2009
Snæfell mætir Grindavik í kvöld
Eftir öruggan sigur á Stjörnunni s.l. sunnudag er Snæfell komið í undanúrslitin í Poweradebikarnum. Líkt og í fyrra þá mætir Snæfell þar Grindavík og nær vonandi að snúa úrslitunum í fyrra við. Í fyrra léku liðin hér á heimavelli Snæfells og þá sigraði Grindavík
71-74 eftir arfaslakan 3.leikhluta hjá Snæfelli.
Meira...
Þriðjudagur 29. september 2009
Karfan byrjuð
Keppnistímabilið í körfunni hófst síðustu helgi en þá léku báðir meistaraflokkar Snæfells í Poweradebikarnum.
Stelpurnar mættu KR í Reykjavík og töpuðu stórt fyrir sterku liði KR 71-39.
KR stelpurnar byrjuðu strax af miklum krafti og náðu tuttugu stiga forskoti og eftir það var þetta á brattann hjá Snæfellsstelpunum.
Meira...
Þriðjudagur 22. september 2009
Snæfell mætir Stjörnunni
Snæfell mun hefja keppnistímabilið með leik gegn bikarmeisturum Stjörnunnar í 2.umferð Poweradebikars karla. Það varð ljóst í kvöld þegar Stjarnan sigraði Hamar örugglega 103-83. Leikur Snæfells og Stjörnunnar verður hér heima í Fjárhúsinu næsta sunnudag, 27.sept. kl.19:15.
Síða 26 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 - 26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85