Stykkishólmspósturinn
22. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Þriðjudagur 15. september 2009
Meistaraflokkarnir klárir

Starfinu hjá meistaraflokkunum í körfunni var formlega ýtt úr vör s.l. fimmtudag með kynningu á starfinu, leikmannahópunum og einnig undirskriftum leikmannasamninga.  Ingi Þór þjálfari beggja flokkanna rakti hvernig gengið hefði fram að þessu hvað framundan væri.  Hann var hógværðin uppmáluð varðandi góðan árangur strákanna fram að þessu en þeir hafa enn ekki tapað leik undir hans stjórn og unnu sem kunnugt er Reykjanes Cup æfingamótið. Meira...


Fimmtudagur 10. september 2009
Meistaraflokkar Snæfells kynna leikmenn og starfið

Í kvöld kl.18:00 munu stjórnir meistaraflokka Snæfells standa fyrir kynningu í Íþróttamiðstöðinni á leikmönnum sem og á starfinu í vetur.  Fyrirhugað var að hafa þessa kynningu í síðustu viku en henni var frestað þar til nú en það er ekki verri tímapunktur því bæði liðin hafa nú lokið nokkrum æfingaleikjum.  Það verðu því fróðlegt að heyra í Inga Þór þjálfara liðana fjalla um starfið það sem af er og veturinn framundan ásamt því að svara fyrirspurnum. Meira...


Miðvikudagur 9. september 2009
Snæfell lagði Fjölni

Snæfell lék æfingaleik við Fjölni í kvöld en Fjölnir eru eins og kunnugt er nýliðar í Iceland Expressdeildinni í ár.  Sem fyrr er Bárður þjálfari Fjölnis og einnig gekk Ingvaldur Magni til liðs við Fjölni í vor.  En þeir félagar máttu játa sig sigraða af Snæfelli í kvöld 65-97.   Meira...


Þriðjudagur 8. september 2009
Vetrarstarfið að fara af stað hjá Snæfelli
Nú er vetrarstarfið að fara á fullt hjá Snæfelli og æfingatímar klárir í Íþróttamiðstöðinni.  Æfingar samkvæmt æfingatöflunni hefjast í dag en heildartöflu yfir æfingatímana í Íþróttamiðstöðinni má sjá á heimasíðu Snæfells snaefell.is.


Föstudagur 4. september 2009
Snæfell sigraði Reykjanes Cup
Snæfell sigraði lið Njarðvíkur 99-81 í úrslitaleik æfingamótsins Reykjanes Cup Invitational. Snæfell lék 3 leiki í mótinu og sigraði þá alla. Vann Grindavík í 1.leik 86-79, Breiðablik 95-59 og loks Njarðvík í úrslitaleiknum. Snæfell átti einnig besta mann mótsins og það var Jón Ólafur sem var sjóðheitur á mótinu og var með enn einn stórleikinn í úrslitaleiknum þar sem hann skoraði 31 stig. Meira...


Fimmtudagur 3. september 2009
Snæfell í úrslitaleikinn
Snæfell sigraði lið Breiðabliks örugglega 95-59 í kvöld á æfingamótinu Reykjanes Cup Invitational. Jón Ólafur var stigahæstur í kvöld hjá Snæfelli með 25 stig og heldur því ágætis meðaltali í mótinu en hann var með 27 í fyrsta leiknum. Emil Þór stimplaði sig vel inn og kom næstur með 16 stig. Snæfell er þar með komið í úrslitaleikinn í mótinu gegn Njarðvík.  Meira...


Miðvikudagur 2. september 2009
Snæfell kynnir meistaraflokkana

Í kvöld munu meistarflokksráð Snæfells kynna báða leikmannahópa meistaraflokka Snæfells í körfuboltanum í vetur.  Einnig munu leikmenn sem enn eiga eftir að skrifa undir samninga við félagið undirrita sína samninga og þar með verða hópar beggja meistaraflokka Snæfells fullmótaðir fyrir tímabilið.  Kynningin og undirskrift samninganna mun fara fram í andyri Íþróttamiðstöðvarinnar og hefjast kl.21:00.



Miðvikudagur 2. september 2009
Sigur hjá Snæfelli í fyrsta leik

Ingi Þór
Ingi Þór Steinþórsson þjálfari meistaraflokka Snæfells landaði sigri í sinum fyrsta leik sem þjálfari Snæfells þegar liðið hóf leik á æfingamótinu Reykjanes Cup Invitational.  Snæfellsstrákarnir  mættu þar liði Grindavíkur og báru sigur úr bítum 86-79.  Meira...


Síða 27 af 85: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85



24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9


26. maí:
- Hvítasunna


12. júní:
- Síðasti dagur til að innrita í Tónlistarskóla Stykkishólms