Stykkishólmspósturinn
24. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 6. maí 2009
Ingi Þór ráðinn þjálfari Snæfells

Nýr þjálfari meistaraflokka Snæfells Ingi Þór Steinþórsson skrifaði undir 3 ára samning við félagið s.l. föstudag 1.maí í Íþróttamiðstöðinni og voru margir úr stuðningshópi Snæfells viðstaddir enda ætíð stór stund þegar nýr þjálfari er ráðinn en þetta er þó í fyrsta sinn sem stuðningsmönnum er boðið að vera viðstaddir og þeir létu sig ekki vanta. Meira...


Sunnudagur 26. apríl 2009
Stúlknaflokkurinn í 2.sæti

Stúlknaflokkur Snæfells í körfunni hefur staðið í ströngu um helgina en þá var leikið til úrslita í yngri flokkunum.  Stelpurnar komust í úrslitaleikinn eftir öruggan 68-40 sigur á Njarðvík í undanúrslitum.  Í úrslitaleiknum mættu þær svo liði Keflavíkur sem reyndist of sterkar fyrir Snæfellsstúlkur sem áttu í nokkrum villuvandræðum í leiknum.  Keflavík sigraði 56-41 og urðu því Íslandsmeistarar í stúlknaflokki en Snæfell má vel við una að eiga næst besta lið landsins í þessum flokki.


Föstudagur 27. mars 2009
Næstved
Næstved tapaði þriðja leiknum gegn Bakken Bears í undanúrslitunum í Danmörku. Þriðji leikurinn var á gær á heimavelli Bakken Bears og lauk með 75-92 sigri Bakken. Fjóra sigra þarf til að komast í úrslitaleikina og Geof og hans lærisveinar í Næstved eru því komnir upp að vegg líkt og Snæfell nú. Meira...


Föstudagur 27. mars 2009
Braca hættur með Snæfelli
Slobodan Subasic mun ekki leika meira með Snæfelli það sem eftir er leiktíðar.   Það var ákvörðun þjálfaranna að láta staðar numið í samstarfinu og þar einkum ráðið móralskar ástæður en því er ekki að neita heldur að Slobodan hefur verið mjög slakur í síðustu leikjum.   Meira...


Mánudagur 23. mars 2009
Stórtap hjá Snæfelli í fyrsta leik

Snæfell og Grindavík léku fyrsta leik sinn í undanúrslitum Íslandsmótsins í kvöld. Leknum lauk með sanngjörnum sigri Grindavíkur 110-82. Það var aðeins í byrjun að Snæfell hélt í við Grindavík og reyndar gott betur var með forystu þar til að Grindavík jafnaði 17-17 þegar 1.leikhluti var hálfnaður. Eftir það skildu leiðir og Snæfell fór á hælana og náði sér ekki upp aftur. Meira...


Mánudagur 23. mars 2009
Tap hjá Geof og Næstved
Lið Geof Kotila Team Fog Næstved tapaði leik nr.2 gegn Bakken Bears í undanúrslitum dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Staðan var jöfn 75-75 að loknum venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja.  Í framlengingunni náði Bakken Bears að síga yfir í blálokin og sigruðu á endanum 91-96. Staðan er því orðin 2-0 fyrir Bakken Bears í viðureign liðanna.




Mánudagur 23. mars 2009
Fyrsti leikur hjá Snæfelli í kvöld

Fyrsti leikur Snæfells og Grindavíkur í undanúrslitum úrvalsdeildarinnar, verður í Grindavík í kvöld.  Liðin mættust einnig í undanúrslitum í fyrra og þá eins og nú var Grindavík með heimaleikjaréttinn eftir að hafa endað í 3.sæti í deildarkeppninni en Snæfell í 5.sætinu. Meira...


Föstudagur 20. mars 2009
Tap hjá Geof og Næstved
Geof Kotila og lið hans Næstved eru komnir í undanúrslitin í dönsku úrvalsdeildinni þar sem liðið mætir Bakken Bears frá Ársósum fyrrum Keflavíkurbönunum og lið Geofs. Bakken átti heimaleik og þar mættu 4.816 áhorfendur til að fylgjast með sem er met. Bakken vann fremur auðveldan 92-74 sigur og ljóst að Næstved fer ekki mikið lengra nema það mæti hressar til leiks á heimavelli sínum við Rólegheitagötu (Rolighedsvej) í Næstved. Snæfellingurinn Martin Thuesen var með 3 stig fyrir Bakken. Sjá má myndband með 1.leiknum hér.


Síða 29 af 85: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85



24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18