Miðvikudagur 21. janúar 2009
Góður sigur hjá stelpunum
Snæfellsstelpurnar sigruðu lið Grindavíkur 68-81 í kvöld og unnu því báða leikina á milli liðanna í deildarkeppninni. Snæfell leiddi allan tímann og vann alla leikhlutana þannig að sigurinn var sanngjarn. Gunnhildur lék vel í kvöld, dró vagninn framan af og Kristen Green vex með hverjum leik eftir því sem mínútunum fjölgar í Snæfellsbúningnum.
Meira...
Mánudagur 19. janúar 2009
Snæfell mætir Þór í kvöld fyrir norðan
Snæfell heldur norður fyrir heiðar til Akureyris eins og Bó sagði forðum. Á Akureyris mætir Snæfell Þórsurum og nú snýst málið um það fyrir Snæfell að verja 4.sætið. Fyrir Þórsarana er málið að koma sér upp í 8.sætið og þar með inn í úrslitakeppnina.
Meira...
Föstudagur 16. janúar 2009
Auðveldur sigur hjá Snæfelli
Hún varð ekki hörð Vesturlandsrimman í þetta sinnið á milli Snæfells og Skallagríms í Fjárhúsinu í kvöld þegar Snæfell lagði Skallagrím án teljandi vandræða 104-62. Það var þó ekki mikill munur á liðunum í fyrri hálfleik og Snæfell náði aldrei að komast lengra en um tíu stig frá Skallagrími og virtist vanta áhugann í að gera meira en bara að halda smá forystu.
Meira...
Föstudagur 16. janúar 2009
Snæfell - Skallagrímur í kvöld
Snæfell mætir liði Skallagríms kl.19:15 í kvöld í Fjárhúsinu. Liðin hafa bæði lent í mannahremmingum í vetur þó leikmannaraunir Snæfells séu smá vandamál við hliðina á hremmingum Skallagrímsmanna. En þeir fengu þó einn öflugan úr herbúðum Snæfells og það er Sveinn Davíðsson sem hefur heldur betur skilað sínu til þessa og verður gaman að sjá hvort karlinn verður ekki í stuði á sínu heimaparketi.
Meira...
Fimmtudagur 15. janúar 2009
Geof Kotila enn í bikarúrslitum
Geof Kotila hélt áfram þar sem frá var horfið í Danmörku og kom nýja liði sínu Næstved i úrslit bikarsins í Danmörku s.l.helgi. Þetta var í 7unda skiptið sem Geof fer í úrslit bikarsins í Danmörku og hér heima vann hann sem kunnugt er bikarinn með Snæfelli síðasta vor. Nú var Geof mættur með sitt nýja lið, Team Fog Næstvedí leik gegn Bakken Bears sem Geof þjálfaði á sínum tíma og vann einmitt bikarinn með en með því liði leikur nú annar gamall Snæfellspiltur, Martin Thuesen.
Meira...
Miðvikudagur 14. janúar 2009
Botnslagur hjá stelpunum
Snæfell mætir Fjölni kl.19:15 í kvöld í Iceland Expressdeild kvenna. Það er ekki vafi á þvi að Snæfellsstelpurnar ætla ekki að gefa Fjölni neitt í kvöld heldur sækja sinn annan sigur og komast þar með upp fyrir Fjölni í deildinni. Fjölnir vann fyrri leik liðanna í Reykjavík þar sem Snæfell náði sér engan vegin á strik. Kirsten Green leikur sinn fyrsta heimaleik með Snæfelli og verður spennandi að sjá hvort hún nái sér á strik í kvöld.
Meira...
Laugardagur 10. janúar 2009
Snæfell ætlar að styrkja hópinn
Hópur stuðningsmanna Snæfells og stjórn meistaraflokks karla í körfunni, komu saman á fundi á Narfeyrarstofu í dag og ræddu stöðu mála hjá meistaraflokki karla nú þegar Íslandsmótið er hálfnað. Á fundinum var ákveðið að styrkja liðið og fá til liðsins erlendan leikmann í stöðu leikstjórnanda. Ákveðinn leikmaður er þar í myndinni og sá er þekkt stærð hjá þjálfurum liðsins og verður strax farið í það semja við hann og koma honum sem fyrst til landsins og til liðs við liðið. Eftir heimaleikinn við Skallagrím 16.janúar n.k. verður haldinn fundur með stjórninni, leikmönnum og stuðningsmönnum þar sem málið verður kynnt betur og því skorað á alla velunnara Snæfells að fjölmenna á þann leik.
Meira...
Miðvikudagur 7. janúar 2009
Snæfell mætir KR í kvöld
Nú er seinni hluti Íslandsmótsins að fara í gang í körfunni. Hjá stelpunum byrjar Snæfell nýja árið í með leik gegn KR í kvöld í DHL-höllinni í Reykjavík. Kristen Green er mætt og það verður spennandi að sjá hvað hún gerir í sínum fyrsta leik.
Meira...
Síða 32 af 86:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 - 32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86