Föstudagur 31. október 2008
Naumt tap gegn KR
Snæfellsliðið sýndi það í kvöld að það býr mikið í liðinu og þar kemur maður í manns stað. Snæfell sem lék í kvöld án Hlyns Bæringssonar byrjaði illa og tapaði 1.leikhluta 30-17 en vann 2. og 3.leikhlutan en tapaði 4.leikhlutanum með einu stigii 18-17. Það var því byrjunarskrekkurinn sem varð liðinu að falli nú en liðið sýndi þó mikla baráttu ao koma til baka þó strákarnir hafi á endanum orðið að játa sig sigraða með 11 stiga mun 91-90. Í 4.leikhluta voru Snæfellspiltar búnir að koma sér inn í leikinn og munurinn kominn niður í 3 stig þegar rúmar 2.mín voru eftir. Það verður að teljast gott að vera inn í leiknum fram á lokamínutur sé litið til þess að liðið tapaði 29 boltum en baráttan var greinilega góð sem og vörnin því KR tapaði líka mörgum boltum (20) og fráköstin hjá Snæfell án frákastakóngsins Hlyns voru 44 á móti 42 hjá KR og það er mjög gott.
Tölfræðin
Föstudagur 31. október 2008
Strákarnir að standa sig
Snæfell vann góðan sigur á Þór Akureyri s.l. föstudag.
Snæfell var með yfirhöndina allan leikinn þó munurinn hafi aldrei verið mikill lengst af.
Snæfell náði af og til að auka muninn en Þór kom jafnan til baka þar til að þá þraut örendið í 4.leikhluta þegar Snæfell skellti á Jordancopressu eftir skoraða körfu og náði þannig muninum í 20 stig í lokin.
Meira...
Föstudagur 24. október 2008
Snæfell sigraði Þór 88-71
Snæfell vann Þór Akureyri í kvöld 88-71. Munurinn var þó ekki svo mikil lengst af leiks þó frumkvæðið hafi verið Snæfells allan leikinn. Það var einkum Guðmundur Jónsson sem hélt Þórsurum inn í leiknum en hann átt alveg magnaðan leik, virtist skora að vild á köflum. Það munaði mikið um það í leik Þórsara að Óðinn Ásgeirsson gat ekki leikið með í kvöld sökum veikinda.
Meira...
Föstudagur 24. október 2008
Snæfell - Þór
Leikur Snæfells og Þórs er hafinn og er í lýsingu á tölfræðivef KKÍ
Eitthvað er tölfræðina að stríða mannskapnum hér en staðan er nú 27-16 og 7:33 eftir af 2.leikhluta.
Staðan í hálfleik er 43-38
Það er fyrst og fremst Guðmund Jóns sem hefur séð um að halda Þór inn í leiknum kom með 10 stigí röð. Hjá Snæfelli hefur Hlynur hirt svo mörg frákost að stattarinn brann yfir. Snæfell hefur leikið ágætlega á köflum en misstu forystuna niður í restina þegar Isom tók smá sprett fyrir Þór.
Höldum áfram inn á lýsingarsíðu Stykkishólmspóstsins
Föstudagur 24. október 2008
Snæfell - Þór Ak. í kvöld
Snæfell á heimaleik í kvöld gegn Þór Akureyri og hefst leikurinn kl.19:15. Bæði lið eru búin að leika tvo leiki og bæði unnu seinni leikinn af þeim. Þór sigraði Breiðablik örugglega á Akureyri og Snæfell tók Skallagrím í kennslustund í Borgarnesi.
Meira...
Föstudagur 17. október 2008
Skallagrímur - Snæfell í kvöld
Þá er komið að Vesturlandsslagnum hinum fyrri á tímabilinu og þessi verður um margt athyglisverður. Bæði lið eru gjörbreytt og hafa séð á eftir mörgum leikmönnum og þjálfurunum. Sveinn Davíðs leikur í fyrsta sinn gegn sínum gömlu félögum í Snæfelli. Sveinn hefur farið mjög vel af stað með Skallagrími og verið einn af þeirra lykilmönnum en hann fær ekkert gefins í kvöld. En hvað sem öllum breytingum líður þá er þetta leikur sem Snæfell á að taka mæti menn með hugarfarið í lagi í Borgarnesið. Þetta er jú líka afmælisvika félagsins sem verður 70 ára á fimmtudaginn 23.okt. og er ekki við hæfi að landa sem flestum sigrum í vikunni í tilefni afmælisins? Áfram Snæfell !
Miðvikudagur 15. október 2008
Stelpurnar hefja leik í kvöld
Snæfell spilar sinn fyrsta leik í Iceland Expressdeild kvenna í kvöld þegar liðið mætir Hamri í Hveragerði kl.19:15. Snæfelli var spáð 7.-8.sætinu í deildinni á sínu fyrsta ári og Hamri sætinu þar fyrir ofan. Þetta gæti því orðið hörku leikur og nái stelpurnar að yfirstíga byrjunarhrollinn fljótt þá getur allt gerst. Leikurinn hefst kl.19:15 og hægt verður að fylgjast með honum á tölfræðisíðu
KKÍ.
Sunnudagur 12. október 2008
Snæfell mætir Keflavík í meistarakeppninni
Bikarmeistarar Snæfells mæta Íslandsmeisturum Keflavíkur í meistarkeppninni kl.19:15 í dag í Keflavík. Sviptingar síðustu viku gera það að verkum að bæði lið mæta með breyta hópa til leiks þar sem bæði liðin hafa rift samningum við sína erlendu leikmenn. Það kemur því til með að reyna á verulega á mannskapinn hjá Snæfelli núna og í leikjum vetrarins og ekki síður á stuðningsmenn Snæfells að mæta á leiki liðsins og styðja liðið í þeirri erfiðu baráttu sem er framundan. Þeir sem ekki komast á leikinn geta fylgst með honum á tölfræðisíðu
KKÍ. Áfram Snæfell!
Meira...
Síða 34 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 - 34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85