Stykkishólmspósturinn
25. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Föstudagur 20. júní 2008
Snæfellsnes á Pæjumóti
Stelpurnar í 5. flokki Snæfellsness kepptu á dögunum á Pæjumóti í Vestmannaeyjum. Pæjumótið var það best heppnaða hingað til að mati mótshaldara og stóðu okkar stelpur sig með miklum sóma. Snæfellsnes sendi tvö lið til keppni. A-liðið lenti í 9. sæti og b-liðið í því 11. Meira...


Sunnudagur 25. maí 2008
Bráðabani og sviptingar á Íþróttamóti Snæfellings

Íþróttamót Snæfellings í hestaíþróttum var haldið í Stykkishólmi þann 18. Maí sl.  Hesteigendafélag Stykkishólms sá um undirbúning og framkvæmd mótsins í samvinnu við stjórn Snæfellings,  en í gegnum árin hefur það verið víðtekin venja að íþróttamótin færist á milli þéttbýlisstaðanna á Norðanverðu Snæfellsnesi. Meira...


Fimmtudagur 22. maí 2008
Daði vann Héraðsmeistarahelluna

Hið árlega meistaramót héraðsmeistaranna í golfi fór fram á Víkurvelli sunnudaginn 18. mai. Þáttökurétt á mótinu hafa leikmenn héraðsmeistaranna ásamt bifreiðastjóra þeirra, Simoni Sturlusyni. Meira...


Laugardagur 17. maí 2008
Jordanco Davitkov næsti þjálfari Snæfells

Búið er að ganga frá ráðningu arftaka Geof Kotila í þjálfarstarfinu hjá Snæfelli. Félagið hefur samið við Jordanco Davitkov frá Makedoníu en hann hefur undanfarin ár þjálfað landslið Makedóníu. Davitkov sem verður 45 ára í haust er menntaður í íþróttafræðum frá University “St. Kiril and Metodij” í Skopje og hefur þjálfað síðan 1999. Snæfell gerði tveggja ár samning við Jordanco Davitkov og bindur miklar vonir við störf hans.
Meira...


Laugardagur 17. maí 2008
Sex leikmenn Snæfells í landsliðshópum
Snæfell á sex leikmenn í þeim æfingahópum sem kallaðir hafa verið saman fyrir komandi Evrópumót í körfunni. Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson hafa verið valdir í 23 manna æfingahóp fyrir Evrópukeppnina í haust hjá körlunum. Hjá stelpunum hafa 4 af leikmönnum meistaraflokks Snæfells verið valdar í 20 leikmanna æfingahóp í U-16 liðinu það eru þær Berglind Gunnarsdóttir, Björg G. Einarsdóttir, Hrafnhildur S. Sævarsdóttir og Sara M. Magnúsdóttir.


Miðvikudagur 30. apríl 2008
Snæfellstelpur á Norðurlandamóti
Snæfell á þrjá leikmenn sem spila á Norðurlandamóti unglinga sem fram fer í Solna í Svíþjóð þessa dagana. Það eru þær systur Berglind og Gunnhildur Gunnarsdætur og svo Hrafnhildur Sævarsdóttir. Gunnhildur leikur með 18 ára landsliðinu og hún mun hefja leik í kvöld þegar Ísland mætir Dönum kl.19. Meira...


Miðvikudagur 23. apríl 2008
Frí rútferð á leik Snæfells og Keflavíkur
Á morgun fer Snæfell til Keflavíkur til að leika 3.leikinn í úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn.  Snæfell verður að vinna til að eiga möguleika á titlinum og því er stuðningurinn mikilvægur.  Hörður Sigurðsson og Gunnar Hinriksson eru svo rausnarlegir að bjóða fría rútuferð á leikinn fyrir stuðningsmenn Snæfells og verða 50 sæti í boði.  Farið verður frá Bensó kl.15:00.  Fyrstir koma fyrstir fá.


Mánudagur 21. apríl 2008
Snæfell - Keflavík í kvöld

Snæfell mætir Keflavík í kvöld kl.20:00 í 2.leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.  Staðan er 0-1 fyrir Keflavík eftir naumt tap í Keflavík 79-81 þar sem sigurinn hefði getað lent hvoru megin sem var.  Því miður lenti hann Keflavíkurmegin og því er pressan á Snæfelli í kvöld.   Sigur verður hreinlega að vinnast, annars er staða orðin mjög erfið. Meira...


Síða 38 af 85: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85



25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19