Stykkishólmspósturinn
19. júní 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Fimmtudagur 10. apríl 2008
Snæfell komið i 2-0
Snæfell sigraði Grindavík 76-71 í kvöld nokkuð sannfærandi eftir að Grindavík hafði byrjað mun betur. Hlynur Bærings átti frábæran leik 21 skráð frákast, 20 stig 7 varin skot. Snæfell er því komið í 2-0 í viðureigninni við Grindavík og þarf einungis einn sigur í viðbót til að komast í leikina um Íslandsmeistaratitilinn. Næsti leikur verður í Grindavík á laugardaginn og þá er bara að láta hné fylgja kviði og klára séríuna strax, þó gjaldkerinn vilji fleiri heimaleiki. Meira...


Fimmtudagur 10. apríl 2008
Snæfell - Grindavík Leiklýsing
Leikurinn er í lýsingu á vef KKÍ en einnig koma e.t.v. komment inn á vefinn hjá okkur á lýsingarsíðuna sem hægt er að komast á hér.  Nú þegar klukkan  rétt orðin sjö er húsið þétt setið á pöllum sem gólfi.  Rútan úr Grindavík er loksins búin að skila sér lenti í bilun í Borgarnesi og nú er verið að reyna að þjappa svo allir komist nú inn í litla Fjárhúsið.


Fimmtudagur 10. apríl 2008
Snjólfur sigrar enn
Snjólfur Björnsson Snæfelli gefur ekkert eftir í frjálsu íþróttunum en þar hefur hann verið í fremstu röð á landinu í sínum flokki undanfarin ár.  Síðastliðna helgi tók Snjólfur, ásamt fleiri krökkum úr HSH, þátt í Meistaramóti Íslands 12-14 ára. Meira...


Fimmtudagur 10. apríl 2008
Snæfell - Grindavík í kvöld kl.19:15

Í kvöld verður önnur viðureign Snæfells og Grindavíkur í undaúrslitunum og ljóst að þar verður um hörkuviðureigna að ræða.  Það verður án vafa troðfullt hús, Grindvíkingar bjóða upp á fría rútuferð á leikinn og ætla af stað kl.15 þannig að þeir verða mættir tímanlega.  Það verður því ekki síður stemming á pöllunum en vellinum. Meira...


Mánudagur 7. apríl 2008
Snæfell sigraði Grindavík
Snæfell er búið að vinna marga leikina á þessu tímabili sem liðið hefði áður tapað, leikið illa og unnið samt. Sigur liðsins kom því ekki á óvart í kvöld jafnvel þó það hafi ekki litið vel út þegar um 4 mín voru eftir og Grindavík 9 stigum yfir. En þetta sýnir styrk Snæfells og muninn á því nú og áður að það tekur þessa jöfnu leiki þrátt fyrir að leika ekki sérlega vel. Grindavík sýndi það í kvöld að þeir eru firna sterkir og því ljóst að spennandi leikir eru framundan þó staða Snæfells sé óneitanlega sterkari nú komið í 1-0 og næsti leikur á heimavelli n.k. fimmtudagskvöld kl.19:15.


Mánudagur 7. apríl 2008
Snæfell mætir Grindavík í kvöld kl.20.

Snæfell leikur fyrsta leik sinn gegn Grindavík í kvöld í undanúrslitunum og nú þarf þrjá sigra til þess að komast í úrslitaleikina um Íslandsmeistaratitilinn.  Sem fyrr er það gríðarlega mikilvægt að byrja vel og vera skrefinu á undan.  Snæfellspiltar geta farið fullir sjálfstrausts í þennan leik í kvöld því þeir hafa leikið vel nú í síðustu leikjum.  Slógu Njarðvík út 2-0 í 8.liða úrslitunum og ekki síður þá hefur Snæfell haft gott tak á Grindavík í vetur.  Meira...


Fimmtudagur 3. apríl 2008
Snæfell mætir Grindavík í undanúrslitum
Eftir leiki kvöldsins í úrslitakeppninni í Iceland Expressdeildinni er það ljóst að Snæfell mætir Grindavík í undanúrslitunum og Keflavík mætir ÍR. Fyrsti leikur Snæfells og Grindavíkur verður í Grindavík næsta mánudag 7.apríl og þar sem leikurinn verður í beinni á Stöð2 sport þá verður hann kl.20:00.  Sjá leikjaniðurröðun á vef KKÍ.


Mánudagur 31. mars 2008
Snæfell - Njarðvík Textalýsing
Það lítur allt út fyrir það að KKÍ verði ekki með tölfræðilýsingu héðan úr Hólminum í kvöld og því munum við á Stykkishólms-Póstinum sjá um það samkvæmt venju. Nú klukkan sjö er húsið orðið þéttsetið og spenna í lofti. Lýsinguna að leik Snæfells og Njarðvíkur er að finna hér.


Síða 40 af 86: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86



19. júní:
- Ferðafélag Snæfellsness Fjarðarhornsgata kl. 20 frá Mjósundabrú.


22. júní:
- Lífsbjörg undir Jökli sólstöðuganga


24. júní:
- Orgelstykki Friðrik Vignir Stefánsson


27. júní:
- Orgelstykki&#58; Sveinn Arnar Sæmundsson


29. júní:
- Orgelstykki&#58; Örn Magnússon &amp; Marta Guðrún Halldórsdóttir