Stykkishólmspósturinn
23. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Föstudagur 30. mars 2012
Baráttan byrjar í kvöld

Snæfellspiltar hefja keppni í úrslitakeppni Íslandsmótsins í kvöld þegar þeir mæta Þór í Þorlákshöfn.  Í fyrstu umferð þarf bara að vinna tvo leiki til að komast áfram þannig að það þarf að byrja af krafti og helst að vinna fyrsta leik.  Snæfell endaði í 6.sætinu þannig að liðið á ekki möguleika á heimaleikjarétti í keppninni komi til oddaleiks en getur með því að vinna fyrsta leik náð til sín úrslitaleiknum í rimmunni. 

Meira...


Þriðjudagur 27. mars 2012
Tap í Njarðvík

Snæfell tapaði fyrir Njarðvík 85-93 í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins.  Þar með er staðan orðin 1-2 fyrir Njarðvík í rimmu liðanna en þrjá sigra þarf til að komast áfram. Leikurinn í kvöld var líkt og fyrstu tveir jafn og spennandi.  Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem Snæfell var þó meira í að elta þá náði Snæfell yfirhöndinni í þriðja leikhluta og var leiðandi þar til komið var í fjórða leikhlutann. 

Meira...


Sunnudagur 25. mars 2012
Snæfell þarf sigur

Snæfell leikur í kvöld kl.19:15 annan leikinn gegn Njarðvík í úrslitakeppni IE-deildar kvenna.  Njarðvík vann fyrsta leikinn naumlega á heimavelli og því afar mikilvægt að Snæfell vinni sigur hér heima í kvöld.  Það er ekki aðeins mikilvægt til að jafna metin heldur einnig til að brjóta ísinn og landa fyrsta sigrinum á Njarðvík í vetur.  Það myndi létta af því sálfræðilega taki sem Njarvík hefur haft á Snæfelli og setja alla pressuna yfir á Njarðvík.  Stuðningsfólk Snæfells ætti því að fjölmenna á pallana og hvetja Snæfellsstelpurnar til sigurs. ÁFRAM SNÆFELL !!



Fimmtudagur 15. mars 2012
Öruggur sigur á Deildarmeisturunum

Snæfellspiltar mættu vel stemmdir í Röstina í kvöld tilbúnir í baráttuleik til að tryggja sér sæti úrslitunum en heimamenn voru meira með hugann við móttöku á deildarmeistarbikarnum að leik loknum.  Snæfell hóf því leikinn af krafti, náði strax frumkvæðinu og vann fyrsta leikhlutann með þrettán stiga mun 21-34.  Það var munur sem Grindavík náði aldrei að brúa enda bætti Snæfell í í 2.leikhluta og þá varð forustan tuttugu stig.  Þó Grindavík hafi náð smá spretti á lokamínútunum, þá var sigur Snæfells aldrei í hættu og lokatölur urðu 89-101.

Meira...


Þriðjudagur 13. mars 2012
Frækinn sigur hjá Snæfelli

Snæfell tryggði sig inn í úrslitakeppnina í IE-deild kvenna með 59-61 sigri á Keflavíki í spennuleik sem leikinn var á heimavelli Keflavíkur.  Keflavík var ávallt með frumkvæðið í upphafi hvers leikhluta og en Snæfell koma alltaf til baka og var sterkari aðilinn í lok leikhlutanna.  Þannig hélst það leikinn út og því stóð Snæfell uppi sem sigurvegarinn í lok leiksins. 

Meira...


Mánudagur 12. mars 2012
Nóg framundan í körfunni

Ljósmynd: Þorsteinn Eyþórsson

Meistaraflokkur kvenna, stelpurnar þurfa að sigra í einum leik til viðbótar til að tryggja sér farmiða í undanúrslitin sem yrði besti árangur kvennaliðisns fyrr og síðar, sigri þær í báðum leikjunum enda þær í 3. sæti.  Allt þarf að ganga upp til þess að markmiðið náist, að komast í úrslitakeppnina.  Deildarkeppninni lýkur í þessari viku með útileik gegn Keflavík þriðjudaginn 13. mars klukkan 1915 og síðasti leikurinn í deildinni er á heimavelli laugardaginn 17. mars klukkan 1500.

Meira...


Laugardagur 3. mars 2012
Sigurgangan heldur áfram

Snæfell vann öruggan sigur 87-56 á Hamri í dag í IE-deild kvenna og heldur þar með 3.sætinu í deildinni, er komið með 28 stig en næstu lið Haukar og KR eru með 24 stig en eiga leik til góða.  Sigur Snæfells setur því pressuna á Hauka og KR sem bæði eiga erfiða útileiki í þessari umferð, Haukar gegn Val og KR gegn Fjölni.

Meira...


Miðvikudagur 29. febrúar 2012
Snæfell í 3.sætið

Snæfell sigraði KR í kvöld 82-86 í IE-deild kvenna og á sama tíma töpuðu Haukar fyrir Fjölni 67-68 sem þýðir það að Snæfell fer uppfyrir bæði þessi lið, úr fimmta sætinu í það þriðja.  Snæfell hefði þó helst þurft minnst 5 stiga sigur á KR til þess að standa betur í innbyrðis viðureignum liðanna og verða þannig fyrir ofan KR standi þau aftur jöfn í deildinni. En það er nú algjörlega í höndum Snæfells að halda sér á meðal fjögurra efstu síðustu fjórar umferðirnar.

Meira...


Síða 5 af 85: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85



24. maí:
- Umhverfisdagar Stykkishólmsbæjar


25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18