Þriðjudagur 29. janúar 2008
Snæfell sigraði Stjörnuna
Snæfell sigraði Stjörnuna í gærkvöldi 103-94 á heimavelli Stjörnunnar í Garðabæ. Leikurinn var jafn fram í síðasta leikhluta að Snæfell seig framúr. Hlynur Bærings var með enn einn stórleikinn skoraði 31 stig, 12 fráköst og 8 stoðsendingar og framlag til leiksins upp á heil 40 stig.
Meira...
Sunnudagur 27. janúar 2008
Stjarnan - Snæfell í kvöld
Leik Snæfells og Stjörnunnar sem frestað var í gær vegna veðurs, verður í kvöld kl.20 í Garðabænum. Steve Leven er mættur og er líklega enn að ná hrollinum úr sér því hann kom úr 30 stiga hita í Ástralíu og í „blíðviðrið“ hér um helgina svo ekki sé talað um fjölmennið. Ágætis prófraun á karl það.
Fimmtudagur 24. janúar 2008
Snæfell - KR
Hörkuleikur og góðar varnir en Snæfell þó búnir að vera betri aðilinn en gáfu eftir í lok leikhlutans og KR komst inn í leikinn að nýju og staðan því jöfn að loknum 1.leikhluta 14-14.
Staðan í hálfleik 41-37
Meira...
Fimmtudagur 24. janúar 2008
Snæfell - KR í kvöld
Snæfell mætir Íslandsmeisturum KR í kvöld kl.19:15 í Fjárhúsinu í Íþróttamiðstöðinni. Snæfell hefur ekki tapað leik á heimavelli á árinu og m.a. lagt Njarðvík og Keflavík þannig að það er engin ástæða til að ætla annað en þeir geti tekið KR líka sem hafa leikið fremur illa nú eftir áramótin.
Meira...
Fimmtudagur 24. janúar 2008
Nýr leikmaður til Snæfells
Steve LevenNú er það orðið klárt að nýr leikmaður er genginn í raðir Snæfellsmanna. Þar er um 25 ára gamlan ástralskan leikmann að ræða Steve Leven að nafni. Hann mun vera tvistur eða jafnvel þristur þ.e. í stöðu bakvarðar eða jafnvel framherja. Steve kemur til landsins á laugardaginn og mun vonandi verða orðinn klár í bikarleikinn gegn Njarðvík 2.febrúar.
Meira...
Mánudagur 21. janúar 2008
Iceland Expressdeildin í augsýn
Snæfell er á góðri leið með að tryggja sér sæti í efstu deild kvenna á næsta ári. Stelpurnar eru búnar með 9 leiki af 16 og hafa unnið þá alla sannfærandi. Þær eru að skora að meðaltali um 73 stig í leik og fá á sig 43 og hafa því skorað alls 655 stig og fengið á sig 390 sem gerir 256 stig í +.
Meira...
Mánudagur 14. janúar 2008
Sigurður Á. Þorvaldsson íþróttamaður HSH 2007
Að loknum leik Snæfells og Keflavíkur í gær kynnti HSH þá íþróttamenn sem útnefndir voru íþróttamenn ársins í tilteknum íþróttagreinum innan Héraðssambands Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. Úr þeim hópi var svo útnefndur íþróttamaður HSH 2007 og það var Sigurður Á. Þorvaldsson leikmaður meistaraflokks Snæfells í körfunni sem hlaut titilinn í þetta skiptið. Sigurður er vel að útnefningunni kominn, átti mjög gott tímabil á síðasta ári með Snæfelli og hefur leikið mjög vel á yfirstandandi tímabili, þar sem Snæfell á möguleika á þrennunni með sigrinum á Keflavík í gær.
Meira...
Sunnudagur 13. janúar 2008
Snæfell - Keflavík Leiklýsing
Leikur Snæfells og Keflavíkur er hafinn og troðfullt hús.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarson.
Meira...
Síða 45 af 86:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 - 45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85 -
86