Laugardagur 5. janúar 2008
Snæfell - Njarðvik kl.16:00
Snæfell leikur gegn Njarðvík í dag í Fjárhúsinu kl.16:00. Leikurinn verður jafnframt í beinni útsendingu í sjónvarpinu, þannig að nú gefst þeim stuðningsmönnum sem ekki hafa séð liðið í leik loks tækifæri til þess. Þeir sem eru staddir í Stykkishólmi og nágrenni og eiga heimangegnt hljóta þó að skella sér í Fjárhúsið til að styðja liðið þar sem það finnur fyrir stuðningnum. Snæfell átti skínandi leik gegn Þórsurum á fimmtudaginn og nú er að sjá hvort liðið nái að fylgja þeim sigri eftir.
Fimmtudagur 3. janúar 2008
Snæfell sigraði Þór
Snæfell sigraði lið Þórs Akureyri örugglega í kvöld 93-63. Leikurinn fór mjög rólega af stað í stigaskorinu og bæði liðin greinilega ákveðin í að landa sigri í sínum fyrsta leik á árinu. En það var eins og hugur fylgdi ekki alveg máli hjá Þórsurum í baráttunni því hún fjaraði nánast út strax í 2.leikhluta og eftir það var í raun aldrei spurning hvoru meginn sigurinn myndi lenda þótt munurinn færi ekki yfir 20 stiginn fyrr en í 3.leikhluta þegar Snæfell náði tveimur góðum leikköflum. Snæfell þurfti því engan stórleik til að sigra Þórsara á endanum með 30 stiga mun.
Tölfræðin.
Meira...
Fimmtudagur 3. janúar 2008
Búið að draga í bikarnum hjá yngri flokkum
Í dag var dregið í 8 liða úrslitin hjá yngri flokkunum en Snæfell er með þrjú lið þar. Samkvæmt drættinum er Snæfell með lið í bikarnum í unglingaflokki drengja en er annars ekki með í Íslandsmótinu í þeim flokki. Unglingaflokkurinn dróst gegn FSu, drengjaflokkurinn gegn Fjölni og 10.flokkur stúlkna gegn Keflavík B. Lukkan var ekki með Snæfelli í drættinum því allir eru þeir útileikir
Meira...
Miðvikudagur 2. janúar 2008
Snæfell - Þór í kvöld kl.19:15
Snæfells mætir Þór frá Akureyri í kvöld í Fjárhúsinu en það er frestaður leikur frá 28.desember. Snæfell lauk árinu með stórtapi gegn ÍR 13.desember og töpuðu því tveimur af þremur síðustu leikjunum í deildinni. Útkoman fyrir áramót úr 10 leikjum varð því 4 sigrar og 6 töp í
deildinni og liðið í 7.sæti, einu sæti fyrir ofan Þór sem er með jafnmörg stig en aðeins 9.leiki.
Meira...
Föstudagur 14. desember 2007
Þór - Snæfell frestað
Leik Snæfells og Þórs í 1.deild kvenna sem fara átti fram í kvöld var frestað fram yfir áramót. Snæfellsstelpurnar eru því komnar í jólafrí en eiga leik við Njarðvík hér heima 4.janúar. Þar verður um áhugaverðan leik að ræða því Njarðvík og Þór Akureyri eru þau lið sem helst hafa verið að veita Snæfelli keppni í deildinni fram til þessa.
Fimmtudagur 13. desember 2007
Snæfell tapaði fyrir ÍR
Snæfell steinlá í kvöld fyrir ÍR í Seljaskólanum 102-77. Það var vitað að þessi leikur gæti orðið erfiður því ÍR hefur verið að sækja í sig veðrið eftir komu Nate Brown. Hlynur Bærings er einnig meiddur og óvíst hvort hann léki í kvöld og Snæfellsliðið má illa við enn einum leikmann í meiðsli hvað þá jafn mikilvægum leikmanni og Hlyni. Tölfræði leiksins er
hér.
Mánudagur 3. desember 2007
George Byrd með hæsta framlagið til þessa
Á heimasíðu KKÍ er búið er að taka saman framlag leikmanna í hverri umferð Iceland Expressd. karla og kvenna í fyrstu 9 umferðunum. George Byrd leikmaður Hamars er með langhæsta framlagið til þessa en hann náði 50 stigum í leiknum gegn KR í 9.umferðinni. Efstu menn Snæfells eru Hlynur og Justin. Sjá má heildarúttektina
hér.
Sunnudagur 2. desember 2007
Snæfell sigraði Grindavík
Snæfell sigraði Grindavík í kvöld 82-95 í Iceland Expr.d. karla en leikið var í Grindavík.
Sjá má umsögn um leikinn á
karfan.isTölfræðin úr leiknum.
Síða 46 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 - 46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85