Fimmtudagur 11. október 2007
Njarðvík - Snæfell í kvöld kl.19:15
Í kvöld leika nýkrýndir Powerademeistarar Snæfells sinn fyrsta leik á tímabilinu í Iceland Expressdeildinni þegar liðið mætir Keflavík á útivelli.
Byrjunin í ár er strembin hjá
Snæfelli, Keflavík á útivelli í fyrsta leik, þá Njarðvík hér heima og svo Íslandsmeistarar KR á útivelli.
Leikur liðsins í þeim leikjum ætti að gefa ágæta vísbendingu um framhaldið en þó ber að hafa það í huga að nýr leikmaður Slobodan Subesic er á leiðinni og væntanlegur í næstu viku.
Meira...
Föstudagur 5. október 2007
Slobodan á ný með Snæfelli
Nú er það orðið ljóst að Serbin Slobodan Subasic, sem lék með Snæfelli tímabilið 2005-2006, mun ganga til liðs við Snæfell á ný. Hann er væntanlegur til landsins í næstu viku og ætti því hugsanlega að geta fylgst með fyrsta leik tímabilsins í Iceland Expressdeildinni á móti UMFN í Njarðvík 11.okt.. Hann mun væntanlega leika í hlutverki leikstjórnanda á móti Justin Shouse.
Meira...
Fimmtudagur 4. október 2007
Góð ferð hjá 8.flokki Snæfells
Strákarnir í 8.flokki Snæfells héldu til Akureyrar helgina 29.-30.sept. þar sem 1.umferðin Íslandssmótinu fór fram. Þar spiluðu strákarnir 4 leiki og unnu þá alla. Strákarnir þurftu að leika í E-riðli þrátt fyrir mjög góðan árangur í fyrra, en röðunin á hverju ári miðast við árangur í næsta flokki fyrir neðan þ.e. 7.flokki.
Meira...
Miðvikudagur 3. október 2007
Strembin byrjun í Expressdeildinni
Það byrjar bratt hjá Snæfelli í Iceland Expressdeildinni í ár. Þrír fyrstu leikirnir verða gríðarlega erfiðir. Fyrsti leikur gegn Njarðvík í Njarðavík 11.október, þá Keflavík hér heima og svo Íslandsmeistarar KR í Reykjavík. Sjá má leiki Snæfells í deildinni í vetur
hér.
Mánudagur 1. október 2007
Snæfell vann Poweradebikarinn
Ljósm.karfan.isÞað hefur vonandi ekki farið fram hjá mörgum að Snæfell vann KR 72-65 í gær í úrslitaleik um Poweradebikarinn. Leikurinn var í anda leikja á milli þessara liða undanfarin ár, hörku varnaleikur og mikið um náin kynni með tilheyrandi stympingum og pústrum. En sigurinn var sanngjarn, Snæfell leiddi megnið af leiknum og var yfirleitt skrefinu á undan.
Meira...
Fimmtudagur 27. september 2007
Snæfell vann Njarðvík
Nýtt Snæfell vann Njarðvík 85-79 og mæta því KR í úrslitaleik í Höllinni á sunnudaginn.
Sjá má smá umsögn á vef
KKÍ og á
Karfan.is.
Tölfræðin úr leiknum er
hér.
Nánar um leikinn síðar
Meira...
Fimmtudagur 27. september 2007
Snæfell - Njarðvík í höllinni í kvöld
Nú styttist í leik Snæfells og Njarðvíkur í Poweradebirkarnum sem verður í kvöld í Laugardalshöllinni kl.21. Þessi lið mættust í úrslitum þessarar bikarkeppni (fyrirtækjabikarinn) árið 2004 og þá sigraðið Snæfell
84-79. Það er jafnframt í eina skiptið sem Snæfell hefur verið í úrslitaleiknum eins og sjá má á samantekt á vef
KKÍ.
Meira...
Mánudagur 24. september 2007
Tap gegn Haukum
Íslands- og bikarmeistarar Hauka reyndust of stór biti fyrir Snæfellsstelpurnar í kvöld þegar liðin mættust í Poweradebikarnum í Hafnarfirði. Leiknum lauk með öruggum sigri Hauka 102-45.
Alda Leif sem lék sinn fyrsta leik með Snæfelli átti góðan leik og var með tæpan helming stiga liðsins eða 20 stig.
Tölfræði leiksins
hér.
Síða 51 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 - 51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85