Stykkishólmspósturinn
25. maí 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Miðvikudagur 30. maí 2007
Snæfellsnes að byrja í fótboltanum
Yngri flokkarnir í fótboltanum eru að fara í gang í Íslandsmótinu en þar eru eins og kunnugt er, félögin á nesinu í samstarfi undir nafninu Snæfellsnes í 3.-7.flokki stelpna og stráka.  Meira...


Miðvikudagur 30. maí 2007
Tap gegn KV
Snæfell lék gegn KV í 3.deildinni í fótboltanum síðastliðinn föstudag á KR vellinum í Reykjavík. Sá völlur er greinilega ekki að virka fyrir Snæfell fremur en KR því KV vann leikinn 5-1 eftir að hafa verið 1-0 yfir í hálfleik. Það var Przemyslaw Andri Þórðarson sem skoraði mark Snæfells á 89 mínútu og jafnframt síðasta mark leiksins. Meira...


Föstudagur 25. maí 2007
Snæfell byrjar í Njarðvík
Búið er að draga í töfluröð í úrvalsdeildinni í körfubolta fyrir næsta vetur og raða niður i umferðirnar út frá henni. Snæfell mun fara til Njarðvíkur og mæta Njarðvík í fyrsta leik. Eins og kunnugt er þá er Teitur Örlygsson nú tekinn við þjálfun Njarðvíkurliðsins og því spennandi að sjá hvernig þeir mæta á móti firna sterkum Breiðfirðingunum í Snæfelli.


Miðvikudagur 23. maí 2007
Allt í rólegheitunum í leikmannamálum Snæfells
Það er ekki mikið að gerast í leikmannamálum Snæfells í körfunni, þessa dagana enda lítil ástæða til að æsa sig í þeim málum þegar nær allir leikmenn liðsins verða með næsta ár. Það er þó klárt með erlendu leikmennina sem voru með í fyrra, Justin Shouse verður áfram en Martin Thuesen er farinn til Danmerkur þar sem hann hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Bakken Bears. Þannig að reikna má með minnsta kosti einum erlendum leikmanni í stað Thuesen.


Mánudagur 21. maí 2007
Tap í fyrsta leik

Íslandsmótið í knattspyrnu hófst um helgina og Snæfell átti heimaleik í fyrsta leiknum í ár í 3.deildinni á sunnudag.  Mótherjinn ekki af lakara taginu, Víðir Garði sem hefur marga fjöruna sopið í fótboltanum.  Þeir hafa spilað í efstu deild og ekki mörg árin síðan þeir voru í úrslitum bikarsins.    Meira...


Mánudagur 21. maí 2007
Egill Norðurlandameistari
Egill Egilsson varð Norðurlandameistari með íslenska landsliðinu undir 16 ára í gær þegar liðið sigraði það sænska í í leik um 1.sætið í æsispennandi leik 69-67 á Norðurlandamóti yngri landsliða í körfubolta sem haldið var í Svíþjóð.    Meira...


Fimmtudagur 17. maí 2007
Tap gegn Grundarfirði
Snæfell lék í dag í Visabikar karla í fótboltanum og andstæðingurinn var ekki af verri endanum og ekki ókunnur heimamönnum, Grundfirðingar sjálfir. Leikið var í Grundarfirði og reyndust heimamenn öllu sterkari í þetta skiptið og sigruðu 4-3. Snæfell er þvi úr leik Visabikarnum þetta árið og geta strákarnir því einbeitt sér að deildinni en þeir eiga sinn fyrsta leik í 3.deildinn næsta sunnudag gegn Víði hér heima kl.14:00.


Fimmtudagur 17. maí 2007
Hólmarar á Norðurlandamóti
Eins og mörgum er kunnugt þá eru fjórir Hólmarar að keppa á Norðurlandamóti yngri landsliða í körfu sem haldið er í Svíðþjóð þessa dagana. Það eru þau Helga Hjördís Björgvinsdóttir með U-16 liðinu, Egill Egilsson með U-16 og Atli Rafn Hreinsson og Björgvin Valentínusson með U-18 liðinu. Hægt er að fylgjast með leikjunum beint á þessum tengli hér. Tölfræði leikjanna sem þegar hafa verið leiknir og dagskrá leikjanna er að finna hér. Meira...


Síða 56 af 85: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85



25. maí:
- Aukaferð Baldurs kl. 9

- Bílasýning á Olís frá Bílabúð Benna

- Umhverfisdagar - Snoppa opin 11-15

- Fjöru- og gönguferð í boði Náttúrustofu Vesturlands kl. 12.30

- Hand- og myndlistarsýning Aftanskins kl. 14

- 25 spennandi gönguleiðir um Snæfellsnes kynning í Eldfjallasafni kl.15

- Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði með söngskemmtun í Stykkishólmskirkju kl. 16

- Upplestur og tónleikar í Vatnasafni kl. 21


26. maí:
- Lúðrasveitartónleikar í Stykkishólmskirkju kl. 13


29. maí:
- Uppskeruhátíð umhverfisdaga í Grensásnum kl. 18

- Bingó hjá Nunnunum fyrir alla fjölskyldurna kl.18


30. maí:
- Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins. kl. 19