Miðvikudagur 16. maí 2007
Meistari Héraðsmeistaranna
Lið Héraðsmeistaranna er á góðri leið með að verða sérstök stofnun sem stendur fyrir eigin uppákomum og er jafnframt með fjölda starfsmanna á sínum snærum m.a. einn fjölmiðlafulltrúa. Sá sendi eftirfarandi fréttatilkynningu um golfmót á vegum Héraðsmeistaranna.
Meira...
Föstudagur 13. apríl 2007
Fótboltinn kominn af stað
Strákarnir í meistaraflokki karla eru komnir á fullt í fótboltanum og taka þátt í Lengjubikarnum. Leikir liðsins eru leiknir í Akraneshöllinni og nú hefur liðið leikið þrjá leiki og tapað öllum, nú síðast 0-3 fyrir Skallagrími.
Meira...
Föstudagur 6. apríl 2007
74-76 tap gegn KR - Snæfell úr leik
Dramatíkin í viðureign Snæfells og KR hélt áfram fram á síðustu sekúndu viðureignarinnar. Það var greinilegt á leik Snæfells frá byrjun að þeir voru komnir DHl-höllina til að sigra. Komu mjög ákveðnir til leiks og voru með leikinn í höndum sér nánast fram á síðustu sekúndu. En í þetta sinnið átti sigurinn ekki fyrir Snæfelli að liggja og ósanngjarnt tap varð staðreynd. Snæfellsliðið féll þó úr leik með sæmd eftir þennan lokaleik og allt annað að sjá til liðsins frá síðasta leik hér heima. Þá má heldur ekki gleyma stuðningsfólki liðsins, frábært að sjá og heyra í þeim öfluga hópi. Tölfræðin úr leiknum er
hér.
Meira...
Fimmtudagur 5. apríl 2007
Erum alls ekki hættir
Lokaleikur Snæfells og KR er í kvöld kl.19:15 og Sth.-Pósturinn heyrði í Hlyni fyrirliða í morgun og spurði úti í leikinn í kvöld.
Meira...
Fimmtudagur 5. apríl 2007
KR - Snæfell í kvöld kl.19:15
Þá er komið að úrslitastundinni fyrir Snæfell og nú dugar ekkert annað en sigur vilji menn meira í þessari keppni. Það var frábært að sjá hve margir voru mættir að hvetja Snæfell í síðasta leik hér heima og þar af voru fjölmargir sem komu keyrandi utan af landi, sérstaklega úr Reykjavík.
Meira...
Þriðjudagur 3. apríl 2007
Búið að setja dómara á KR-Snæfell
Sigmundur
Búið er að tilkynna dómarana sem
munu dæma lokaleik Snæfells
og KR í úrslitunum í DHL-höllinni
á fimmtudaginn. Það verða Einar Þór
Skarphéðinsson og Sigmundur Már
Herbertsson sem fá það erfiða verkefni.
Þriðjudagur 3. apríl 2007
Berglind og Helga valdar í U16
Berglind Gunnarsdóttir og Helga Hjördís Björgvinsdóttir hafa verið valdar í 25 stúlkna æfingingahóp hjá landsliðinu undir 16 ára. Liðið mun taka þátt í Norðurlandamótinu í Svíþjóð í maí.
Mánudagur 2. apríl 2007
Snæfell- KR
Þá er fjórða leik Snæfells og KR lokið með sigri KR 80-104 og staðan þar með orðin 2-2. Þessi leikur fer svo sannarlega ekki í sögubækur Snæfells sem besti leikur allra tíma. Snæfellingar voru engan veginn að ráða við verkefnið og ljóst að þeir verða virkilega að girða sig í brók ef þeir ætla að veita KR-ingum einhverja keppni í DHL höllinni. Það verður þó ekki af KR-ingunum tekið að þeir áttu sigurinn skilið, vildu meira og voru betri á flestum sviðum leiksins. Þó stundum sé stutt í takta KR-ingum sem lítið hafa með íþróttaandann að gera og nægir þar að nefna leiðindatakta hjá Sola gagnvart Guðna Valentínussyni sem þurfti að yfirgefa völlinn vegna veikinda.
Meira...
Síða 57 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 -
8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 - 57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85