Stykkishólmspósturinn
19. júní 2013
Smelltu hér og kynntu þér matseðilinn og staðinn!

Fimmtudagur 22. febrúar 2007
Snæfell - Hamar/Selfoss í kvöld

Þá er lokaspretturinn hafinn í Icel.Expressdeildinni.  Nú keppast liðin við að ná sem bestri stöðu fyrir úrslitakeppnina.  Snæfell er sem stendur í 4.sæti deildarinnar aðeins 2 stigum á eftir Skallagrími í því 3ja.  Hamar/Selfoss er hinsvegar í 9 sæti og í harðri baráttu um að komast í úrslitin, það verður því hörku leikur í kvöld.  Tökum á því með strákunum og  hópumst á völlinn þegar Snæfell mætir Hamri/Selfossi hér heima í Fjárhúsinu kl.19:15.


Fimmtudagur 22. febrúar 2007
Tipparar 8.leikviku: Gunnlaugur og Smári
Það eru feðgarnir Smári Axelsson og Gunnlaugur Smárason sem reyna með sér þessa vikuna.  Smári alltaf verið mikill Arsenalmaður eins og Olla helsti getraunaspekingurinn til þessa. Meira...


Þriðjudagur 20. febrúar 2007
Tipparar7 leikviku: Magni og Vignir
Ingvaldur Magni og Vignir Sveins reyndu með sér öðru sinni í getraununum um síðustu helgi.  Þeir mættust í 4.leikviku og skildu þá jafnir, báðir með 7 rétta.  Þeir þurftu því að mætast á ný til að fá úr því skorið hvor héldi áfram.
Meira...


Mánudagur 19. febrúar 2007
Geof með fyrirlestur

Geof Kotila þjálfari meistaraflokks Snæfells var með fyrirlestur fyrir körfuboltaþjálfara síðasliðinn laugardag í Reykjavík.  Það var Körfuknattleikssambandið sem boðaði til þessa fundar og mættu tuttugu þjálfarar á hann. Meira...


Mánudagur 19. febrúar 2007
Snæfell úr leik í 10.flokki
Stelpurnar í 10.flokki Snæfells léku í fjögurra liða úrslitum bikarsins síðastliðinn sunnudag.  Þær mættu Haukum á heimavelli þeirra að Ásvöllum og Haukastelpurnar reyndust of sterkar í þetta skiptið og sigruðu 58-38.  Tölfræði leiksins er hér.


Miðvikudagur 14. febrúar 2007
Dabbi hafði betur
Davíð Sveins og Hlynur Bærings reyndu með sér öðru sinni í getraunum í síðustu viku eftir að hafa gert jafntefli í 2.umferð.  Þá voru þeir með 5 rétta hvor og þótti það nú ekki neitt sérstakur árangur.  Og miðað við árangur þeirra félaga nú þá borgar sig ekki að spyrja þá ráða ef maður er í vandræðum með getraunaseðilinn.  Meira...


Mánudagur 12. febrúar 2007
Tap gegn Njarðvík
Snæfell tapaði í gær 76-67 fyrir Njarðvík í Iceland Expr.deildinni en leikið var í Njarðvík.  Var e.t.v. viðbúið að leikmenn Snæfells væru ekki alveg í rétta gírnum fyrir þennan leik en mikil veikindi voru á leikmönnum liðsins í vikunni fyrir leik og nokkrir slappir í leiknum.  Meira...


Föstudagur 9. febrúar 2007
Tipparar 6.leikviku: Dabbi og Hlynur
Þá mætast þeir aftur Davíð Sveins og tengdasonurinn Hlynur Bærings en þeir urðu jafnir í 3 leikviku með 5 rétta.  Nú skal því fengið úr því skorið hvor sé getspakari.  Þeir fengu mjög knappan tíma til að tippa og því fylgja engar skýringar á þessari vitleysu hjá þeim. Meira...


Síða 63 af 86: <-síðasta | næsta-> 1 - 2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10 - 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 - 21 - 22 - 23 - 24 - 25 - 26 - 27 - 28 - 29 - 30 - 31 - 32 - 33 - 34 - 35 - 36 - 37 - 38 - 39 - 40 - 41 - 42 - 43 - 44 - 45 - 46 - 47 - 48 - 49 - 50 - 51 - 52 - 53 - 54 - 55 - 56 - 57 - 58 - 59 - 60 - 61 - 62 - 63 - 64 - 65 - 66 - 67 - 68 - 69 - 70 - 71 - 72 - 73 - 74 - 75 - 76 - 77 - 78 - 79 - 80 - 81 - 82 - 83 - 84 - 85 - 86



19. júní:
- Söguferð um Búðahraun

- Ferðafélag Snæfellsness Fjarðarhornsgata kl. 20 frá Mjósundabrú.

- ORGELSTYKKI Sveinn Arnar Sæmundsson kl.20


21. júní:
- Sólstöðuganga á Hreggnasa í Þjóðgarðinum kl.21


22. júní:
- Lífsbjörg undir Jökli sólstöðuganga

- Opnun í Leir 7 Hönnun í tré kl. 14


24. júní:
- Orgelstykki Friðrik Vignir Stefánsson


25. júní:
- 16.unglingalandsmót UMFÍ Kynningarfundur í íþróttahúsinu kl. 18