Mánudagur 7. nóvember 2011
Góður en tæpur sigur hjá Snæfelli
Snæfell sigraði Stjörnuna 94-95 í kvöld í leik í C-riðli Lengjubikars karla en leikurinn fór fram í Garðabæ. Eins og tölurnar bera með sér þá voru lokasekúndurnar spennuþrungnar en það var Ólafur Torfason sem skoraði lokastigið af vítalínunni á síðustu andartökum leiksins. Þrátt fyrir að sigurinn væri tæpur þá var hann sanngjarn því Snæfell leiddi allan tímann og náði mest 21 stigs forskoti 38-59 en þegar um tvær mínútur voru eftir náði Stjarnan að komast yfir. En sigurinn var þó á endanum Snæfells sem þar með hefur unnið báða leiki sína í C-riðli Lengjubikarsins.
Sunnudagur 30. október 2011
Körfuboltaveisla - ekkert tuð, bara stuð!
Það er búið að vera líflegt í Íþróttamiðstöðinni þessa helgina. Blakfólk hefur þar staðið í ströngu en í dag tekur karfan við á ný með tveimur leikjum í röð. Klukkan 17 leika Snæfellsstelpurnar við lið Hamars í IE-deildinni og kl.19:15 mæta strákarnir Bárði og félögum í Tindastóli en sá leikur er fyrsti leikur Snæfells í C-riðli Lengjubikarsins.
Meira...
Föstudagur 28. október 2011
Blakmót um helgina - allir velkomnir á áhorfendapallana..
24 lið koma og keppa í 3ju og 4ju deild Íslandsmótsins. Snæfell spilar kl 09:00, 12:00 og 17:00 á laugardaginn. Leikir sunnudagsins ráðast svo af úrslitum laugardagsins. Allir eru velkomnir á alla leiki.
Fimmtudagur 27. október 2011
Nýr leikstjórnandi hjá Snæfelli
Snæfell hefur fengið nýjan leikstjórnanda í stað Brandon Cotton sem leystur var undan samningi s.l. helgi. Nýi leikstjórnandinn er Marquis Sheldon Hall en hann er 181 cm á hæð og lék m.a. á síðasta tímabili 13 leiki með Aalaborg Vikings í Danmörku seinni hluta tímabilsins og var með ágætis tölur þar 21,5 stig, 5 fráköst, 5,2 stoðsendingar og 23,3 í framlag að meðaltali í leik. Marquis er mættur í Hólminn og mun leika sinn fyrsta leik með Snæfell í kvöld gegn ÍR.
Sunnudagur 23. október 2011
Brandon frá Snæfelli
Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur sagt upp samningnum við Brandon Cotton sem hefur leikið í stöðu leikstjórnanda. Leitað er að eftirmanni Brandons sem mun hinsvegar færa sig yfir til Hamars í 1.deildinni. Sjá nánar á
snaefell.is
Laugardagur 22. október 2011
Bárður tekinn við Tindastól
Að sögn fréttamiðils Skagfirðinga
feykir.is þá hefur Bárður Eyþórsson tekið við sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Tindastóls af Borce Ilievski sem sagði upp stöðu sinni eftir þriðja tapleik liðsins í röð. Gengið var frá ráðningu Bárðar í dag og mun hann stýra sinni fyrstu æfingu í kvöld.
Föstudagur 21. október 2011
Snæfell tapar stigum
Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands dæmdi í dag Val 20-0 sigur á Snæfelli í IE-deild kvenna. Leikurinn fór fram í 1.umferðinni og vann Snæfell leikinn 70-79 en Valur kærði úrslit leiksins á þeim forsendum að Kieraah Marlow hefði ekki verið komin með leikheimild fyrir leikinn. Úrskurðurinn var eins og áður sagði Val í hag og því dæmast tvö stig af Snæfelli í deildinni sem fer þá af toppnum í hóp liðanna sem eru með einn sigur í fyrstu tveimur umferðunum.
Miðvikudagur 19. október 2011
Tveir frábærir sigrar á heimavelli
Bæði meistaraflokkslið Snæfells hafa farið vel af stað í deildarkeppninni og unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni. Stelpurnar hafa sýnt mikla seiglu og karakter í sínum leikjum, unnið tvö sterk lið fyrst Val 70-79 á útivelli og svo Hauka 73-69 hér heima á þriðjudagskvöld. Í báðum leikjunum hafa Snæfellsstelpurnar haldið haus þrátt fyrir pressu á lokamínútunum og klárað leikina á seiglunni. Það er ekki síst athyglisvert í ljósi þess að liðið hefur verið án sterkra leikmanna sökum meiðsla í báðum leikjunum .
Meira...
Síða 8 af 85:
<-síðasta |
næsta-> 1 -
2 -
3 -
4 -
5 -
6 -
7 - 8 -
9 -
10 -
11 -
12 -
13 -
14 -
15 -
16 -
17 -
18 -
19 -
20 -
21 -
22 -
23 -
24 -
25 -
26 -
27 -
28 -
29 -
30 -
31 -
32 -
33 -
34 -
35 -
36 -
37 -
38 -
39 -
40 -
41 -
42 -
43 -
44 -
45 -
46 -
47 -
48 -
49 -
50 -
51 -
52 -
53 -
54 -
55 -
56 -
57 -
58 -
59 -
60 -
61 -
62 -
63 -
64 -
65 -
66 -
67 -
68 -
69 -
70 -
71 -
72 -
73 -
74 -
75 -
76 -
77 -
78 -
79 -
80 -
81 -
82 -
83 -
84 -
85